20.10.1953
Neðri deild: 8. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 327 í C-deild Alþingistíðinda. (2522)
49. mál, almannatryggingar
Flm. (Kristín Sigurðardóttir):
Herra forseti. Lögin um almannatryggingar eru stórmerk löggjöf og veita þjóðfélagsþegnunum mikið öryggi. Þrátt fyrir það er svo um þau lög sem um önnur manna verk, að þau eru ekki alfullkomin, enda hafa þau verið endurskoðuð og lagfærð í ýmsum atriðum, eftir því sem reynslan hefur leitt í ljós, að með hefur þurft og óhjákvæmilegt hefur verið.
Með frv. því, sem hér liggur fyrir á þskj. 52 og flutt er af fjórum þm. þessarar hv. deildar, er farið fram á dálitla breyt. á bótaflokknum um elli- og örorkutryggingar. Er hún í því fólgin, að 10% af bótafénu sé borgað til bótaþeganna sjálfra, þegar þeir dvelja að staðaldri í sjúkrahúsi.
Í 63. gr. almannatryggingalaganna er svo kveðið á, að Tryggingastofnuninni sé heimilt að lækka eða fella með öllu niður bætur til þessara bótaþega, þegar svo stendur á, að þeir dvelja í sjúkrahúsi eða annarri hliðstæðri stofnun, svo sem elliheimili, þar sem Tryggingastofnunin eða aðrir opinberir aðilar greiða fyrir þá. Hefur þetta oftast verið gert og bæturnar allar teknar upp í sjúkrahúskostnaðinn. Hafa þessir bótaþegar því ekki haft einn einasta eyri til eigin umráða.
Það hefur verið sagt, að mælikvarðinn á menningu hverrar þjóðar væri, hvernig hún byggi að börnum og gamalmennum. Í þessu tilfelli ræði ég aðeins um gamla fólkið, og er ég ekki að halda því fram, að illa sé að því búið, en ósköp held ég að lífið sé orðið ömurlegt og gleðisnautt, þegar ekki er einu sinni hægt að veita sér tóbakskorn í nefið eða annan álíka óþarfa. Um öryrkjana gegnir alveg því sama. Þeir geta ekki svo mikið sem keypt sér frímerki á bréf, langi þá til þess að skrifa kunningjum sínum. Að sjálfsögðu þarf þetta fólk nauðsynlegustu föt utan á sig, þótt það dvelji í sjúkrahúsi. Tilgangur tryggingalaganna er að rétta hlut þeirra, sem erfiðast eiga og við bágust kjör eiga að búa. Þeim tilgangi verður ekki náð, nema tekið sé með skilningi og sanngirni í óskir þeirra, sem minnst bera úr býtum. En hlutur þeirra, sem elli- og örorkustyrks njóta, er ekki stór.
Mér hefur verið bent á, að betur færi á eða réttara væri, að brtt. þessi kæmi við viðaukalögin, viðaukalög sjálfra almannatryggingalaganna. Efnislega breytir það auðvitað engu, en ég vil beina því til þeirrar n., sem fær þetta mál til meðferðar, að taka þetta til athugunar. Að svo mæltu legg ég til, að málinu verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og hv. heilbr.- og félmn.