09.11.1953
Neðri deild: 19. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 471 í C-deild Alþingistíðinda. (2645)

89. mál, olíueinkasala

Emil Jónsson:

Herra forseti. Ég er alveg sammála þeim, sem hér hafa fundið að því, að hæstv. forseti hefur ekki séð sér fært að fresta umr. En þar sem hann nú hefur tekið þá ákvörðun, að atkvgr. skuli fara fram um málið og því yrði stefnt í voða, ef menn sætu almennt hjá við þá atkvgr., þá sé ég, þó að ég sé óánægður með þessa meðferð málsins, ekki annað fært, til að þoka málinu þó áfram, en að segja já.