20.10.1953
Neðri deild: 8. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 323 í C-deild Alþingistíðinda. (2516)

46. mál, brúargerðir

Flm. (Páll Þorsteinsson):

Herra forseti. Það hefur verið venja hér á hv. Alþ. að taka lög um brúargerðir til endurskoðunar á nokkurra ára fresti í samræmi við þá þróun, sem orðið hefur í framkvæmdum á þessu sviði. Lög um brúargerðir voru síðast til endurskoðunar hér á hv. Alþ. 1947, svo að nú eru orðin um það bil sex ár síðan þau voru endurskoðuð. Á hinn bóginn voru vegalög endurskoðuð fyrir tveim árum, eða á þingi 1951. Það virðist því vera orðið tímabært að taka brúalögin til endurskoðunar. Af þeim ástæðum hef ég leyft mér ásamt hv. 11. landsk. þm. að bera fram frv. á þskj. 48, en það fjallar um að taka inn í brúalög nokkrar ár í Austur-Skaftafellssýslu. Vegna legu sinnar er Austur-Skaftafellssýsla mesta vatnahérað á landinu. Stærsti jökull í Norðurálfu, Vatnajökull, liggur á bak við byggðina, og frá honum renna mjög margar jökulár, sem eru til trafala í samgöngum og skemma víða gróðurlendi. Með þessu frv. er stefnt að því að fá lögfesta áætlun um nokkur framtíðarverkefni á þessu sviði í Austur-Skaftafellssýslu, og væntum við flm. þess, að frv. verði vel tekið hér í þessari hv. deild. Ég mun svo ekki fara um það fleiri orðum, nema sérstakt tilefni gefist, en legg til, að frv. verði vísað til 2. umr. og hv. samgmn.