09.11.1953
Neðri deild: 19. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 471 í C-deild Alþingistíðinda. (2646)

89. mál, olíueinkasala

Hannibal Valdimarsson:

Herra forseti. Ég hafði óskað þess undir umræðu, að umr. yrði frestað, svo framarlega sem hæstv, ráðh. fengist ekki til að gefa hér svör, og það hefur hann ekki fengizt til að gera. Mín ósk stóð því óhögguð. Ég gekk út frá því, að það yrði orðið af hæstv. forseta við þeirri sjálfsögðu ósk flm. Ég harma því mjög, að þessu var synjað, og veit engin rök til þess. Ég vil þó umfram allt koma málinu til nefndar og ég lít á tregðu þm. til þess að greiða atkv., áður en forseti ákvað, að fram skyldi fara nafnakall, sem tjáningu þeirra um það, að þeir hefðu óskað fremur, að frestun hefði fengizt. Ég fagna hins vegar nafnakallinu, af því að það var full ástæða til þess af mér og öðrum hv. þdm., að þeir óskuðu nafnakalls, þótt ekki væri til annars en að það væri fest í þingskjölum, að enginn hæstv. ráðh. hefur fengizt þrátt fyrir ítrekaða viðleitni, sem nógsamlega kemur fram af umr., til þess að fá þá hér til vistar í d. nema viðskmrh., sem ekki átti með góðu móti annars kost en að koma hér til umræðunnar, en það kemur einmitt í ljós nú við nafnakallið, og er ástæða til þess að minna þm. á það, að þeir geta beitt því oftar en þeir gera að óska eftir nafnakalli til að skjalfesta fjarveru hæstv. ráðherra. En um nafnakallið og afstöðu mína segi ég að síðustu það, að til þess að koma málinu þó til n., en þar mun verða freistað að koma því úr n. til umræðu aftur, þá segi ég þó já.