29.10.1953
Neðri deild: 13. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 360 í C-deild Alþingistíðinda. (2559)

65. mál, friðun rjúpu

Flm. (Jón Pálmason):

Herra forseti. Eitt af því, sem talið hefur verið — og það með nokkrum rétti — að sé að gerast nú á síðari árum, er það, að það sé meira og meira verið að ganga á sum atriði í náttúruauðæfum okkar lands, og er þar ekki sízt um að ræða, að menn eru almennt þeirrar skoðunar, að fuglalífið í landinu fari heldur þverrandi og það af ýmsum ástæðum, en þó einkum þeim, að ránfuglar og rándýr og kannske þó það rándýrið, sem á þessu sviði er hættulegast og er maðurinn sjálfur, hafi gengið lengra á þessu sviði en hóf er að. Nú er það svo, að í okkar fuglalífi er ekki mjög mikið um nytjafugla, en þeir mestu nytjafuglar, sem hér hafa verið á okkar landi, eru aðallega tvær tegundir, þ. e. æðarfugl og rjúpa. Æðarfuglinn er nú, eins og kunnugt er, alfriðaður, og dugir þó ekki vel til vegna þess, hve hann er eftirsóttur. Varðandi rjúpuna, þá hafa um það verið nokkuð harðar deilur oft hér á þingi, hvort ætti að friða hana og að hve miklu leyti ætti að friða hana, og ýmsum undarlegum skoðunum haldið fram á því sviðl. Nú hef ég, eftir að hafa kynnzt því, hvernig með þessi mál er farið, þegar á að fara að ræða þau og taka til ákvörðunar á Alþ., þótzt sjá, að það mundi ganga örðuglega að koma fram breyt. til batnaðar í þessu efni, ef það ætti að byggjast á lagasetningu, sem Alþ. setti, og ættu að vera gildandi ákveðin lög. Þess vegna hefur mér dottið í hug, eins og tekur sig út í því frv., sem hér liggur fyrir á þskj. 81, að veita stjórnum héraðanna vald til þess að taka ákvarðanir um þessi efni með samþykktum, þannig að það sé lagt í vald sýslunefndar og hreppsnefnda innan hvers héraðs eða þeirra héraða, sem landfræðilega eiga sameiginlegra hagsmuna að gæta á þessu sviði, að gera samþykkt um friðun rjúpu. Þessi aðferð hefur að vísu verið tekin í lög á sumum öðrum sviðum, að gera samþykktir innan héraðs um nokkur atriði, og fleira mætti og gæti komið til greina á því sviði en það, sem hér er farið fram á.

Eins og hv. þm. hafa kannske séð, sem hafa lesið þetta frv., þá er ætlunin með því sú samkvæmt 1. gr. þess, að það séu sýslunefndirnar, sem hafa þarna forgöngu, ef ástæða þykir til að gera breyt. í þessu efni, og ef sýslunefndir, ein eða fleiri saman, koma sér saman um að gera samþykkt um friðun rjúpu, þá skuli það vera borið undir almennan fund, sem haldinn er af hreppsnefndum, öllum hreppsnefndarmönnum á viðkomandi friðunarsvæði, hvort samþykktin skuli samþ. eða ekki. Ef slíkur fundur breytir samþykktinni, þá er til þess ætlazt, að sýslunefnd taki þær breytingar aftur á ný til athugunar, og ef hún fellst ekki á þær, þá bíður málið til næsta árs og hlýtur svo sömu meðferð eins og fyrir er mælt í 2. gr. frv.

Af því að hér er um tiltölulega einfalt mál að ræða og hér er lagt til að leggja þetta undir þá aðila, sem aðallega hafa hagsmuna að gæta, sem eru þeir menn í landinu, sem rjúpnalöndin eiga, þá sé ég ekki ástæðu til að fjölyrða öllu meira um það, ef ekki koma nein andmæli fram á þessu stigi, en legg til, að málinu verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og hv. landbn.