23.10.1953
Neðri deild: 9. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 347 í C-deild Alþingistíðinda. (2545)

58. mál, áburðarverksmiðja

Einar Olgeirsson:

Herra forseti. Þetta frv., sem hér liggur fyrir, miðar að því, eftir skýringu hv. frsm., hv. 8. landsk., að gefa bændum og þeirra samtökum nokkru meira vald en hann telur að þeir nú hafi í stjórn áburðarverksmiðjunnar. Ég held það sé nauðsynlegt fyrir okkur að athuga dálítið nánar, þegar svona mál eru flutt hér, hverjar afleiðingar mundu verða af samþykkt svona frv., þó að ég gangi nú kannske ekki beint út frá því, að hv. flm. hafi ætlazt til þess, að það yrði samþykkt í þessu formi. Mér heyrðist það nú á undirtóninum í ræðu hv. frsm., að þetta væri frekar ætlað til að stríða vissum aðilum hér á þinginu heldur en til þess að fást samþykkt.

Það er eitt, sem ég vildi taka fram í upphafi út af einu orði, sem féll hjá hv. frsm. Hann sagði, að bændur mundu bera hita og þunga af verksmiðjunni. Ég veit ekki alveg nákvæmlega, hvað hann á við með þessu. Ég veit ekki, hvort það er eitthvað svipað og einn hæstv. núverandi ráðh. sagði hér í fyrra, að bændur mundu með ánægju borga hærra verð fyrir íslenzka áburðinn en fyrir þann útlenda og ef áburðarverksmiðjan þyrfti þess vegna á því að halda að setja hátt verð, þá mundi þess vegna verðið verða hærra til bænda og bændur bera þannig hita og þunga af þessu. Ég hef nú satt að segja ekki haft trú á því, að verðlagið á áburðinum yrði ákveðið þannig, jafnvel þó að þess væri full þörf frá sjónarmiði verksmiðjunnar. Ég býst við, að bændur mundu nefnilega aldrei sætta sig við það. En sé kleift að láta þessa verksmiðju, sem nú er að komast upp, framleiða áburðinn með sama verði og hann er erlendis, þá er það fyrst og fremst af einni ástæðu, og það er af þeirri ástæðu, að þessi verksmiðja kemur til með að fá rafmagn á sama verði og hún mundi fá það í Noregi, eins og nýju norsku verksmiðjurnar fá það. Það þýðir, að Sogsvirkjunin lætur þessari áburðarverksmiðju rafmagn í té með svo lágu verði, að raunverulega er verið að gefa með því til áburðarverksmiðjunnar. Það verður alveg ljóst, ef menn athuga, að meira en helmingurinn af öllu því orkumagni, sem nýja Sogsvirkjunin kemur til með að framleiða, fer handa áburðarverksmiðjunni, þegar hún verður komin í gang. Til þess að framleiða það orkumagn hefði þurft það raforkuver, sem væri eins og helmingurinn af núverandi Írafossvirkjun. M. ö. o.: Það hefði kostað um 100 millj. kr. að koma upp orkuveri, sem gat framleitt nægilegt handa áburðarverksmiðjunni. Af þeim 190 millj., sem við verðum líklega að reikna með alls að Írafossvirkjunin kosti, fara raunverulega um 100 millj. til þess að framleiða það rafmagn, sem nú er framleitt handa áburðarverksmiðjunni. Þau lán, sem ríkið lætur Sogsvirkjunina fá úr mótvirðissjóði, eru með 5½% vöxtum. Það þýðir, að vextirnir, sem verður að borga af 100 millj. kr., sem þyrfti að hafa til raforkuvers handa áburðarverksmiðjunni, eru 5½ millj. kr. á ári. Verðið á rafmagninu, sem áburðarverksmiðjan fær frá Sogsvirkjuninni, er um 3 millj. kr. á ári. Og þessir samningar eru kúskaðir í gegn með pressu ofan frá, frá ríkisstj. og Ameríku, þannig að það er framlengt til 15 ára, án þess að Sogsvirkjunin hafi nokkra vissu fyrir að geta sómasamlega staðið undir því að láta þetta rafmagn á þessu verði nema í næstu þrjú ár. M. ö. o.: Þeir, sem bera hita og þunga af því að halda þessari áburðarverksmiðju uppi. eru fyrst og fremst neytendurnir hér í Rvík og á Suðvesturlandi. með því að láta áburðarverksmiðjunni í té í fyrsta lagi það ódýrt rafmagn. að hvað það snertir ættum við að geta verið samkeppnisfærir við nýjar norskar verksmiðjur. og í öðru lagi að láta það mikið af því magni. sem framleitt er af raforku hér sunnanlands, í té, að raunverulega er helmingurinn af Sogsvirkjuninni gerður fyrir áburðarverksmiðjuna. Það er ákaflega mikill misskilningur, þegar verið er að tala um það. að bændur landsins hafi þannig séð verið settir hjá hvað raforkumálin snertir. Ég vil bara taka það fram, að af þeim tæpum 200 millj., eða 190 millj., sem Sogsvirkjunin kostar, þá eru um 100 millj. fyrir áburðarverksmiðjuna og fyrir bændur landsins. Áburðarverksmiðjan sjálf kostar um 125 millj. kr. raforkuverið fyrir hana í viðbót 100 millj., það þýðir, að um 225 millj. af því fé. sem ráðstafað hefur verið nú undanfarið. er þannig beinlínis fyrir framleiðslu handa bændum. Ég vil taka þetta fram í sambandi við það, sem stundum er verið að halda fram, að Reykvíkingar gíni yfir öllu. Og ég flutti hér í fyrra einmitt till. um, að það yrði séð fyrir. að rafmagnsvirkjanir yrðu nægilega fljótar hér, því að ef það verður ekki, þá mun ástandið verða þannig innan skamms í Rvík. að hér verður að framleiða með olíu rafmagn á 30 aura kwst., þegar áburðarverksmiðjan fær það á 1 eyri kwst. — Þetta er nú aðeins til að taka það fram. að þeir aðilar, sem bera hitann og þungann af þessu, eru a. m. k. til að byrja með neytendurnir hér í Rvík og á Suðurlandsundirlendinu, hvernig sem verður svo. þegar farið verður að ráðstafa þessu í framtíðinni.

Þá er annað, sem ég vildi gera athugasemd við í ræðu hv. frsm. Hann sagði, að það hefðu verið ýmsir peningamenn í Rvík og eitt fyrrverandi heiðarlegt fyrirtæki. — ég býst við, að hann hafi átt við Samband ísl. samvinnufélaga, — sem hafi heimtað að fá að kaupa þessi hlutabréf. Gangur málanna var sá, að það var Samband ísl. samvinnufélaga, sem heimtaði að fá að kaupa öll hlutabréfin og ætlaði að kaupa þau öll og borga þau með ávísun á Landsbankann. Það var ósköp þægilegur máti að gera hlutina á að gefa út eina litla ávísun upp á 4 millj. á Landsbankann og fá fyrir hana hlutabréfin í staðinn og ráða áburðarverksmiðjunni. Hins vegar er það svo, að ýmsir menn hér í Rvík, sérstaklega iðnrekendur, munu hafa verið eitthvað smeykir við það, að vald eins ákveðins flokks, m. ö. o. Framsfl., sem ég hef nú ekki orðið var við að hv. frsm. elskaði neitt, yrði nokkuð mikið með því, að Samband ísl. samvinnufélaga eignaðist öll hlutabréfin í áburðarverksmiðjunni. Þess vegna stóðu lengi deilur í ríkisstj. um það, að það dygði ekki að láta Sambandið kaupa fyrir peninga Landsbankans öll hlutabréfin í áburðarverksmiðjunni, heldur yrði að kúska það fram, að ákveðnir peningamenn í Rvík fengju líka að leggja þarna eitthvað fram. Nú held ég, að þessir peningamenn hafi yfirleitt nóg annað með sína peninga að gera. Samt sem áður hafa þeir nú á endanum borgað þetta, en það verið skorið niður, sem Sambandið fékk að leggja fram í þetta. Þannig mun því hafa verið jafnað nokkurn veginn, að framlög félags peningamannanna annars vegar og eins og hv. frsm. sagði, hins fyrrverandi heiðarlega fyrirtækis hins vegar væru nokkuð jöfn. Þannig stendur þetta núna, og á þetta höfum við deilt mjög skarplega.

Ég skil alveg þann tilgang hv. frsm., að hann muni vilja koma í veg fyrir. að eitthvert svona fyrirtæki, sem hann virðist hafa ímugust á, nái tökum á áburðarverksmiðjunni. En er girt fyrir það með 1. gr. í þessu frv.? Það er ákveðið að það skuli leita eftir þátttöku bænda og félags- og stéttarsamtaka bænda.

Í fyrsta lagi á að leita eftir þátttöku bænda. Hvað þýðir það? Það þýðir. að svo og svo mikið af bændum getur lagt fram þarna hlutafé. Hver er nú okkar reynsla í sambandi við svona nokkuð? Reynslan er sú, að ef bændur hafa sérstaka aðstöðu hvað þetta snertir, þá hagnýtir venjulega Sambandið sér slíka aðstöðu með þeim pólitísku tökum, sem það hefur á stórum hluta bændastéttarinnar til að skapa sér aðstöðu í gegnum hana. Það er ekki langt síðan S. Í. S. hafði menn á launum til þess að ganga hér út um allt landið til að kaupa hlutabréf. Ég held ekki, að bændur hafi haft sérstakan áhuga í því sambandi, en ég held. að það hafi verið keypt af bændum eða náð af bændum til Sambandsins. Og ég er ákaflega hræddur um, ef maður ræðir þetta nú í alvöru og það er bezt að gera það nú, af því að það hafa komið fram, eins og frsm. tók réttilega fram, till. frá ýmsum samtökum, — ég er hræddur um. að þetta yrði bara til þess, að einmitt S. Í. S. og þeir, sem í því drottna nú þ. e. innsta klíka Framsfl. — næðu þarna enn meiri tökum en þeir hafa núna.

Í öðru lagi á að leita til félags- og stéttarsamtaka bænda. Hvernig yrði skilið „félags- og stéttarsamtaka bænda“? Yrðu kaupfélög, t. d. hin og þessi kaupfélög, sem fyrst og fremst væru bændakaupfélög, ekki með dómi úrskurðuð sem félagssamtök bænda? Ég spyr af því, að ég er ekki alveg viss í því. En ég er ákaflega hræddur um, að það geti verið litið þannig á það, að kaupfélög hefðu alveg fullan rétt til þess að kaupa hlutabréf með þessu móti, og öll vitum við, hvers konar tök Samband ísl. samvinnufélaga hefur nú á kaupfélögunum, — þá er ég hræddur um, að það væri komið svo, að Samband ísl. samvinnufélaga væri komið þarna inn um bakdyrnar, en mér virtist nú vera tilgangurinn hjá hv. flm. að hindra, að það kæmist inn um forstofudyrnar. — Um stéttarsamtök bænda, sem mér skildist hann nú sérstaklega eiga við, þeirra fagsamtök, sem líka hafa sérstaklega gert kröfu um þetta efni, verð ég að segja, að það er hlutur, sem ég kann ekki við, að Stéttarsamband bænda, þ. e. þeirra faglega samband, sé eigandi að hlutabréfum í rekstrarfyrirtæki. Ég kynni illa við það t. d. með verkalýðsfélög, að þau væru eigandi að hlutabréfum í slíku fyrirtæki. Það er ákaflega varhugavert spursmál að setja stéttasamtökin beint inn í slík fjármálafyrirtæki. Það á heldur að hafa sérstök samtök, ef maður endilega vill hafa það, eins og bændur hafa með sínum mjólkursamlögum eða kaupfélögum eða slíku, til þess að beita á sviði fjármálastarfseminnar beint.

Hins vegar er með 2. gr. ríkissjóði upp á lagt, eins og er líka í því frv., sem við sósíalistar flytjum hér í hv. d., að innleysa hlutabréf annarra hluthafa. Því er ég út af fyrir sig alveg sammála í þessu frv. En ég er hræddur um, að afleiðingin af þessu frv. yrði sú, að í staðinn fyrir, að Framsfl. hefur ekki alveg 100% völdin í áburðarverksmiðjunni, eins og nú standa sakir, þá fengi hann það með þessu frv. Hins vegar skil ég ákaflega vel, að það yrði heljarmikil klípa, sem Framsfl. kemst í, þegar hann horfir framan í svona frv., og ég ann honum þess vel.