26.11.1953
Neðri deild: 29. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 483 í C-deild Alþingistíðinda. (2665)

106. mál, togarasmíði innanlands

Flm. (Karl Guðjónsson):

Herra forseti. Það frv., sem hér liggur fyrir á þskj. 185, gerir ráð fyrir því, að haldið verði áfram nýsmíði togara og hafi ríkið forgöngu um það til að auka fiskiskipastól landsmanna og að hafin verði smíði togara innanlands. Togari er þess háttar framleiðslutæki, að hann gefur í erlendum gjaldeyri 5 millj. kr. á ári hverju að meðaltali eða því sem næst, ef afli hans er fluttur út algerlega óunninn, en ef aflinn er unninn hér í landi, frystur eða verkaður á annan hátt, þá má gera ráð fyrir, að það verðmæti, sem einn nýtízku togari skilar í erlendum gjaldeyri árlega, sé 10–12 millj., þ. e. a. s. meira en verðið á hverju skipi.

Nú hagar svo til að íslenzki togaraflotinn hefur þrátt fyrir allt ekki tekið þeirri framþróun, sem eðlilegt væri að hann hefði tekið á síðustu árum. Að vísu er alveg rétt, að keyptir hafa verið til landsins samtals 43 ágætir togarar á s. l. árum, þeir byrjuðu að koma til landsins 1947, og þeir síðustu þeirra munu hafa komið hingað á árinu 1950. En þegar við athugum það, að Íslendingar gerðu út 37 togara fyrir 20 árum, en í dag gera þeir út 4 togara, þá sjáum við, að þessi atvinnuvegur hefur ekki tekið þeirri þróun, sem eðlilegt væri. Það hafði reyndar verið svo allmörg ár, þangað til nýsköpunarstjórnin tók við völdum, að togaraskipastólinn fór minnkandi bæði að rúmlestatölu og að skipafjölda, og vil ég leyfa mér í því sambandi að nefna hér nokkrar tölur, sem teknar eru úr skýrslu frá Fiskifélagi Íslands.

Í árslok 1934 voru togarar í eigu Íslendinga samtals 37, og nam sá floti 12430 rúmlestum. Þeir voru yfirleitt allir gerðir út að staðaldri, en viðhald skipastólsins var ákaflega lítið, svo að togaraflotanum fór smám saman hnignandi. Árið 1940 eru togararnir ekki orðnir nema 35, og árið 1945 eru þeir aðeins 28, og þá er rúmlestatalan komin niður fyrir 10 þús. En á árinu 1947 taka nýsköpunartogararnir að koma í höfn, og þá byrjar aftur fjölgun togaranna, og rúmlestatalan fer mjög vaxandi. En gömlu skipin, sem fyrir voru, úreltust fljótar en menn grunaði, og má telja, að þau séu að mestu úr sögunni sem veruleg framleiðslutæki. Níu af gömlu togurunum eru enn á skipaskrá, eða voru í síðustu árslok, þannig að talið er, að togaraeign Íslendinga í árslok 1952 sé 52 skip, en þar af eru 9, sem ekki er hægt að telja með sem framleiðslutæki, nema þá að örlitlu leyti.

Togaraeign Íslendinga er nú 43 togarar, þegar aðeins eru taldir þeir, sem eru í nokkurn veginn stöðugri útgerð. Þetta þýðir það, að íslenzki togaraflotinn, ef hann er fullnýttur og afli hans er unninn sem mest innanlands, getur gefið 430–516 millj. kr. í erlendum gjaldeyri, en ef bætt væri við tíu skipum, þá mundi þetta væntanlega aukast upp í það, að verðmæti fullunnins togarafisks mundi geta numið 530–636 millj. kr. á ári. Það er þess vegna greinilegt, að ekkert af því, sem Íslendingar reka, er eins þýðingarmikið undirstöðuatriði eins og einmitt togaraútvegurinn, og megum við sízt láta það viðgangast, að togaraflotinn fari minnkandi og að það verðmæti, sem hann skapar, haldi ekki áfram að vaxa. Ég skal geta þess, að þegar virðist vera komið að því, að togurunum fari fækkandi. Á árinu 1951 voru togararnir 53, en þeim hefur fækkað um einn til ársloka 1952. Og enn mun vera um að ræða fækkun, þ. e. a. s., gömlu skipin fara algerlega úr notkun smám saman og ekki bætist neitt nýtt í skipaflotann nú um skeið. Það getur vart talizt eðlileg framþróun þessara mála, að við gerum einungis út sex skipum meira nú í dag heldur en gerð voru hér út fyrir 20 árum. Einn nýtízkutogari kostar eitthvað nálægt 10 millj. kr., og það er, eins og ég hef áður tekið fram, ekki meira verð heldur en það, sem vænta má að hann geti sjálfur skilað í gjaldeyri á einu ári, ef afli hans er fullnýttur innanlands.

Með því að hefja togarasmíðar hér innanlands skapast stórkostleg verkefni fyrir iðnaðinn, ekki einasta fyrir skipasmíðina sjálfa, heldur líka fyrir hvers konar iðnaðarmenn. Þess má t. d. geta, að í einum togara eru svo miklar raflagnir og rafvélar, að þær eru sízt minni en í dálitlu þorpi. Þá má líka geta þess, að í togurum eru íbúðir manna, sem samsvara því, að um verulega húsasmíði eða húsgagnasmíði væri að ræða. Rörlagningar í slíkum skipum eru óhemjumiklar. Þannig mundi iðnaðinum í fjölmörgum greinum skapast stórkostleg verkefni, sem annars eru greidd erlendum aðilum, stundum jafnvel á meðan iðnaðarmenn hér í landi hafa alls ekki fulla atvinnu.

Það er gert ráð fyrir því, að einungis tvö af þessum tíu skipum, sem um ræðir í frv., verði smíðuð innanlands. Það, að ekki er lagt til að meira sé smíðað af skipum innanlands, kemur til af tveim ástæðum aðallega. Önnur er sú, að aukning skipastólsins þolir ekki neina verulega bið og það má búast við því, að innlendir aðilar séu þess ekki albúnir að afkasta mjög stórkostlegum smíðum alveg á næstu árum, og hitt er líka nokkurt atriði, að vegna alls öryggis er það nauðsynlegt, að gæði skipa, smíðaðra í skipasmíðastöðvum, sem ekki hafa fengizt við þau verkefni áður, séu nokkuð reynd, áður en til stórkostlegra smíða kemur. Hitt er alveg augljóst mál, að togarasmíðar innanlands, eftir að þær væru eitt sinn komnar af stað, mundu eiga fyrir sér mikla framtíð. Þess má geta, að ef íslenzkur togarafloti væri að jafnaði eitthvað yfir 50 skip og gert væri ráð fyrir, að meðalending skipanna væri 25 ár, þá þarf að smíða tvo togara á ári einungis til þess að viðhalda skipastólnum.

Í frv. er gert ráð fyrir því, að ríkisstj. taki allt að 60 millj. kr. lán til þess að hrinda þessum framkvæmdum af stað. Það er augljóst mál, að 60 millj. kr. er minna en andvirði þessara tíu skipa, en hér er lánsheimildin ekki miðuð við hærri upphæð af ýmsum ástæðum, m. a. vegna þess, að það er alls ekki ólíklegt, að ríkissjóður gæti eitthvað af mörkum látið til þessara smíða án lántöku, og eins hitt, að væntanlegir kaupendur eru líklegir til þess að inna af hendi einhverjar greiðslur, áður en smíðum skipanna lýkur, og þá má að síðustu gera ráð fyrir því, að ef þessi lánsheimild reyndist of lág, þá væri hægt að fá hana aukna með samþykkt Alþ., þegar að því kæmi.

Þess er getið í frv., að um rekstur á þessum skipum geti ríkisstj. valið um þær leiðir, eftir að skipin eru smíðuð, að selja þau einstaklingum, selja þau bæjar- eða sveitarfélögum eða að ríkið geri þau sjálft út. Ég skal geta þess hér, að mér er kunnugt um, að allmörg byggðarlög sækjast mjög eftir því að eignast togara, og sömuleiðis má geta þess, að hér fyrir Alþ. liggur frv. til laga um það, að ríkið eigi og reki fjóra togara til atvinnujöfnunar. Og ef það frv. yrði samþ., þá gerir það að vissu marki nauðsyn á því, að þetta frv. verði einnig samþ.

Ég vísa að öðru leyti til grg. frv. og legg til, þegar þessari umr. lýkur, að málinu verði vísað til 2. umr. og hv. sjútvn.