20.10.1953
Neðri deild: 8. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 339 í C-deild Alþingistíðinda. (2540)
56. mál, íbúðarhúsabyggingar í kaupstöðum og kauptúnum
Flm. (Gylfi Þ. Gíslason):
Herra forseti. Húsnæðisskorturinn í kaupstöðum og kauptúnum á Íslandi er svo kunn staðreynd, að þess gerist ekki þörf að fjölyrða mjög til þess að lýsa henni. Á árunum 1941–50 voru byggð að meðaltali aðeins 156 hús í Rvík, og er það auðsjáanlega allt of lítið, þótt ekki væri nema við það miðað að fullnægja húsnæðisþörf vegna vaxandi fólksfjölgunar í bænum. 1951 voru aðeins byggð hér í Rvík 118 hús með 282 íbúðum. Þar af var 51 íbúð fimm herbergja eða stærri, en íbúðarstærðin hefur á undanförnum árum ávallt farið vaxandi þrátt fyrir fjárfestingareftirlit hins opinbera, sem miða átti að því að minnka íbúðarstærðina nokkuð, til þess að unnt væri að byggja fleiri íbúðir en ella fyrir sama magn byggingarefnis.
Fyrir nokkrum árum, 1946 var það, fór fram gagngerð skoðun á kjallaraíbúðum og bröggum hér í Rvík. Þá kom í ljós, að hér bjuggu 1303 menn í bröggum, þar af 926 konur og börn. Nú skyldu menn ætla, að þessar staðreyndir hefðu orðið undirrót þess, að hið opinbera hefði séð sér skylt að grípa til gagngerðra ráðstafana til þess að útrýma því ægilega böli, sem í því felst að vera til þess neyddur að búa í lélegu, allt að því heilsuspillandi húsnæði, en sú hefur ekki orðið raunin á. Íbúum bragganna hefur farið fjölgandi, síðan þessi gagngerða skoðun og virðingargerð var framkvæmd, en ekki fækkandi. Af þessum bröggum og kjallaraíbúðum, sem skoðaðar voru 1946, voru 228 braggaíbúðir dæmdar algerlega óíbúðarhæfar, en í þeim bjuggu 906 manns, þar af 645 konur og börn. Þrátt fyrir þessar ægilegu staðreyndir fjölgaði, eins og ég sagði áðan, íbúum bragganna á næstu árum. 1947 var tala fólks, sem bjó í bröggum, 2077, þar af 1442 konur og börn. 1950 fjölgað íbúum bragganna enn. Þá nam talan 2210, þar af 1612 konur og börn. Og á síðasta ári má telja að íbúar bragga hafi numið um 2400, þar af 1800 konur og börn.
Við talningu þá eða athugun á húsnæði í Rvík 1946, sem ég gat um áðan, kom í ljós, að íbúar kjallara voru 6085, þar af konur og börn 3974. Margt af þessum kjöllurum var mjög lélegt íbúðarhúsnæði og raunar alveg óhæft, og íbúar þess húsnæðis, sem skoðunarmenn töldu ýmist mjög félegt eða óhæft, voru 2074. Nýrri skýrslur, sem ábyggilegar mættu teljast um kjallaraíbúðir, eru því miður ekki fyrir hendi. Sýnir það eitt áhuga yfirvalda á því að leysa þetta gífurlega vandamál, að ekki skuli einu sinni fylgzt rækilega með því, hversu margir verða að sætta sig við að búa í kjöllurum eða bröggum. En áætla má, að kjallaraíðúðum hafi fjölgað um 400–500 síðan 1946 og íbúum þeirra þá um 1600–2000. Það er þess vegna vafalaust hægt að áætla, að nú búi upp undir 10 þús. manns í Rvík í bröggum og kjöllurum, eða allt að því 1/6 hluti bæjarbúa. Og þetta á sér stað á árinu 1953, á miðri 20. öldinni; þetta á sér stað eftir að yfir landið hefur gengið eitt mesta gróða- og velgengnistímabil, sem um getur í sögu þessara þjóðar, eftir að þjóðin er orðin betur stæð efnalega en nokkurn tíma fyrr í sögu sinni. Þá kemur í ljós að um það bil sjöttungur íbúa höfuðstaðarins býr annaðhvort í gömlum herskálum eða í kjallaraíbúðum. Þess ber þó auðvitað að geta, að því fer fjarri, að allar kjallaraíbúðirnar séu lélegar, hvað þá óhæfar sem íbúðarhúsnæði. Margar þeirra eru í vönduðum húsum og þar af leiðandi sæmilegar íbúðir. En það er vafalaust ekki of hátt áætlað, að 2/3 þessara íbúða séu mjög lélegar og mikið af þeim allsendis óhæfar, þannig að 6–7 þús. manns í þessum bæ búi í mjög lélegu og sumpart algerlega ófullnægjandi húsnæði.
Fjölmargir vitnisburðir eru til um það frá hendi dómbærra manna, t. d. lækna, að mikill fjöldi þeirra íbúða, sem eru notaðar hér í Rvík, er allsendis ófullnægjandi vistarverur fyrir fullorðið fólk, hvað þá fyrir börn. Ég ætla að leyfa mér, með leyfi hæstv. forseta, að lofa þingheimi að heyra læknisvottorð eitt, sem er opinbert plagg og læknir gaf eftir að hafa skoðað íbúð að beiðni íbúa hennar í sambandi við sérstakt mál, sem á döfinni var, en læknisvottorðið hljóðar þannig, með leyfi hæstv. forseta:
„Eftir beiðni skoðaði ég í dag íbúð í kjallara við (hér kemur götunafnið), en þar býr (kemur mannsnafnið) ásamt konu sinni og fimm börnum, eins, þriggja, fjögurra, sex og átta ára. Íbúðin, sem er í steinhúsi og nokkuð niðurgrafin, er þrjú herbergi, hvert um sig ca. 12 m2, og eldhús; lofthæðin er 2,30 m. Miðstöðvarofn er í hverju herbergi. Þegar komið er inn í íbúðina, slær á móti manni sterkri myglu- og fúalykt, sem er nokkuð jöfn um alla íbúðina, en þó mest í herbergi því, sem veit í norðaustur. Við athugun sést, að allir veggir í íbúðinni, jafnt inn- sem útveggir, eru stórskemmdir af raka og myglu og voru flestir blautir við snertingu, er skoðun fór fram. Loftin voru einnig rök, og í eldhúsi og anddyri lak úr þeim stórum dropum. Allir skápar og hirzlur voru rennvot og mygluð og alls ekki hæf til geymslu matvæla eða fatnaðar og annarrar búslóðar. Gólfdúkar allir eru rakir og víðast hvar í hornum uppétnir af raka og fúa. Allt innbú fjölskyldunnar er meira og minna skemmt af raka og myglu. Af ofangreindum ástæðum verður að telja íbúð þessa mjög óholla og heilsuspillandi og alls óhæfa til íbúðar í núverandi ástandi.“ (Og síðast er undirskrift læknisins.)
Fleiri slík vottorð væri hægt að kunngera, ef ástæða þætti til, en þetta eitt er nóg, og það er harður dómur um þjóðfélagsástandið í dag, að annað eins og þetta skuli viðgangast.
En hver er þá íbúðarþörfin? Hvað væri þörf á að byggja mikið til þess að sjá fólksfjölguninni fyrir hæfilegu húsnæði og jafnframt til þess að afmá þennan svívirðingarblett af íslenzku þjóðfélagi, sem felst í hinum heilsuspillandi íbúðum, sem fjöldi fólks á nú við að búa?
Mannfjölgun í kaupstöðum og kauptúnum er nú árlega um 1600 manns í Reykjavík um 1250 manns. Það lætur því nærri, að í kaupstöðum og kauptúnum muni þurfa að byggja árlega, eins og nú háttar, um 400 íbúðir til þess að fullnægja fólksfjölguninni. En á næstu árum er einnig óhjákvæmilegt að byggja nýjar íbúðir yfir a. m. k. 6500 manns í kaupstöðum og kauptúnum, eða um það bil 400 íbúðir á ári eða 1600 íbúðir alls. Þetta jafngildir því, að óhjákvæmilegt sé að byggja árlega, t. d. á næstu fjórum árum, um 800 íbúðir á ári. Þetta er miklu meira en gert hefur verið, en er óhjákvæmilegt, ef fólksfjölgunin á að eiga kost á sómasamlegu húsnæði og ef þessi smánarblettur, sem hið heilsuspillandi húsnæði er, á að hverfa af þjóðfélaginu.
Þetta mun ýmsum þykja há tala, 800 íbúðir á ári í næstu fjögur ár. En skyldi hér vera um skýjaborgir að ræða? Er þetta framkvæmanlegt eða er það óframkvæmanlegt?
Ef gert er ráð fyrir, að byggðar verði hæfilegar íbúðir, t. d. 300 m3 íbúðir, sem verður að kallast mjög sæmilegt fjölskylduhúsnæði, þá mundu 800 íbúðir kosta um 160 millj. kr., miðað við núverandi byggingarkostnað, eða 200 þús. kr. hver íbúð. Hvað er þetta mikil fjárhæð? Til þess að hugleiða, hvort íslenzka þjóðin hefði efni á því að verja 160 millj. kr. á ári í næstu fjögur ár í íbúðarhúsabyggingar, verðum við að gera okkur grein fyrir því, úr hverju þjóðin hefur að spila. Verðmæti þjóðarframleiðslunnar má á þessu ári telja um 2500 millj. kr. En þjóðin hefur á þessu ári úr meiru að spila en verðmæti framleiðslu sinnar. Hún hefur tekið lán erlendis, og hún fær erlendis styrk, gjafir í formi ýmiss konar vöruafhendinga. Þessar fjárhæðir munu í ár nema um 200 millj. kr. Á þessu ári hefur því íslenzka þjóðin úr að spila 2700 millj. kr., en gjaldeyristekjur hennar voru í fyrra 963 millj. 160 millj. kr. til íbúðarhúsabygginga eru því ekki nema 6% af því verðmæti, sem þjóðarbúið, þjóðin í heild, hefur úr að spila á yfirstandandi ári. Þegar þetta er athugað, verður greinilega ljóst, að áætlun um byggingu 800 íbúða á ári í fjögur ár er fjarri því að vera loftkastalakennd. Við getum líka athugað, hver fjárfestingin muni verða í ár undir stjórn fjárhagsráðs. Það er talið, að hún muni verða um 500 millj. kr., þar af 114 millj. kr. í íbúðarhúsabyggingum á landinu öllu, en af þessum 114 millj. mun verða byggt fyrir 83 millj. í kaupstöðum og kauptúnum. Það þarf því ekki nema tæpar 80 millj. í viðbót við það fé, sem nú þegar í ár á að verja til byggingar íbúða, til þess að unnt yrði að gera það átak, sem fælist í byggingu 800 íbúða á ári. Aðeins 80 millj. kr. viðbótarfé þarf að útvega, til þess að þetta mesta verkefni, sem nú bíður í íslenzku þjóðfélagi, yrði leyst. Það er ekki nema 3% af því verðmæti, sem þjóðin í heild hefur úr að spila, sem þarf að tryggja íbúðarhúsabyggingum til viðbótar því, sem þeim er nú tryggt, og það eru ekki nema 40% af þeim 200 millj., sem við fáum á þessu ári erlendis frá til viðbótar við það, sem okkar eigin vinna leggur til þjóðarbúsins.
Nú má auðvitað gera ráð fyrir því, að þeir, sem byggja, leggi sjálfir fram nokkurn hluta þess kostnaðar, sem nauðsynlegur er við byggingarnar. Margir hverjir, sem byggja, eru sem betur fer það efnað fólk, að það þarf ekki að vera upp á lánsfjármarkaðinn komið. Það á sjálft fé, sparað fé eða eignir, sem það getur lagt til greiðslu byggingarkostnaðarins. Ef gert er ráð fyrir því, að þeir, sem byggja, leggi sjálfir fram að meðaltali um 1/5 hluta byggingarkostnaðarins, 160 milljónanna, sem 800 íbúða bygging kostar, þá þarf að útvega 128 millj. kr. lánsfé til þessara framkvæmda, eða um 5% af verðmæti þjóðarframleiðslunnar. Er ekki öllum hv. þm. ljóst, að þetta er verkefni, sem er vel leysanlegt, ef viljann vantar ekki?
Gildandi löggjöf um opinbera aðstoð við íbúðarhúsabyggingar er mjög góður rammi til að leysa slíka stóráætlun um lausn á húsnæðismálunum samkvæmt, þ. e. a. s. ef 3. kafli laganna, sem undanfarin ár hefur verið felldur úr gildi eða frestað gildistöku á, er látinn taka gildi aftur, en hann fjallar eins og kunnugt er um íbúðarhúsabyggingar sveitarfélaga, og ef bætt er úr lánsfjárskortinum. Í gildandi lögum um íbúðarhúsabyggingar er gert ráð fyrir því, að byggingarmál þjóðarinnar séu fyrst og fremst leyst þannig: með byggingu verkamannabústaða, með byggingum samvinnufélaga, með smáíbúðabyggingum og byggingum sveitarfélaga, auk þess sem einstaklingar byggja af sjálfsdáðum. Þetta er skynsamlegur og eðlilegur grundvöllur á að byggja, og þau ákvæði, sem eru í gildandi lögum um opinbera aðstoð við menn, sem vilja byggja innan þessa ramma, í byggingarfélögum verkamanna, í byggingarsamvinnufélögum, í smáibúðabyggingum, og kaupa eða leigja byggingar, sem sveitarfélög reisa, eru mjög eðlileg og réttmæt. Það, sem vantar, er að tryggja þessum stofnendum, sem löggjafinn hefur gert ráð fyrir að hefðu forgöngu um að leysa byggingarmálin, nægilegt fé til framkvæmdanna. Þess vegna er það aðalatriðið í því frv., sem hér er nú til 1. umr. og við flytjum, þm. Alþfl., hér í hv. d., að gera ráðstafanir til þess, að þessar stofnanir fái það fé, sem þær mundi skorta, til þess að 800 íbúðir yrðu byggðar á ári í næstu fjögur ár.
En þær ráðstafanir, sem frv. fjallar um í þessu sambandi, eru þessar: Gert er ráð fyrir því, að byggingarsjóður verkamanna fái framvegis, eins og hann fékk samkv. fyrstu lögum um þann sjóð, hálfan tekjuafgang Tóbakseinkasölu ríkisins, en hann mundi á næsta ári nema um 19½ millj. kr. Í öðru lagi er gert ráð fyrir því, að settar skuli reglur um, að ýmsar stofnanir og tryggingarfélög, sem veita lán til framkvæmda, skuli láta skuldabréf byggingarsjóðs verkamanna og byggingarsamvinnufélaga sitja fyrir kaupum sínum á verðbréfum upp að vissu marki. En þessar stofnanir ráðstafa nú árlega stórfé til ýmissa verðbréfakaupa. Með tilliti til þeirrar brýnu þarfar, sem er á því að leysa íbúðarhúsabyggingarvandamálið, virðist sjálfsagt, að byggingarsjóður verkamanna og byggingarsamvinnufélög hafi forgangsrétt á því fé, sem þessar stofnanir hvort eð er festa til langs tíma. Þá er enn fremur gert ráð fyrir því, að settar verði reglur um lánveitingar banka og annarra peningastofnana til þess að koma því til leiðar, að þessar stofnanir, sem fara með langmestan hlutann af lánsfé þjóðarinnar, geri samræmt átak í þágu byggingarmálanna, þannig að þær kaupi skuldabréf byggingarsjóðs og byggingarsamvinnufélaga og bankavaxtabréf veðdeildarinnar upp að vissu marki og tryggi auk þess nokkurn hluta af því fé, sem þau lána hvort eð er út, í þágu byggingarframkvæmdanna. Þá er og gert ráð fyrir því, að lánadeild smáíbúða fái 5 millj. kr. árlega úr ríkissjóði á næstu árum. Enn fremur er ráð fyrir því gert, að veðdeild Landsbanka Íslands verði endurskipulögð. Veðdeildin hefur nú á undanförnum árum verið því nær dauð stofnun og ekki komið að haldi við útvegun fjár til byggingarframkvæmda. En veðdeildin var á sínum tíma hin merkasta stofnun og lyftistöng undir þeim miklu byggingarframkvæmdum, sem gerðar voru hér og annars staðar í byrjun þessarar aldar, en henni er nú þannig komið, að að henni er mjög lítil stoð við lausn byggingarvandamálsins. Þess vegna er hér gert ráð fyrir því, að gefinn skuli út nýr flokkur bankavaxtabréfa og lánaðar allt að 350 kr. gegn 1. veðrétti á rúmmetra, en einnig skuli heimilt að veita lán til að ljúka byggingu eða greiða eftirstöðvar af byggingarkostnaði, allt að 100 kr. gegn 2. veðrétti og 50 kr. gegn 3. veðrétti, ef veðdeildin hefur ekkert lánað gegn 1. veðrétti, en þessi bréf eiga síðan bankar og aðrar peningastofnanir að kaupa upp að vissu marki fyrir það fé, sem þær hvort eð er verja til útlána. Vonir stæðu til þess, að með þessum ráðstöfunum mundi vera hægt að tryggja þessum stofnunum, sem um er að ræða, þ. e. a. s. byggingarsjóði verkamanna, byggingarsamvinnufélögum og sveitarfélögum, verulegan hluta þeirra 128 millj., sem útvega þarf í lánsfé alls vegna byggingar 800 íbúða á ári. En gera má ráð fyrir, að eitthvert fé mundi vanta. — það er ógerningur að áætla, hversu mikið, — og er þá gert ráð fyrir því, að ríkissjóður taki lán innanlands, allt að 50 millj. kr., til þess að sjá stofnununum fyrir því fé, sem þær fengju ekki með hinu mótinu. Nú hafa lántökur innanlands undanfarin ár reynzt erfiðar, og því er gert ráð fyrir því, að takist ríkissjóði ekki að afla nauðsynlegs lánsfjár innanlands, — og skal það vera eins konar þrautalending, — þá skuli ríkissjóði heimilt að taka allt að 50 millj. kr. lán erlendis, til þess að það sé endanlega tryggt, að hægt yrði að framkvæma þessa 800 íbúða áætlun. Ég hygg, að heimild handa ríkisstjórninni til að taka erlent lán mundi hafa mjög holl áhrif á banka og aðrar peningastofnanir í þessu sambandi, þ. e., ef bankarnir og peningastofnanirnar vissu það, að ef þær vildu ekki taka að sér að sjá þessum byggingaraðilum fyrir nægilega miklu fé til þess að framkvæma þessa áætlun um 800 íbúðir á ári, þá yrði þrautalendingin erlent lán. Hér eru allir íslenzkir bankar og allar mikilvægar peningastofnanir opinber eign. Það er því augljóst mál, að ef þær hafa vilja til að láta þessa brýnustu þörf þjóðarinnar ganga fyrir öðrum þörfum, þá er möguleiki á því að gera miklu stærra átak en gert hefur verið undanfarin ár. Ef yfirstjórn bankanna sæi, að ríkisvaldinu er full alvara að láta byggja 800 íbúðir á ári í næstu fjögur ár, svo mikil alvara, að hún ætli að taka erlent lán til þess að tryggja framkvæmd þessarar áætlunar, þá er ég í engum vafa um, að áhugi bankanna mundi verða mun meiri á því að tryggja þessum nauðsynlegu framkvæmdum þann forgang, sem þær eiga skilið.
Í frv. er svo enn fremur gert ráð fyrir ýmsum ráðstöfunum til þess að auðvelda þeim, sem í byggingarframkvæmdum standa, að koma íbúðum sínum upp með sem ódýrustum og hagkvæmustum hætti, auk þess sem gert er ráð fyrir því, að ríkið hafi forgöngu um að skipuleggja sem bezta hagnýtingu á vinnuafli og efni í þágu byggingarframkvæmdanna, en á því er enginn vafi, að á engu sviði íslenzkrar efnahagsstarfsemi á sér nú stað jafnmikil sóun á verðmætum, efni og vinnukrafti eins og einmitt í byggingarmálunum. Það hefði án efa verið hægt á undanförnum árum og væri enn hægt að ná miklu meiri árangri, þ. e. a. s. fá miklu fleiri íbúðir fyrir þær vinnustundir, sem notaðar hafa verið, og fyrir það efni, sem notað hefur verið, ef um skynsamlega heildarskipulagningu í byggingarframkvæmdunum hefði verið að ræða, ef það hefði verið tryggt, að efni væri keypt í sem stærstum stíl, og einstakir hlutar, sem til húsbygginganna þarf, hefðu verið framleiddir í fjöldaframleiðslu hér innanlands og náin samvinna hefði verið milli þeirra aðila, sem byggingarframkvæmdirnar hafa annazt. Ýmsar þjóðir hafa sýnt það, svo sem Þjóðverjar, að geysilegum árangri er hægt að ná í því að lækka byggingarkostnað með því að efna til stórframkvæmda á byggingarsviðinu, en framkvæmdir Þjóðverja við endurreisn lands síns á byggingarmálasviðinu eru hinar allra merkustu og sá árangur, sem þeir hafa náð í því að lækka byggingarkostnað, einmitt með því að hagnýta vinnuaðferðir stórframleiðslunnar við íbúðarhúsagerðina, hafa sýnt, að stórkostlegum árangri má ná með þessum hætti. Hér eru verkefnin að vísu ekki eins stór, ekki skilyrði til jafnmikillar stórframleiðslu og meðal stórþjóðar, og þá einkum og sér í lagi í borgum, sem reisa þarf úr rústum, en engu að síður er á því enginn vafi, að miklum árangri mætti ná í sambandi við skynsamlega lausn húsnæðisvandamálsins, ef meira væri gert til þess að tryggja vinnuaðferðir stórrekstrarins í þágu byggingarframkvæmdanna.
Að svo mæltu leyfi ég mér að óska þess, að frv. sé vísað til 2. umr. og til hv. heilbr. og félmn.