09.11.1953
Neðri deild: 19. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 464 í C-deild Alþingistíðinda. (2636)

89. mál, olíueinkasala

Viðskmrh. (Ingólfur Jónsson):

Herra forseti. Ég hafði nú ekki búizt við því, að þessar umr. um olíueinkasölu snerust upp í það að verða spurningatími, en við nánari athugun finnst mér það ósköp eðlilegt, þar sem um þetta mál er að ræða, að hv. flm. (HV) hafi reynt að koma málinu inn á þessa braut, vegna þess að hann var búinn að segja allt, sem vildi segja um olíueinkasölu og ágæti hennar. Ég fyrir mitt leyti er fús á að svara fsp. þm., en þegar um fsp. er að ræða, þá eiga þær að koma í því formi, sem þingsköp mæla fyrir, og hv. þm., sem hafa verið hér í dag með fsp. til mín, geta komið með þær í því formi, sem þingsköp mæla fyrir.

Þó að ég skryppi hér fram í símann áðan, þá held ég, að hv. 3. landsk. (HV) geti fyrirgefið mér það; hann gerir það oft sjálfur. Það mun einnig teljast eðlilegt, þótt mér og öðrum ráðh. hafi leiðzt að hlusta á það, sem þessi hv. þm. hefur sagt. En ég skal gera það fyrir þennan hv. þm. að hlusta á hvert orð, sem hann segir í sambandi við olíueinkasöluna, og einnig þessar fsp., sem hann leggur hér fram, en ég mun ekki svara þeim, fyrr en þær koma fram í réttu formi.