16.11.1953
Neðri deild: 23. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 444 í C-deild Alþingistíðinda. (2612)
85. mál, kosningar til Alþingis
Flm. (Gylfi Þ. Gíslason):
Herra forseti. Það er ekki af því, að ég telji, að hv. 2. þm. Eyf. hafi flutt nokkur ný rök í málinu, að ég stend upp til að gera örstutta athugasemd, heldur miklu frekar til þess að leiðrétta eitt atriði, sem kom fram í hans ræðu. Hann virðist ekki hafa skilið frv. til fulls, þar sem hann endurtekur enn það, sem hann sagði í ræðu sinni á föstudaginn var, að með þessu frv. sé verið að lögleiða, að þingmaður verði kjörinn með atkvæðum kjósenda, sem hafa ekki kosið hann. Þetta er alger misskilningur hjá hv. þm. Reglurnar eru þannig, að ef tveir flokkar eru í bandalagi, þá veit kjósandi fyrir fram, að atkvæði hans getur orðið til þess að koma hvorum þeirra sem er á þing. Hann kýs annan frambjóðandann og hinn til vara. Hann veit það fyrir fram, að hvor þeirra sem er getur komizt á þing með atkvæði hans. Ef hann vill ekki, að annar en sá, sem hann beinlínis kýs, komist á þing með atkvæði sínu, þá hefur hann skilyrði til þess að koma í veg fyrir það. Það er skýlaust ákvæði í frv. um það, að kjörseðilinn skuli gera þannig úr garði, að ef kjósandi vill ekki, að hans atkvæði sé reiknað öðrum flokki en hann kýs, þ. e. a. s. bandalagsflokknum, þá merkir hann í þar til gerðan reit, þannig að kjósandi þarf, svo sem sjálfsagt er, aldrei að stuðla að því, að annar frambjóðandi nái kosningu en sá, sem hann vill gefa atkvæði sitt. Ef hann kýs bandalagsflokk án þess að gera þessa leiðréttingu, án þess að neyta þessa fyrirvara, sem honum er gefinn réttur til að neyta, þá felst í því yfirlýsing um það, að hann vill hvorn eða hvern sem er af bandalagsframbjóðendunum frekar en hvaða andstæðing sem er. Það er þannig fullkomin rökleysa að halda því fram, að þetta geti nokkurn tíma orðið til þess, að frambjóðandi nái kosningu með atkvæði kjósanda, sem hefur ekki greitt honum atkvæði, því að hann hefur til vara greitt atkvæði bandalagsframbjóðandanum, nema hann neiti því, að hann fái atkv. Til þess á hann að hafa rétt, og til þess hefur hann rétt samkv. frv. eins og það er.