13.04.1954
Neðri deild: 95. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 248 í C-deild Alþingistíðinda. (2429)
165. mál, ríkisborgararéttur
Björn Ólafsson:
Herra forseti. Mig furðar nokkuð á því, að hv. 1. landsk. skuli bera fram þessa till. nú, þegar búið er í raun og veru að fella till. í d., áður en hún kemur fram. Hv. þm. bað um, að atkv. væru greidd sérstaklega um þá gr. frv., sem fjallar um þetta, og var hún samþ.
Ég vil vekja athygli á því, að samþ. hafa nú verið á tveim þingum frumvörp um ríkisborgararétt með þeim ákvæðum, sem nú eru í 2. gr. frv., og ég tel, að mjög væri óviðeigandi að fara að breyta þessu á þriðja ári og heimila þeim, sem nú sækja um ríkisborgararétt, að halda sínum erlendu nöfnum. Það væri ranglátt gagnvart því fólki, sem þegar hefur fengið íslenzkan ríkisborgararétt samkvæmt þessu ákvæði.
Hv. þm. sagði, að sín till. væri góð millileið. Við þurfum enga millileið í þessu máli. Þessir menn, sem eru að biðja hér um borgararétt, eiga ekki að setja okkur kostina. Það erum við, sem eigum að setja þeim kostina fyrir því, að þeir fái að verða íslenzkir ríkisborgarar. Það eru mikil fríðindi að fá íslenzkan ríkisborgararétt, eins og margoft hefur verið tekið fram, og ef þeir vilja ekki verða íslenzkir ríkisborgarar að nafninu til líka, þá er sýnilegt, að þeir vilja ekki mikið vinna til þess að verða íslenzkir ríkisborgarar, og þá eiga þeir ekki heldur að fá borgararéttindin.