09.11.1953
Neðri deild: 19. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 470 í C-deild Alþingistíðinda. (2641)
89. mál, olíueinkasala
Lúðvík Jósefsson:
Herra forseti. Ég tel mjög óeðlilegt og alveg óvenjulegt að verða ekki við ósk 1. flm. að frv. um að fresta umræðu þess og hefði eindregið óskað eftir því, að það hefði verið gert, þar sem umræðurnar hafa verið þannig, að þær kalla á meiri upplýsingar í málinu. Og vegna þess að ég er óánægður með það, hvernig orðið var við þessari beiðni, þá mun ég ekki greiða atkvæði á þessu stigi um málið.