13.11.1953
Neðri deild: 22. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 397 í C-deild Alþingistíðinda. (2602)

85. mál, kosningar til Alþingis

Hannibal Valdimarsson:

Herra forseti. Þeir tveir ræðumenn, sem nú hafa tekið þátt í umr. um frv. Alþýðuflokksmanna um kosningabandalög, hafa verið að reyna að vera gamansamir. En þeim var vissulega ekkert gaman í hug. Það mátti bæði á þeim heyra og einnig sjá á þeim. Þeir voru í raun og veru miklu fremur sárir og argir yfir því, að slíkt frv. skyldi vera komið fram sem þetta, og það var alls ekki neitt gamanmál fyrir þeim að vera að ræða um það, enda var gamansemin öll á þann veg, að hún bar allt annan keim heldur en það að vera innan frá komin.

Það virðist vera nokkuð auðsætt mál, að ef það er rétt að stefna að því í stjórnarfarinu, að einn flokkur hafi hreinan meiri hluta og geti myndað sterka stjórn í landinu, þá sé jafneðlilegt og sjálfsagt, að tveir flokkar, sem hafa komið sér saman um að semja um ákveðna stjórnarstefnu fyrir kosningar, mótað þá stefnu í sínum kosningastefnuskrám, birt hana kjósendum og boðið upp á það, að stjórn verði mynduð á þeim ákveðna grundvelli eftir kosningar, — ef þessir tveir flokkar fái meiri hluta, þá sé jafneðlilegt, að þeir taki við stjórnartaumum, þó að þeir séu tveir flokkar um þessa einu og sömu yfirlýstu stefnuskrá, eins og um einn flokk væri að ræða. En það var svo grandvart, að þessir tveir gamansömu ræðumenn gerðu nokkra minnstu tilraun til þess að hrekja það, að þetta væri eðlilegt og sjálfsagt, og þetta er þó hið eina og sanna efni þessa frv. Þeir gengu sem sé alveg gersamlega fram hjá efni frv. og fóru út í sína kássugamansemi, sem sannarlega var nú heldur óbragð að á köflum.

Ég vil fyrst víkja að kássugamansemi hv. þm. A-Húnv. Hann segir, að frv. sé stefnt gegn Sjálfstfl. Þetta frv. er alveg byggt á grundvelli kosningalaganna og er hvorki stefnt gegn einum né neinum flokki. Allir flokkar hafa sömu aðstöðu til að notfæra sér ákvæði þessa frv. eins og hverra annarra gildandi laga, svo að það er vitanlega ekki verið að stefna þessu sem vopni gegn einum eða neinum. Það er til þess, að allir stjórnmálaflokkar á hverjum tíma geti farið eftir ákvæðum þessara laga, ef þetta frv. yrði lögfest.

Það má vel vera, að hv. þm. A-Húnv. telji það pólitískt réttlæti, sem sé sjálfsagt að varðveita í íslenzkri löggjöf, að flokkur, sem hefur yfir 12000 atkv., skuli bara hafa einn þm. kjörinn, aðrir frambjóðendur þess flokks skuli liggja dauðir í valnum, ekki koma til þings, það sé mesta skömm að því, að þeir komi til þings, af því að þeir hafi ekki hlotið meiri hluta í hverju einstöku kjördæmi um sig. En ég hygg nú samt, að það verði finnanlegir ýmsir menn í Austur-Húnavatnssýslu jafnvel, í kjördæmi hv. þm., sem viðurkenni það, að flokkur með á þrettánda þúsund atkv. eigi rétt á því að hafa jafnmarga þm. hlutfallslega miðað við fylgi sitt eins og t. d. Sjálfstfl. Núna er það svo, þrátt fyrir gildandi uppbótarákvæði, að Alþfl. er með rúmlega. 2000 kjósendur á bak við hvern sinn þingmann, — uppbótin er nú ekki fullkomnari en það, — meðan Sjálfstfl. er með miklu færri kjósendur á bak við hvern sinn þm.

Ekki getur Sjálfstfl. heldur státað af því, að hver þm. hans sé með meiri hluta kjósenda í viðkomandi kjördæmi á bak við sig. Hvað er t. d. með hv. formann Sjálfstfl.? Hann er með um þriðjung kjósenda í því kjördæmi á bak við sig. Eftir þeim reglum, sem nú gilda, er hann kosinn, en hann gæti alveg eins verið afturganga, pólitísk afturganga, eftir umsögnum þessara hv. þingmanna, og hann ætti að vera það, því að hann hefur engan meiri hluta kjósenda á bak við sig, hefur flotið á úreltum og ranglátum ákvæðum laga inn á þetta þing og hefði ekki átt að vera hér, hefði átt að vera líklega í kirkjugarði eða þar sem afturgöngur eru. (Grípið fram í.) — Hann ætti að vera í pólitískum kirkjugarði vitanlega, hv. þingmaður, eftir ykkar eigin kenningum, en ekki að óprýða hér söfnuðinn á Alþingi. Ég hef meira en þriðjung atkvæða á Ísafirði á bak við mig og ætti því síður heima í pólitískum kirkjugarði heldur en hv. formaður Sjálfstfl.

Annars veit ég ekki til þess, að Sjálfstfl. hafi ekki gert sér að góðu að fara eftir ákvæðum gildandi laga um uppbótarþingmenn. Ég veit ekki annað en Bjarni Benediktsson hafi verið í kjöri vestur á Ísafirði og fallið þar og síðar flotið hér inn á þing með þeim hætti, að Birni Ólafssyni var vikið úr sessi eitt kjörtímabil. Hann var hér pólitísk afturganga það kjörtímabil eftir munnsöfnuði þessara manna, og held ég, að hann hafi verið þeginn í ráðherrastólinn eftir það, kannske margafturgenginn. Mig minnir helzt, að það hafi fleiri ráðherrar Sjálfstfl. verið uppbótarþingmenn hér, verið sem sé pólitískar afturgöngur og verið samt settir ekki aðeins á almennan þingbekk á Alþ., heldur í ráðherrastóla. Ég veit ekki, hvað það á að þýða að fara lítilsvirðingarorðum um æðstu menn Sjálfstfl. og kalla þá pólitískar afturgöngur, af því að þeir halda, að þeir geti hitt þá flokka fyrir, sem samkv. núgildandi kosningalögum eru beittir meira ranglæti heldur en aðrir menn í landinu, og þess vegna er eðlilegt, að þeir beri fram frv. til l. um aukið jafnrétti, til þess að hinar mismunandi pólitísku skoðanir fólksins í landinu fái hlutfallslega umboð hér á Alþ. og ekkert umfram það.

Ef það ætti að vera eitthvert úrslitaatriði í þessu máli, að enginn ætti að vera hér á þingi, nema hann hefði meiri hluta í kjördæmi, — hvað þá um tvímenningskjördæmin? Þá ætti Jón á Reynistað, sá mæti þingmaður, alls ekki að vera hér á þingi, þá ættu þeir að vera búnir að útrýma honum héðan af þingi. Hann er búinn að sitja hér mjög lengi og með sæmd. Hann hefur ekki haft meiri hluta í Skagafjarðarsýslu á bak við sig. En á ákvæðum laga hefur hann flotið hingað inn og hefur alveg fyllt sinn sess hér þrátt fyrir það. Nákvæmlega á sama hátt væri hægt að lögfesta reglur um það, að flokkarnir hefðu sem jafnasta þingmannatölu á bak við sig miðað við fylgi sitt, alveg án tillits til þess, hvort viðkomandi flokkur hefði meiri hluta kjósenda á einhverju afmörkuðu svæði. Þannig hafa pólitískar afturgöngur verið hér í umboði Sjálfstfl., bæði sem þingmenn í tvímenningskjördæmum og sem uppbótarþingmenn, og hafa þessir flokkar ekki haft nokkurn hlut við það að athuga að senda sína menn hingað inn á þing á slíkum grundvelli. Öll þeirra gamansemi um þá hlið málsins er þess vegna út í hött, að svo miklu leyti sem hún ekki fyrst og fremst hittir þá sjálfa fyrir.

Hv. þm. A-Húnv. var að tala um, að það hefði verið gerð tilraun til kosningabandalags milli tveggja flokka í síðustu kosningum, því að það hafi verið samningar milli Alþfl. og Framsfl. um eins konar kosningabandalag í Ísafjarðarkaupstað, Dalasýslu og Skaftafellssýslu. Ég lýsi hv. þm. ósannindamann að þessu og bið hann að bera þá byrði, þangað til hann getur lagt fram sannanir á borðið fyrir því, að þessi kosningabandalög hafi átt sér stað og séu annað en hugarfóstur í hans eigin heila, enda er niðurstaðan sú, að í Ísafjarðarkaupstað kusu nokkrir framsóknarmenn mig, en langflestir af framsóknarmönnum á Ísafirði kusu Sjálfstfl. Þeir voru sem sé, vegna þess að flokkur þeirra hafði þar engan mann í kjöri, frjálsir að því, hvern aðalframbjóðandann þeir kusu, og veit ég ekki til, að nokkur pressa hafi verið á þá lögð á Ísafirði til þess að fylgja fremur frambjóðanda Alþfl. heldur en frambjóðanda Sjálfstfl. Þeir voru alveg á lausum kjala, þar sem þeirra flokkur hafði ekki mann í kjöri. Og þannig mun þetta hafa verið einnig í Skaftafellssýslu og Dalasýslu. Það hefur vissulega komið fyrir áður, að flokkar hafi ekki boðið fram í öllum kjördæmum, og það var það, sem gerðist hér. Alþfl. hefur í nokkrum undanförnum kosningum fengið ein 8 atkv. í Vestur-Skaftafellssýslu. Sannleikurinn er sá, að Alþfl kom þar ekki fram framboði og þar af leiðandi voru Alþýðuflokksmennirnir í Vestur-Skaftafellssýslu alveg lausir og óbundnir, og kusu sumir landslista Alþfl., en aðrir sennilega ýmist frambjóðanda Sjálfstfl. eða Framsfl. eða Sósfl. Þeir voru sem sé alveg óbundnir. Í Austur-Skaftafellssýslu komum við heldur ekki fram framboði. Við höfum ekki haft þar á landslista nema 4 atkv. í undanförnum kosningum nokkrum, og þar var ekki heldur maður í kjöri fyrir Alþfl. Við buðum fram í öllum kjördæmum nema fjórum. Það er sem sé alveg óþarft fyrir hv. fulltrúa Sjálfstfl. að fara að blanda þessu inn í og fara með ósannindi. Það heldur veikir tiltrú manna, sem á þá hlýða, til annarra atriða í ræðum þeirra, þegar þeir verða að standa við ósannindin um það, sem fyrir liggur. En vissulega sýnir það líka, í hvaða vandræðum þeir eru gagnvart þessu máli, og láta þá fjúka fleira en hollt er.

Hv. þm. A-Húnv. sagði, að þetta væri undarlegt frv., eitthvert undarlegasta frv., sem hefði komið fram hér á hv. Alþ. Það er upplýst og það er viðurkennt af hv. 5. þm. Reykv. (JóhH), að sams konar ákvæði hafi verið í lögum í öðrum löndum, í lýðræðislöndunum hérna í kringum okkur, í Noregi og Svíþjóð og Danmörku. Ákaflega eru þetta undarlegar lýðræðisþjóðir, að þær skuli hafa lögfest atriði, sem hér eru nú fram komin í frumvarpsformi. Mikið er þetta skrýtið. Það er von, að hv. þm. A-Húnv. falli í stafi yfir öðrum eins ósköpum, að það skuli koma fram í frumvarpsformi á Alþingi Íslendinga ákvæði, sem eru nákvæmlega sams konar þeim, sem hafa verið í lögum um langan tíma bæði í Noregi, Svíþjóð og Danmörku. Það er eins gott að vita það, að hv. þm. getur orðið hissa enn þá, getur orðið undrandi, og meðan menn geta orðið undrandi, eru þeir þó ekki alveg orðnir að steini.

Þá er það smekklegi kaflinn hjá hv. þm. A-Húnv. um kássuna, kássukenninguna. Ég má til með að víkja svolítið að henni. Þegar hann var staddur í þeim kjallaranum, þá tekur hann sem dæmi, að ef það hefði nú verið kosningabandalag t. d. í Borgarfjarðarsýslu í síðustu kosningum, þá hefði getað svo farið, að Pétur Ottesen, sem hefur setið hér á þingi síðan 1916, hefði nú verið leystur frá lengri þingsetu. Óskaplegt slys hefði það nú verið. Pétur er einn af mætustu þingmönnum, en hann er búinn að sitja hér í heilan mannsaldur, síðan 1916, og það hefði vissulega getað komið fyrir, að hann hefði nú hætt, slegið botninn í það að langa í þingkjörið. En hvers vegna hefði það skeð, ef það hefði nú verið kosningabandalag þarna? Af því að fleiri kjósendur hefðu fyrirfundizt í Borgarfjarðarsýslu, sem ekki vildu Pétur, sem hefðu samkv. fyrir fram auglýstu samkomulagi tveggja annarra flokka, sagt: Við viljum heldur kosningablokkina og frambjóðanda þann, sem er fyrir hana, — og þá hefði Pétur orðið að víkja fyrir vilja meiri hluta kjósenda í Borgarfjarðarsýslu. Hvað er undarlegt við þetta? Það er nefnilega það, að jafnvel Pétur Ottesen með sitt sterka fylgi og verðskuldaða í Borgarfjarðarsýslu hefur ekki meiri hluta atkv. í kjördæminu, er þannig einn af afturgöngunum, sem þessir hv. þm. voru að tala um áðan. Hann hefur ekki meiri hluta og er hér á Alþ. í góðum rétti þrátt fyrir það, þó að hann hafi ekki meiri hluta í sínu kjördæmi, en gæti fallið fyrir þeim meiri hluta, sem er á móti honum, ef það væru til lög um kosningabandalög. Og ég er ekkert viss um, að hann sé í neinum sterkari eða meiri rétti hér á Alþingi með þann minni hluta, sem stendur á bak við hann í Borgarfjarðarsýslu, heldur en sá maður, sem getur komið í stað hans með meira fylgi í kjördæminu heldur en Pétur hefur, sem skilaði honum þá hingað inn á þing eftir kosningabandalagsákvæðunum.

Þá kemur einmitt að líkingunni um kássuna. Með því að það er ekki ákvæði um kosningabandalög, þá kemur Pétur Ottesen hingað inn á þing. En hann er þar í minni hluta. En hann skal í þá samt. Hann skal inn á þing samt. Þess vegna má ekki lögfesta ákvæði um kosningabandalögin, því að þá yrði hann hér ekki inni með þessum minni hluta, en skal hér inn samt, og þess vegna berjast hv. flokksbræður hans á móti kosningabandalaginu, sem gæti orðið til þess, að hann flyti ekki hingað inn í krafti síns minni hluta. Og svo var tekið dæmi af hv. 2. þm. Eyf., sem hefur ekki meiri hluta í sínu kjördæmi. Í krafti núgildandi ákvæða skal hann inn samt, þó að hann hafi engan meiri hluta, og þeim ákvæðum má ekki breyta, því að þá væri hann hér í krafti einhverrar pólitískrar kássu. En það er miklu eðlilegra að hafa ákvæði, sem heimila honum að vera hér í krafti minni hlutans, og því má ekki breyta því í þessu tilfelli. Nei, Magnús Jónsson skyldi ekki í þá samt, hann færi ekki hingað inn á þing, ef það væri betur búið að tryggja rétt meiri hlutans í slíkum kjördæmum eins og Gullbringu- og Kjósarsýslu og Eyjafjarðarsýslu og Borgarfjarðarsýslu. Þessi dæmi eru ágætlega valin sem rök á móti þessum hv. mönnum. (Gripið fram í. ) Já, þá væruð þið líka alveg í fullum rétti að því, að þið sameinuðuzt við Framsókn, þannig hafið þið möguleika náttúrlega. Og svo eruð þið samt, þó að þið hafið möguleikana um væntanlegt kosningabandalag við Framsókn, að tala um, að þessu sé stefnt gegn ykkur. Nei eitt rekur sig á annars horn, eins og graðpening hendir vorn. Það er einmitt það, sem þarna hefur gerzt og gerist. Svo fór hv. þm. A-Húnv. að tala um nemendur í skóla og sagði, að eftir þessum reglum yrðu þeir lægstu í bekknum, ef einkunnum þeirra væri skellt saman, kannske hæstir. Jú, jú, en það er nú venjan, þegar tekin er meðaleinkunn nemenda, að þá er deilt í með tveimur, ef um tvo nemendur er að ræða, eða ef bara um tvær námsgreinar er að ræða og á að finna meðaleinkunn, þá er deilt í það með tveimur, svo að það var nú heldur óbragð þarna að kássunni, þegar hugsanagrautur hv. þm. A-Húnv. var borinn á borð svona í heldur ókræsilegum rétti. Ég held hann ætti ekki að bera þetta á borð oftar fyrir okkur. Það var farið að slá í þennan hugsanagraut, þegar kássan var borin fram. Sannast að segja var ræða hv. 5. þm. Reykv. (JóhH) og hv. þm. A-Húnv. (JPálm) hugsanagrautur og þannig kássa, sem farið var að slá í og ekki boðleg hér á hv. Alþingi Íslendinga.

En málið er stórpólitískt mál, og þess vegna á það skilið, að rætt sé um það í alvöru, og efni þess er ofur einfalt. Það er um það, að tveir flokkar, sem koma sér saman fyrir kosningar um ákveðna stefnu, sem þeir leggja fyrir kjósendurna, öðlast rétt til þess, að vilji kjósenda beggja flokka komi fram, og þeir frambjóðendur teljast kosnir, sem hljóta meira fylgi heldur en frambjóðandi nokkurs eins flokks, sem þeir eiga í höggi við, og þeir fulltrúar, sem þannig eru í minni hluta algerlega í sínum kjördæmum, eiga að víkja fyrir þeim frambjóðendum, sem hafa fengið tjáningu meiri hluta kjósendanna fyrir því, að þeir verði kosnir. Það er einmitt sú hugsun, að meiri hlutinn eigi að ráða, sem á að tryggja betur með þessu frv. heldur en nú er tryggt í gildandi l. Sú hugsun er vitanlega alveg þingræðisleg og lýðræðisleg, en hv. þm. Sjálfstfl. mótmæla, af því að þeir halda, að það geti verið á kostnað Sjálfstfl. Lýðræðisástin er ekki meiri en það, að þá skal grundvallarhugsun lýðræðis og þingræðis víkja, en það er um það og það atriði nálega eitt, sem við getum ekki orðið sammála. Ef það er eðlilegt, að einn flokkur, sem hefur eins atkv. meiri hluta, fái kosinn fulltrúa, þá er það alveg jafneðlilegt, að tveir flokkar, sem hafa markað ákveðna stefnu og kosið er um, fái sinn sameiginlega fulltrúa, ef hann samanlagt hefur eins atkv. meiri hluta yfir hinn. Ef hv. þm. treysta sér til þess að hnekkja þessu, þá eiga þeir erindi hingað til þess að ræða um þetta frv. og mega gera að gamni sínu, en að öðrum kosti er réttur þeirra hæpinn til þess.

Það hefur þótt hvimleitt á undanförnum árum, að í raun og veru hafa kjósendurnir að afstöðnum kosningum ekkert vitað, hvaða stjórn yrði mynduð eða um hvaða stefnu ríkisstj. kynni að verða mynduð. Og oft hefur það orðið svo, að þó að kjósendur hefðu vænzt frjálslyndrar umbótastefnu og ríkisstjórnar, sem túlkaði slíka stefnu, þá hefur farið svo, að þeir hafa fengið að sitja uppi með afturhaldsstjórnir kjörtímabil eftir kjörtímabil, og þeir þingmenn, sem hafa jafnvel boðað mesta róttækni fyrir kosningar, hafa síðan setzt í ráðherrastól við hliðina á heildsölum og bröskurum að afstöðnum kosningum, greinilega alveg þvert ofan í vilja kjósendanna. Væri nú ekki nær, væri það ekki lýðræðislegra og væri það ekki þingræðislegra, að kjósendurnir vissu um það fyrir kosningar, hvaða stjórnarstefnu væri verið að marka, hvaða ríkisstj. yrði mynduð, og það kæmi síðan að afstöðnum kosningum sem sjálfsagður hlutur, sem afleiðing af niðurstöðu kosninganna, hvers konar ríkisstj. yrði mynduð? Ég tel, að þetta liggi alveg í augum uppi og þurfi ekki einu sinni að svara slíkri spurningu. Það er auðvitað alveg sjálfsagt að gera þær breytingar á lögum, sem tryggja það, að kjósendur fái að vita fyrir kosningar um þá stefnu, sem á að ráða stjórnarmyndun, og að sams konar stjórn og lofað hefur verið í hinni túlkuðu stefnu fyrir kosningar sé eðlileg afleiðing af niðurstöðu kosninganna. Í þessu tilfelli, ef frv. Alþýðuflokksmanna yrði að lögum og kosningabandalag þeirra sigraði, þá kæmi ekki til neinnar stjórnarkreppu, það yrði gengið til stjórnarmyndunar strax að afstaðinni kosningu. Kjósendurnir gætu lagt að því grundvöllinn, hvernig stjórnarfarið yrði eftir kosningar, og eiga í raun og veru heimtingu á því að öllum lýðræðislegum venjum og reglum. Nú er slíkt ástand ríkjandi, að það er alveg óviðunandi að því er þetta snertir, og það eitt, þótt ekki væri annað, gerir það að nauðsyn að breyta lögum til þess að tryggja rétt kjósandans og vilja hans betur.

Ég skal svo ekki fjölyrða að sinni miklu meira um þetta mál. Ég tel, að þeir tilburðir, sem hv. þm. Sjálfstfl. hafa enn haft í frammi til þess að ræða þetta mál, hafi ekki borið neinn keim af rökræðum. Það var viðleitni til gamansemi, en sú gamansemi var svo misheppnuð, að það var auðséð, að hún kom ekki frá hjartanu og að mönnunum var ekkert gaman í hug, enda vita menn, að ástæðan til þess, að þetta frv. var ekki tekið á dagskrá dögum saman, var sú, að þeir voru að reyna að brölta við að finna einhvern lagaprófessor eða lögfræðing, sem fengist til þess að úrskurða, að þetta frv. stangaðist við ákvæði stjórnarskrárinnar og ætti því að vísa því frá, og pródúktið af því er nú komið, og það er búið að lýsa því hér úr forsetastóli, að þetta hafi komið fram. Sjálfstfl. er svo skíthræddur við þetta frv., að hann er að reyna að bjarga sér frá því, að þm. fái að taka afstöðu til frv., og vill láta vísa frv. frá út af því, að það rekist á einhver ákvæði stjórnarskrárinnar, en það hefur vissulega verið athugað líka af ýmsum dómbærum mönnum um þessa hluti og þ. á m. lagaprófessorum, og þeir, sem ég veit til að hafi rannsakað þetta gaumgæfilega, eru þeirrar skoðunar, að þetta sé innan ramma kosningalaganna og fari ekki inn á neitt það, sem stjórnarskráin banni, enda er andi frv. sá að tryggja betur anda lýðræðis og þingræðis, þannig að vilji kjósendanna fái betur notið sín en í núgildandi lögum. Auk þess er stjórnarskrá Íslands, eins og hún er nú, mjög mótuð með sama hætti og stjórnarskrár Norðurlandanna, stjórnarskrár Danmerkur, Noregs og Svíþjóðar, og þar hafa sams konar ákvæði og í þessu frv. eru verið í lögum. Sýnir það eitt, að þessi ákvæði samrýmast einmitt stjórnarskrám þessara landa. Og íslenzka stjórnarskráin er enn, af því að það er ekki búið að myndast við að semja enn þá íslenzku lýðveldisstjórnarskrána, í öllum aðalatriðum stjórnarskráin danska frá 1874. Vitanlega segja forsetar til um það og ef til vill þingheimur, hvort það þyki á rökum byggt, að frv. stangist við stjórnarskrána. En það sjá allir, að viðleitni Sjálfstfl. til þess að vísa málinu frá á þeim grundvelli, til þess að alþm. eigi ekki kost á að greiða um það atkvæði efnislega, túlkar hræðslu Sjálfstfl., þá hræðslu, sem kom fram í hinum misheppnuðu og miður smekklegu gamanyrðum þessara hv. þm., sem hér töluðu áðan.