04.03.1954
Neðri deild: 57. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 610 í C-deild Alþingistíðinda. (2736)

132. mál, verklegar framkvæmdir við bæjar og sveitarfélög

Lúðvík Jósefsson:

Herra forseti. Ég flyt hér ásamt tveimur öðrum þingmönnum, þeim hv. 4. landsk. og 9. landsk., frv. á þskj. 338 um nokkurn stuðning ríkisins við bæjar- og sveitarfélög til þess að hrinda fram verklegum framkvæmdum. Aðalefni frv. er það, að ríkisstj. sé heimilað að taka allt að 50 millj. kr. að láni og endurlána þessa fjárhæð til bæjar- og sveitarstjórna í þeim tilgangi, að bæjar- og sveitarstjórnir geti með því ráðizt í allvíðtækar atvinnulegar framkvæmdir. Í frv. er gert ráð fyrir því, að kosin verði sérstök fimm manna nefnd, sem geri till. um, hvernig þessu fé verði ráðstafað á milli bæjar- og sveitarfélaganna. Hins vegar er gert ráð fyrir því, að hver sveitarstjórn um sig hafi með höndum þær framkvæmdir, sem þetta fjármagn mundi veita henni möguleika til að ráðast í.

Frv. mjög svipað þessu hefur verið flutt hér á Alþingi áður af mér og fleirum, og hef ég hér áður gert grein fyrir þeirri þörf, sem stendur á bak við þetta frv., en eins og hv. þm. er kunnugt um, þá er mjög tilfinnanlegur skortur á því hjá mörgum bæjar- og sveitarstjórnum að fá nægilegt fé til mjög aðkallandi stofnframkvæmda heima fyrir. Í þessu efni má minna á staðreyndir eins og þær, sem alveg nýlega hafa komið fram, þegar bæjarstjórnin í Vestmannaeyjum hyggst senda nefnd manna hingað til höfuðstaðarins í þeim tilgangi að leita eftir allt að 10 millj. kr. láni til aðkallandi framkvæmda bæjarfélagsins þar. Ég minnist þess líka að hafa heyrt um það nýlega, að bæjarstjórnin á Akureyri væri að sækja um margar milljónir króna að láni hér hjá Framkvæmdabankanum til aðkallandi framkvæmda þar. Svipaða sögu er að segja frá fjöldamörgum bæjarfélögum og sveitarfélögum víða um land, að þau hafa ekki getu til þess að fá nægilegt fjármagn til þess að ráðast í aðkallandi hafnarframkvæmdir, byggingar á verksmiðjum, sem gætu aukið við atvinnu á stöðunum, endurbætur á frystihúsum eða nýbyggingu frystihúsa eða til þess að kaupa fiskiskip eða smíða fiskibáta, svo að nokkuð sé nefnt af því, sem mjög mikið kallar að á hinum ýmsu stöðum.

Það virðist vera, að það, sem hér er lagt til í þessu frv., að ríkissjóður komi til móts við þessar aðkallandi þarfir sveitarfélaganna og útvegi þeim lán eða láni þeim beinlínis fé í þessu skyni, sé þess eðlis, að ríkisstj. ætti í rauninni að hafa mikinn áhuga fyrir þessu, því að það hlýtur fyrr eða síðar að koma til þess, að það mæði á stjórnarvöldunum sjálfum, ef þannig verður búið að atvinnulífinu í hinum dreifðu byggðum eða kaupstöðum og þorpum landsins, að þar falli allt saman fyrir fjárskort.

Ég sé svo ekki ástæðu til þess að hafa hér lengri eða ýtarlegri framsöguræðu um þetta mál, en vona, að sú n., sem fær málið til athugunar, greiði fyrir málinu, því að ég ætla, að þeim nm. muni vera fullkunnugt um þörfina, og stuðli að því, að málið fái hér fulla afgreiðslu á þessu þingi.

Að lokinni þessari umr. vildi ég óska, að frv. yrði vísað til fjhn.