12.04.1954
Neðri deild: 90. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 239 í C-deild Alþingistíðinda. (2412)
165. mál, ríkisborgararéttur
Bergur Sigurbjörnsson:
Herra forseti. Ég hef leyft mér að flytja hér eina brtt. við frv. til l. um veitingu ríkisborgararéttar. Er sú brtt. prentuð á þskj. 742 og er þess efnis, að inn í 1. gr. frv. bætist Lydia Niclasen húsfrú hér í Reykjavík, fædd í Færeyjum. Ég sé á till. hv. allshn., að hún hefur ekki viljað fallast á að taka þessa till mína til greina, og þykir mér því hlýða að fara um þetta örfáum orðum.
Frú Lydia Niclasen er gift íslenzkum manni, Stefáni Þorlákssyni. Að vísu gengu þau í hjónaband nú á yfirstandandi ári, en frúin hefur verið búsett hér í Reykjavík samkvæmt vottorðum frá því á árinu 1946 og stundað hér hjúkrunar- og líknarstörf, að því undanskildu, að hún skrapp til Noregs á árunum 1949 og 1950 í nokkra mánuði til frekara náms þar. Hér er um að ræða hjúkrunarkonu, sem hefur hér eingöngu stundað slík störf þar til nú, að hún er gift og setzt að hér í bæ.
Mér er fyllilega ljóst, að það geti verið rétt, sem hv. allshn. heldur fram, að í ýmsum tilfellum geti verið ástæða til fyrir okkur að fara varlega í sakirnar með að veita mönnum ríkisborgararétt. Því er borið við, sem er og rétt, að það geti komið fyrir þau tilfelli, að útlendingar óski eftir því, ef það væri mjög auðvelt að fá ríkisborgararétt hér, aðeins til bráðabirgða til þess að eiga hagkvæmara með að flytja síðan til annarra landa og fá búsetu þar. Í þessu tilfelli, sem hér er um að ræða, getur ekkert slíkt átt sér stað. Það væri engu hagkvæmara fyrir þessa frú að flytja til neins lands í veröldinni með íslenzkan ríkisborgararétt heldur en þann ríkisborgararétt, sem hún hafði áður í Færeyjum. Það er og ljóst, að regla sú, sem hv. allshn. fer eftir um þriggja ára búsetu hér á landi, eftir að viðkomandi aðili hefur gengið í hjónaband, er náttúrlega enginn Salómonsdómur í þessum málum, því að það mætti eins segja, að ef svo háttaði, að einhver væri að útvega sér hér ríkisborgararétt til þess að komast eitthvað annað, þá mundi hann nú eins reyna það, þó að hann þyrfti að þreyja í þrjú ár til þess að sleppa héðan úr prísundinni, ef því væri að skipta. Hins vegar hefur frú Lydia, sem hér er um að ræða, sýnt það nú þegar með því, hve lengi hún hefur búið hér, að það er hennar ætlun að setjast að hér á landi, svo og er hennar hjónaband frekari undirstrikun í því efni. Með umsókn hennar um ríkisborgararétt fylgja vottorð frá ýmsum aðilum, þ. á m. frá lögreglustjóranum í Reykjavík um óaðfinnanlega hegðun umsækjanda, frá borgarstjóranum í Reykjavík um það, að umsækjandi hafi borgað öll opinber gjöld, sem áskilið var, og frá sakadómaraembættinu sömuleiðis um það, að umsækjandi hafi hvorki sætt ákæru né refsingu þann tíma, sem hún hefur dvalið hér á landi.
Ég vil einnig geta þess hér, að Ísland hefur á síðustu árum gert ýmsa samninga við Norðurlönd í félagsmálum og öðrum slíkum málum, þar sem mönnum er gert auðveldara fyrir með að neyta réttar síns, hvar sem er á Norðurlöndum, og öðlast sama rétt í ýmsum félagslegum málum á öllum Norðurlöndunum. Ég tel því í beinu framhaldi af þessu, að í sambandi við veitingu ríkisborgararéttar hljóti að gegna nokkuð öðru máli, hvort umsækjandi er Norðurlandabúi eða ekki. Norðurlandabúar hafa enga sérstaka ástæðu til þess að sækja fyrst um ríkisborgararétt á Íslandi til að komast eitthvað annað. Þeir geta það frá sínu heimalandi, með sínum ríkisborgararétti, og þess vegna sýnist mér, að reglur þær, sem hv. allshn. vill í þessu tilfelli beita, séu allt of einstrengingslegar. Vil ég því vænta þess, að hv. þm. sýni meiri lipurð og meiri skilning í þessu máli að því er snertir þá brtt., sem ég hef hér flutt.