20.11.1953
Neðri deild: 26. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 161 í B-deild Alþingistíðinda. (274)

103. mál, innflutningsmál- gjaldeyrismál, fjárfestingamál o. fl.

Einar Olgeirsson:

Herra forseti. Þá er loks komið fram frelsisfrumvarpið hjá hæstv. ríkisstj. Mikið er nú búið að tala um, hvað í vændum væri, og mikið búið að lofa þjóðinni, og það er þess vegna ákaflega gaman að fá nú loksins að sjá þetta og rannsaka ofur lítið í því innviðina.

Það er hálfleiðinlegt að heyra frá hæstv. ríkisstj. fyrir munn viðskmrh. þau eftirmæli, sem hann kemur með um fjárhagsráð. Ég veit nú ekki betur en að þetta hafi verið sú stofnun, sem tekið hefur á sig allar syndir ríkisstj. á undanförnum sex árum, þannig að hver einasta ríkisstj. hafi reynt að sleppa við hvaða smán og svívirðing og skömm sem hún hefur gert af sér með því að nudda henni yfir á fjárhagsráð. Og mér finnst það það minnsta, sem hægt er þó að segja af hendi ríkisstj. um slíka stofnun, þegar hún er að kveðja hana, að þakka henni fyrir að hafa borið þessar byrðar ríkisstj., því að fjárhagsráð hefur vissulega þjónað þeim flokkum, sem hafa haft völdin hér frá því 1944, mjög vel og tekið á sig að vera eins konar guðs lamb fyrir ríkisstjórnarflokkana til þess að losa þá við allar syndir. Ég held þess vegna, að fjárhagsráð hafi verðskuldað miklu hóflegri og skikkanlegri eftirmæli, þegar á nú að fara að láta nýtt taka við og finna út einhvern nýjan aðila, sem hægt sé að kenna um allar vammir og skammir héðan af.

Við skulum þá fyrst athuga í sambandi við þetta, hvað það er, sem nú hefur breytzt hvað lögin snertir. Ég skal koma að því á eftir, að það er ekki eitt einasta atriði, sem gefið er frjálst í innflutningi til landsins með þessum l., ekki ein einasta vara. Íslenzkur borgari hefur samkvæmt þessum l. ekki rétt til þess að flytja inn eina einustu vöru til landsins frekar en hann hefur nokkurn rétt til þess að flytja einn einasta þorsk út úr því. Ríkisstj. ræður með reglugerð, hvort nokkur maður fær að flytja nokkurn skapaðan hlut inn eða hvaða maður fær að flytja það inn, sem flutt er, og hvað það er. En við skulum ekki taka það fyrir strax. Við skulum athuga hitt.

Þegar fjárhagsráð var sett á laggirnar, voru búin til ákveðin lög, og það var sett alveg ákveðið fyrirmæli í 4. um, hvernig það ráð skyldi starfa, að hvaða tilgangi það skyldi vinna, og borgarar landsins höfðu a.m.k. í l., þó að það væri máske ekki fyrir dómstólunum, vegna þess að dómstólar koma yfirleitt að litlu haldi, eins og ríkisstj. er, ofur lítið aðhald, þannig að þeir gátu vitnað í l., jafnvel þó að það væri ekki meira en að geta vitnað í þau, þó að enginn dómstóll í landinu færi eftir þeim.

Fjárhagsráði var fyrirlagt að miða störf sín við alveg ákveðna hluti, og þegar fjárhagsráð miðaði ekki störf sín við þá hluti, varð það að brjóta l., og sú ríkisstj., sem bar ábyrgð á því fjárhagsráði, var þá að brjóta l. Og það er alveg rétt að byrja með því að rifja upp, hvað það er nú, sem hæstv. ríkisstj. vill losna við að vera bundin við samkvæmt lögum.

Það var mælt fyrir í l. áður, hver tilgangur skyldi vera með fjárhagsráði. Það var í 2. gr. fjárhagsráðsl., og ég skal minna á nokkur atriði úr því. Þar stendur, með leyfi hæstv. forseta:

„Fjárhagsráð miði störf sín við eftirfarandi: 1) að öll framleiðslugeta sé hagnýtt til fulls og öllum verkfærum mönnum tryggð næg og örugg atvinna;

2) að öllum vinnandi mönnum, og þó sérstaklega þeim, er stunda framleiðsluvinnu til sjávar og sveita, séu tryggðar réttlátar tekjur fyrir vinnu sína, en komið í veg fyrir óeðlileg sérréttindi og spákaupmennsku;

3) að neytendur eigi kost á að kaupa neyzluvörur sínar og framleiðendur rekstrarvörur sínar á hagkvæmasta hátt og vörukaup til landsins og vörudreifing innanlands gerð eins ódýr og hagkvæm og frekast er unnt.“

Þetta voru þrjú af fyrstu fyrirmælunum, sem með lögum fjárhagsráði og þar með ríkisstj. var fyrirlagt að miða störf sín við. Sem sé, þetta ráð og sú ríkisstj., sem skipaði það, átti að starfa í alveg ákveðnum, mörkuðum tilgangi, sem var slegið föstu með lögum, og þó að það hafi verið svikizt um að vinna að þessum tilgangi og þó að þessi l. hafi verið brotin, þá var þetta engu að síður lagabókstafur, sem var til, og hefði verið sæmileg stjórn í landinu, sem hefði viljað framkvæma l., þá gat hver borgari landsins vitnað í þetta. Og seinasta atriðið í þessum l. um fjárhagsráð, 8. atriðið, var: „að húsnæðisskorti og heilsuspillandi íbúðum, hvar sem er á landinu, verði útrýmt með byggingu hagkvæmra íbúðarhúsa.“

Af hverju sér nú hæstv. ríkisstj. ástæðu til þess að kippa öllum þessum tilgangi burt, kippa burt úr l. öllu því, sem að einhverju leyti gat verið eitthvert aðhald? Það var ef til vill ekki alveg loku fyrir það skotið, að einhvern tíma villtist einhver maður í dómarasæti á Íslandi, sem þyrði að dæma eftir l. Það var ekki alveg útilokað. Það hefur meira að segja stundum komið fyrir. En það á að koma í veg fyrir það, að nokkuð slíkt geti skeð.

Ákvæðin í þessum 1. kafla, 2. gr., um tilgang fjárhagsráðs, voru sett meðan nýsköpunarstefnan, öll sú mannréttindabarátta, sem þá var háð, var enn þá í fersku minni. Það voru áhrifin frá baráttu eftirstríðsáranna fyrir fullri atvinnu, fyrir áætlunarbúskap og öðru slíku, sem setti sitt mark enn þá á þessa löggjöf. Framkvæmdir þeirra ríkisstj., sem síðan hafa starfað, hafa gengið í þá átt að traðka þessi l. undir fótum, að traðka á þessum tilgangi, brjóta hann í reynd og gera hann að engu, og nú er svo lagt til af hæstv. ríkisstj. að afnema þetta endanlega úr l., sem sé, hvert aðhald, sem áður átti að vera, á nú ekki lengur að vera til.

Áður var litið svo á, þegar slíkt vald var getið einni ríkisstj. eins og það að ráða öllum innflutningi til landsins, þá væri ríkisstj. fyrirlagt um leið að fara eftir ákveðnum, siðferðislegum reglum, að taka ákveðið tillit til hagsmuna landsbúa, og þessar reglur voru settar fram í 2. gr. þessara l. Þetta var aðhaldið, sem ríkisstj. og fjárhagsráði var skapað, aðhaldið, sem hefur verið óþægilegt fyrir fésýsluklíkur Framsóknar og íhaldsins allan tímann og nú ú þess vegna að afnema, eftir að þær eru búnar að traðka þetta undir fótum allan þann tíma að heita má, sem fjárhagsráð hefur starfað. Þetta er vert að gera sér alveg ljóst.

Það er enginn tilgangur yfirlýstur með þessu frv. Í 1. gr. þess er aðeins einu slegið föstu: ríkisstj. skal hafa allt vald. Í hvaða tilgangi hún notar það vald, hvaða aðhald hún hefur frá Alþ. til að nota það vald, er allt þurrkað burt. Ríkisstj. má nota það vald, sem henni er getið samkvæmt þessum l., eins og hún raunar hefur gert, í eiginhagsmunaskyni fyrir þá flokka, sem ráða, fyrir hvaða klíkur sem ríkisstj. þóknast að veita valdið, í hvaða tilgangi sem henni þóknast, allt tillit til hagsmuna almennings í þessu sambandi skal vera þurrkað burt. M.ö.o.: Þessi gamli, 1. kafli, 2. gr., í l. um fjárhagsráð hefur alltaf verið til trafala fyrir valdhafa landsins, síðan þetta var sett, og nú skal þessum trafala endanlega rutt úr vegi. Það er búið að traðka hann vel niður í skítinn á undanförnum árum. Nú skal hann ekki einu sinni lengur vera til til þess að minna á það, að einokunarstjórn á Íslandi þurfi að taka eitthvert tillit til þjóðarinnar. Þetta er vert að gera sér ljóst. Hér eftir mun hæstv. ríkisstj. aldrei þurfa að standa reikningsskap gagnvart l. fyrir neinu, sem hún gerir í þessum efnum. Síðustu leifar allra ákvæða um, að það skuli reyna að vinna af einhverju viti, í einhverjum góðum tilgangi að þessum málum, eru þurrkaðar burt. Það hefur ekki verið mikið oft og tíðum um þann góða tilgang í framkvæmdinni eða um þau tillit í sjálfri starfseminni, en að svo miklu leyti sem ákvæðin hafa verið til í l., þá skulu þau fara.

Svo komum við þá að frelsinu, 1. gr.: „Frjáls skal vera innflutningur til landsins á þeim vörum, sem ríkisstj. ákveður hverju sinni með reglugerð.“ Hver fær frelsið, mínir herrar? Er það þjóðin? Eru það borgararnir? Eru það mennirnir, sem framleiða, mennirnir, sem borga vörurnar? Nei, frelsið fær ríkisstj., takmarkalaust frelsi til þess að nota það eins og henni þóknast með því að gefa út reglugerð, eina í dag og aðra á morgun, með þessu tilliti til Framsóknar í dag og þessu tilliti til íhaldsins á morgun, samkvæmt þessum hrossakaupum innan ríkisstj. í dag, samkvæmt hinum á morgun, — engin takmörk, ekki nokkur. Ríkisstj. fær fullt frelsi, ekki einu sinni heft af neinum tilgangi viðvíkjandi l. Það er sem sé þó nokkuð satt í því, sem hæstv. ráðh. sagði hér áðan, þetta er mjög mikið frelsisfrv., en það er bara frelsisfrv. fyrir ríkisstj. Það er hún, sem fær allt valdið, alræðisvald um allan innflutning til Íslands. Það er hún, sem tekur sér alræðisvald um allan innflutning til Íslands. Gagnvart þeim almenna borgara er nú með samþykkt þessara laga um algert öryggisleysi að ræða. Enginn borgari í landinu er öruggur um nokkurn skapaðan hlut viðvíkjandi þessu. Hann hefur ekki einu sinni lengur nein lög og neinar hömlur í því að styðja sig við. Nú er það ríkisstj., sem ákveður með reglugerð hverju sinni, hvað skal vera frjálst og hvað skal ekki vera frjálst, með hverjum hætti vissir hlutir skuli vera frjálsir, og annað slíkt. Af hverju hefur nú ekki ríkisstj. og stjórnmálaflokkar, sem eru búnir að tala ár eftir ár um, að þeir vilji veita þjóðinni frelsi, kjark í sér til þess að setja inn í lög, að eitthvað, ein einasta vara, tvær vörur, tíu vörutegundir, skuli vera frjálsar til innflutnings á Íslandi? Af hverju þora þeir ekki að setja þetta í lög? Af hverju má ekki Íslendingum vera leyfilegt að flytja inn frjálst eina einustu vörutegund, ekki korn, ekki byggingarefni, ekki neitt? Er trú ríkisstj. ekki meiri á frelsi heldur en þetta? Á enginn maður í landinu að geta gert ráðstafanir með það fyrir augum að útvega sér til dæmis byggingarefni, án þess að geta átt á hættu, að daginn eftir að hann gerir ráðstafanirnar gefi ríkisstj. út reglugerð, sem afnemur þetta? Af hverju má ekki ákveða í lögum eitthvað af þessum hlutum? Lög eða reglugerð eru sitt hvað. Lög eru hlutur, sem fólkið í landinu getur haldið sig að. Reglugerðir eru hlutir, sem ríkisstj. hefur sýnt sig í að nota og misnota alveg eins og henni þóknast. Eftir að þessi lög eru samþykkt, þá á að stjórna landinu með reglugerðum, hvað innflutninginn snertir; það er auðséð.

Hvað er svo ákveðið viðvíkjandi þessum reglugerðum og með hvaða tilliti þær skuli gefnar út? Það er ekkert tillit neins staðar sett fram í lögunum, engin takmörk um, hvað þar skuli vera, og þar komum við að aðalatriðinu í þessu. Hæstv. ríkisstj. gerir það alveg af ráðnum hug að nema brott úr gömlu fjárhagsráðslögunum allt, sem gat skoðazt að einhverju leyti sem einhver takmörkun á valdi því, sem ríkisstj. væri gefið viðvíkjandi reglugerðinni. Og nú vil ég vekja athygli hv. þm. á, hvað hér segir. Í gömlu fjárhagsráðslögunum var ákveðið í 11. gr., að það mætti engar vörur flytja til landsins, nema heimta innflutnings- og gjaldeyrisleyfi. Í 12. gr. var ákveðið, að innflutnings- og gjaldeyrisleyfum yrði úthlutað til innflytjenda, og það voru enn fremur sett þau ákvæði, að úthlutun leyfanna sé „við það miðuð, að verzlunarkostnaður og gjaldeyriseyðsla verði sem minnst. Reynt verði, eftir því sem frekast er unnt, að láta þá sitja fyrir innflutningsleyfum, sem bezt og hagkvæmust innkaup gera og sýna fram á, að þeir selji vörur sínar ódýrast í landinu. Skal þetta gilda jafnt um kaupmannaverzlanir og samvinnuverzlanir og miðað við það, að neytendur geti haft viðskipti sín þar, sem þeir telja sér hagkvæmast að verzla.“ M.ö.o.: Það voru í þessum gömlu lögum allmikil ákvæði viðvíkjandi því, hvernig með gjaldeyrinn skyldi fara, hvernig með gjaldeyrisleyfin skyldi fara, í hvaða tilgangi þeim skyldi úthlutað, og það skyldi vera sá tilgangur, að neytendur í landinu gætu fengið vöruna sem ódýrasta. Hvað hefur nú gerzt undanfarið í sambandi við þessa hluti? Það, sem hefur gerzt undanfarið, er, að sá, sem var viðskmrh. í fyrrv. ríkisstj., gaf út yfirlýsingu hér á Alþingi um, hvernig ríkisstj. líti á vald sitt til ráðstöfunar gjaldeyri. Það var Björn Ólafsson, núverandi hv. 3. þm. Reykv., sem þá var viðskmrh., og yfirlýsing hans hljóðaði á þessa leið:

„Fjárhagsráð hefur því óskorað vald um ráðstöfun gjaldeyris, þ. á m. að heimila útflytjendum öllum, eða einhverri sérgrein útflytjenda, að hafa frjáls umráð gjaldeyrisins að öllu eða einhverju leyti til innflutnings almennt eða bundið við sérstakar vörutegundir, sbr. bátalistann. Þeim, sem fá þennan ráðstöfunarrétt, er heimilt að notfæra sér hann á hvern þann hátt, sem ekki brýtur í bága við fyrirmæli fjárhagsráðs, þ. á m. að selja gjaldeyrinn með hagnaði í einn formi eða öðru, ef slík sala er heimiluð af fjárhagsráði.“

Þetta var yfirlýsing ráðherra. Yfirlýsing ráðherra skoðast venjulega sem fullgild skýring á lögum, og hæstv. núverandi ráðherra hefur aldrei fengizt til að hnekkja þessari yfirlýsingu. Ég sýndi fram á, að þessi yfirlýsing bryti í bága við lög. Engu að siður hefur hún verið grundvöllurinn að allri framkvæmd ríkisstj.

Hvað gerist nú í þessu frv., sem hérna liggur fyrir? Með þessu frv., sem hér liggur fyrir, er auðsjáanlega meiningin að slá því föstu, að þessi yfirlýsing ráðherra, sem áður hefur verið gefin út, skuli standa sem fullgildur praksís samkvæmt þessum nýju lögum, og ég tek eftir, að allar hömlurnar, allt, sem þessi yfirlýsing og ráðstöfunin um bátagjaldeyri rakst á í gömlu fjárhagsráðslögunum, er afnumið í þessu frv. Hins vegar stendur þar í 4. gr., þegar talað er um, að útflytjendum og öðrum hérlendum aðilum er skylt að selja Landsbanka Íslands og Útvegsbanka Íslands þann erlendan gjaldeyri, er þeir eiga eða eignast fyrir vöru eða þjónustu: „Þó getur innflutningsskrifstofan veitt undanþágu frá þessari reglu, þegar sérstaklega stendur á.“ Og ríkisstj. ætlar sér auðsjáanlega með öllum þeim reglugerðarheimildum, sem hún fær hér í þessum lögum nú, að skapa sér rétt til að setja á bátagjaldeyri, togaragjaldeyri, smjörgjaldeyri, kjötgjaldeyri, hvaða gjaldeyri sem henni þóknast, og leyfa að leggja á innflutning til landsins hvort það er 25%, 60%, 100% eða 200%. Hvað þýðir þetta? Það þýðir m.ö.o., að ríkisstj. ætlar sér nú að tryggja sér með reglugerðarheimildunum, sem hún fær hér, það vald, sem hún hefur ekki haft samkvæmt lögum að undanförnu. Og ég vil beina hér með þeirri spurningu til hæstv. viðskmrh.: Álítur hann, að eftir þessu frv., eins og það er orðað, hafi ríkisstj. rétt til þess að setja reglugerðir eins og þær, sem voru settar 8. marz 1951? Það er engum efa bundið, að ríkisstj., sem gaf reglugerðina út eða lét fjárhagsráð gefa reglugerðina út 8. marz 1951, um bátagjaldeyrinn, hafði ekki rétt til þess. Og fjárhagsráð þá leit á sig sem það óháða stofnun, að það vildi ekki gefa þá reglugerð út. Það vildi ekki gefa hana út, af því að fjárhagsráði var ljóst, að sú reglugerð braut í bága við lög og af því að fjárhagsráð treysti sér ekki til að vitna í nokkur lög reglugerðinni til stuðnings. Og reglugerðin byrjar þess vegna með þeim orðum, sem eru einsdæmi í íslenzkum reglugerðum: Samkvæmt ósk ríkisstjórnarinnar — en ekki samkvæmt heimild í lögum númer þetta og þetta. Nú á að laga þetta. Nú ætlar ríkisstj. með þessum lögum að tryggja sér réttinn og valdið og lögin til að gefa út reglugerð um hvað sem henni þóknast, m.a. reglugerð um að geta veitt hvaða útflytjanda eða innflytjanda sem er leyfi til þess að selja sjálfur sínar vörur, taka gjaldeyrinn fyrir þær, kaupa inn fyrir þann gjaldeyri og leggja á þær vörur alveg eins og honum þóknast, — gefa ákveðnum aðilum einokun, eins og nú þegar hefur verið gert á slíkum vörum.

Ég vil spyrja hæstv. viðskmrh., hvort hann áliti, að samkvæmt þessum lögum gæti t.d. framsóknarstjórn hér á Íslandi gefið út reglugerð, þar sem S.Í.S. fær einkarétt til þess að selja úr landinu, við skulum segja að hagnýta allan gjaldeyri, sem kemur inn t.d. fyrir landbúnaðarvörurnar, leggja á þann gjaldeyri, elns og nú er gert á bátagjaldeyrisskrifstofunni, t.d. 100% álag og selja síðan þennan gjaldeyri út til annarra aðila. Ég vil spyrja hæstv. viðskmrh., hvort hann álíti, að ríkisstj. samkvæmt þessu frv., ef það verður að lögum, hafi rétt til þess að gefa annaðhvort L.Í.Ú. eða Sölusambandi ísl. fiskframleiðenda einkarétt til þess að hagnýta allan gjaldeyri, t.d. Sölusambandinu fyrir saltfisk, til þess að leggja á hann 50% eða 100% eða 200% og selja þennan gjaldeyri í sambandi við innflutning á ákveðnum, tilteknum vörum til hvaða aðila sem væri í landinu með svona álagningu. Ég vil spyrja hæstv. viðskmrh. að því, hvort hann álíti, að ríkisstj. hafi rétt til slíks eftir þessum lögum. Ég veit, að hún var að brjóta lög, þegar hún gaf út reglurnar um bátagjaldeyrinn, og að hún ætlar sér núna með því að fara um bakdyrnar að tryggja sér nú með þessum lögum lagaheimildina fyrir því, sem áður voru lögbrot. Þetta vildi ég gjarnan fá upplýst við þessar umr., því að það hefur ekki verið rétt gott að fá hæstv. ríkisstj. til að ræða þessi mál undanfarið í þinginu. En það er ekki vert, að hún sleppi með að segja afdráttarlaust, hvað hún meinar, til þess að það sé ljóst, hvort hún geti gefið einstökum mönnum í landinu einokunarvald eftir þessum l., sem hún gat ekki eftir þeim gömlu.

Þá kem ég að sjálfri innflutningsskrifstofunni. Einu sinni var það vist innflutnings- og gjaldeyrisnefnd, svo var það viðskiptaráð, svo var það viðskiptanefnd, svo var það fjárhagsráð, og nú eru það nýjustu fataskiptin, og nú á það að heita innflutningsskrifstofan. Já, við erum nú orðnir svo vanir fataskiptum hérna allt frá því að Keflavíkursamningurinn var gerður, að við kippum okkur ekki upp við það, þó að það sé nú farið fram á, að einhverjar stofnanir, sem ríkisstj. er búin að gera óvinsælar með því, hvernig hún hefur látið þær starfa, verði að hafa fataskiptí, áður en þær byrja á sínu næsta hlutverki fyrir ríkisstj. Í hverju eru nú fataskiptin fólgin að þessu sinni? Áður var það fimm manna nefnd, sem úthlutaði, sagði hæstv. ráðherra. Jú, það þótti meira að segja einu sinni eðlilegt, að Alþ. hefði eitthvað með það að gera, hvernig svona nefndir væru skipaðar. Jafnvel ýmsar stofnanir í landinu höfðu eitthvað með það að gera. Núna er alveg ákveðið, að það eru tveir flokkar, flokkarnir í ríkisstj., sem eiga að setja sinn manninn hvor. Af hverju eru þeir nú að gera þetta. Það er ekki í sparnaðarskyni. ríkisstj. hefur aldrei gert neitt í sparnaðarskyni. Nei, það er út frá öðru sjónarmiði. Það hefur reynzt hálfóþægilegt yfirleitt fyrir fésýslumennina í Framsókn og íhaldi, að það væru einhverjir fleiri við yfirleitt. Jafnvel þótt ekki væru nú duglegri menn en stundum hafa verið á undanförnum árum, þá hefur það verið hálfóþægilegt, að það væru yfirleitt einhverjir áhorfendur við hrossakaup stjórnarflokkanna. Við vitum, hvernig stjórnarflokkarnir hafa haft það í sambandi við lán til smáíbúðanna. Þeir tóku þar upp á þeirri reglu, að það skyldu bara vera tveir menn, sem úthlutuðu lánum til smáíbúðanna. Það þótti ekki fært, að bankarnir gerðu það. Nei, það var ófært. Bankarnir? Nei, það gekk ekki. Það voru tveir menn. Og hverjir voru mennirnir, sem settir voru í það að úthluta lánunum til smáibúða rétt fyrir kosningar? Jú, mennirnir voru formaður framsóknarfélagsins í Reykjavík og formaður íhaldsfélagsins í Reykjavík. Það var alveg klárt mál, þetta voru alveg tilvaldir menn, ekki satt? Auðvitað gátu svona menn bezt séð um, að það færi á rétta staði. Þetta mundi á venjulegu máli vera kallað pólitískar mútur og spilling, en auðvitað tilvalið að taka þetta upp — þetta lý sandi fordæmi, það er alveg sjálfsagt í sambandi við frv. til l. um skipun innflutningsmála, þegar frelsið loksins á að koma. Má ég spyrja hæstv. ríkisstj.: Af hverju lætur hún ekki t.d. Landsbankann úthluta þessu eða bankana sjá um þetta? Af hverju ekki? Er hún svona smeyk við það, að það yrðu ekki þau réttu sjónarmið meira að segja, sem bankarnir tækju tillit til? Er það ekki alveg öruggt, að embættismenn, sem verða samkvæmt sinni skipun að standa reikningsskil frammi fyrir þjóðinni, færu eftir öllum þeim hrossakaupum, sem eiga sér stað að tjaldabaki? Það væri meiri sparnaður. Ég gæti bezt trúað, að bankarnir gæfu tekið þetta að sér ókeypis, en það væri máske ekki alveg öruggt fyrir spilltustu fésýsluklíkurnar, innstu koppana í búrinu hjá íhaldinu og Framsókn, að það færi rétt, sem úthlutað væri. Það er ekki alveg víst, þegar talað væri um, að nú ætlaði Sambandið að fara að flytja inn eitthvað, að þá bærist það kannske undireins til viðkomandi aðila hjá íhaldinn, — ja, nú ætlar Sambandið að gera þetta, við verðum að fá eitthvað á móti, — eða þá ef einhver duglegur kaupsýslumaður hjá íhaldinn sér möguleika á einhverju góðu gróðafyrirtæki, það væri þá kannske ekki alveg öruggt, að það bærist með sama til Sambandsins, svo að leyfisveitingarnar væru tafðar, þangað til Sambandið væri búið að leggja inn umsókn fyrir einhverju svipuðu. Það gæti sent sé verið, að meira að segja bankarnir sýndu eitthvað ofur lítið meiri heiðarleika heldur en þau hrossakaup, sem eru orðin aðalinnihaldið og eiga auðsjáanlega að verða eina uppistaðan í samhandi við þetta mál núna. Ég ætla bara rétt að leyfa mér að spyrja: Er alveg ákveðið, hvort það eru formaður framsóknarfélagsins og formaður sjálfstæðisfélagsins í Reykjavík, sem verða settir í þetta, eða er ríkisstj. e.t.v. ekki búin að koma sér saman um, hvernig hún skiptir því?

Ég hef getað fylgzt með þessum málum nokkuð lengi, og ég hef séð þróunina, sem er að ganga fyrir sig í þessu, og þróunin í því er sú, að það er að verða bein verzlun á milli tveggja flokka um allan innflutninginn til landsins, og sú verzlun gengur það langt, að fyrir kosningar er það meira að segja sagt, að svo framarlega sem menn láti ekki í kosningasjóð ákveðinna flokka, þá geti menn búizt við því að verða afskiptir með innflutningsleyfi. Þetta er grundvöllur að svívirðilegustu mútu- og kúgunarstarfsemi, sem til er í landinu, og svo framarlega sem hæstv. ríkisstj. ætlar sér að koma sér undan því ámæli, þá skora ég á hana að láta Alþ. hafa með það að gera, ef hún þorir ekki að láta bankana hafa með það að gera, hvernig stjórn þeirra mála er skipuð, sem ræður öllum innflutningi til landsins. Við höfum séð ofur litla smámynd af því undanfarið, hvernig farið er að í þessum efnum. Við höfum séð, hvernig samið er viðvíkjandi olíuflutningnum, hvernig hundruð þúsunda króna velta á víxl sem gróði á milli félaganna, jafnvel bara á farmgjöldunum, hvað þá öðru, og við höfum séð, hvernig farið er að bæta upp einhver töp, sem einhverjir forretningsmenn verða fyrir í sambandi við saltfisksflutninga, með því að leggja bara á saltfiskinn eða taka aukaprovisionir upp á 50 þús. kr. af einum farmi eða annað slíkt, og þetta eru hlutir, sem gerast bak við tjöldin og aldrei koma fram. Það er orðin slík spilling í sambandi við þessa hluti, að það er ekki þolandi lengur, og það er auðséð, að það, sem hér er stefnt að, er, að þessi spilling geti farið fram án þess, að það séu nokkrir möguleikar fyrir þjóðina að fá að vita um hana. M.ö.o.: Þetta frelsi fyrir ríkisstj., sem þetta frv. fer fram á, er frelsi hennar til að fá að lita á þjóðina sem bráð tveggja varga — Framsfl. og Sjálfstfl., sem skipti bráðinni á milli sín. Þetta er aðalatriðið í sambandi við valdabreytinguna, sem fer fram með þessu frv. Og svo framarlega sem hæstv. ríkisstj. finnst ég vera að einhverju leyti ósanngjarn í hennar garð, sé með einhverjar aðdróttanir miður fagrar eða slíkt, þá er hægur vandi fyrir hana að b æta úr þessu. Hún getur breytt þessum l. þannig, að hún getur gefið ákveðna hluti a.m.k. frjálsa til landsins — frjálsa með l., tekið fram í lögunum, hvað menn hafi rétt til, en það þorir hún auðsjáanlega ekki. Ég vil aðeins minna á, að með þessum l. og með þessum yfirlýsingum, sem fyrir liggja frá ríkisstj., er kerfi eins og bátagjaldeyririnn gert að löglegu kerfi á Íslandi og þar með opnaðir möguleikar fyrir ríkisstj. til þess að skrá raunverulega hvaða gengi sem henni þóknast á hvaða útflutningi og innflutningi sem er hækka gengið í landinu eins og henni þóknast á ákveðnum vörum eða á öllum vörum og að veita ákveðnum klíkum í landinu einokun — þeim klíkum. sem ríkisstj. hefur velþóknun á á hverjum tíma.

Svo komum við nú að því, sem hæstv. viðskmrh. af miklum klókindum dró sérstaklega fram í dagsljósið sem það stóra, jákvæða við frv., sem sé í 8. gr. Loksins átti þó að vera frjálst að byggja íbúðarhús. Þetta er það eina, sem eftir öll þessi ár hefur unnizt á í frelsisátt. Þetta er það eina, sem loksins eftir alla þá baráttu, sem hérna hefur verið, hefur unnizt á, og samt: Hvar er frelsið á innflutningi byggingarefnisins? Það á að vera háð reglugerð, og það á að vera háð því, að ríkisstj. geti látið S.Í.S. og einn, tvo eða kannske þrjá af aðalmönnum íhaldsins fá einokun á byggingarefni, og síðan eiga þessir tveir aðilar, innstu koppar í búri Framsóknar og íhaldsins, að ráða því, hvaða menn fá byggingarefni — eða er þetta ekki frelsið? Menn hyggja ekki úr 8. gr., menn byggja úr sementi. Hverjir fá sementið? Hefur íslenzkur maður rétt til að flytja sement til Íslands eftir þessu eða eftir reglugerðinni? Nei, það hefur enginn rétt til að flytja sement til Íslands nema sá, sem ríkisstj. leyfir það. Og hverjum leyfir ríkisstj. það? Það er hún búin að sýna. Þetta vil ég vekja athygli hæstv. viðskmrh. á, ef honum skyldi hafa yfirsézt, að það er ekki enn þá gengið eins langt í 3. gr. eins og við börðumst fyrir hér á árinu 1950–51. Við létum það fara saman hér á Alþ. að flytja frv. um, að frjáls yrði bygging íbúðarhúsa og frjáls innflutningur byggingarefnis til landsins. hetta eru sem sé í fyrsta lagi hömlurnar viðvíkjandi byggingarefninu. — Í öðru lagi: Til þess að byggja þarf líka peninga, og það liggur fyrir yfirlýsing frá hæstv. fyrrv. ríkisstj., sem núverandi ríkisstj. hefur ekki haggað, yfirlýsing, sem Björn Ólafsson, hv. 3. ]nn. Reykv. nú, viðskmrh. í fyrra, gaf um, að hann, þ.e. ríkisstj., hafi skrifað Landsbankanum bréf, þar sem hún uppáleggur Landsbankanum að hafa hömlur á lánum til íbúðarhúsa. Við skiljum, hvað það þýðir. Það þýddi að draga úr þeim litlu lánum, sem voru til íbúðarhúsa. Ég vildi mega mælast til þess við hæstv. núverandi viðskmrh., af því að hann hefur sýnt sig miklu betri gagnvart þinginu heldur en hans forgöngumaður í því að gefa þinginu upplýsingar, að hann birti þinginu það bréf, sem bankamálaráðherrann fyrrverandi skrifaði Landsbankanum um hömlurnar á lánum til íbúðarhúsabygginga. Það bréf fékkst sem sé hæstv. fyrrv. bankamálaráðherra aldrei til að leggja fram hér í þinginu. Meira að segja seinna meir, þegar kosningar fóru að nálgast, neitaði hann því að hafa skrifað Landsbankanum nokkuð, og það var ekki fyrr en ég vitnaði í hans eigin ummæli, sem hann varð að falla ofan af því. M.ö.o.: Ef standa eiga þau fyrirmæli, sem ríkisstj. hefur gefið bönkunum, þá á að sjá um það, um leið og menn fá leyfi á pappírnum til að byggja, þó ekki úr sementi, heldur úr pappír, að menn skuli helzt ekki fá lán til þess.

Við vitum ósköp vel, hvernig hlutirnir liggja viðvíkjandi íbúðarhúsabyggingum á Íslandi. Við höfum yfirlýsingu manna, sem þekkja það, um, hvers vegna Íslendingar mega ekki byggja alveg frjálst, fá að flytja byggingarefni inn frjálst og lánastarfsemin í landinn megi vera frjáls. Fjárhagsráð gaf þá yfirlýsingu í bréfi sínu 13. jan. 1951 til allshn. Sþ., þar sem það sagði, með leyfi hæstv. forseta:

„Fjárhagsráði hefur skilizt, að vegna tilrauna til þess að fá að nota fé úr mótvirðissjóði verði að takmarka fjárfestingu við ákveðið hámark og það sé fullkomlega skilyrði fyrir því, að leyfi fáist til þess að nota mótvirðissjóð. Ef fara ætti eftir till. þessari (það var um að gefa byggingarefnisinnflutning frjálsan til landsins), mundi það gera ómögulegt að sýna forráðamönnum mótvirðissjóðs fram á, hver fjárfestingin væri, þar sem takmarkanirnar næðu aðeins til hluta hennar.“

Ég skal geta þess, að með forráðamönnum mótvirðissjóðs átti fjárhagsráð þá ekki við Alþ., sem er sá eini forráðamaður mótvirðissjóðs, heldur við ríkisstj. í Washington, en það er nú erðið svo algengt, að því sé blandað saman, hvor sé húsbóndi á því íslenzka heimili. M.ö.o.: Það var undir leyfum frá Washington komið, hvort menn ættu að geta fengið að byggja frjálst á Íslandi, og sá, sem varð reiðastur fjárhagsráði fyrir að kjafta frá þessu, var Benjamín Eiríksson. Ég hitti hann hérna á ganginum frammi, og hann var heldur gramur yfir því, hvernig fjárhagsráð hafi farið að með þessu bréfi, og var að tala við mig um, hvers konar vopn það hefði verið að gefa mér í hendurnar með þessu, en nú á að setja fyrir þennan leka. Hver er það, sem á að hafa eftirlitið með fjárfestingunni nú, yfirstjórnina á fjárfestingunni, sjá um, að það sé allt í samræmi við skilyrðin, sem forráðamenn mótvirðissjóðs setja? Það stendur í þessu frv. í 9. gr.: „Framkvæmdabanki Íslands skal fylgjast með fjárfestingu í landinu, og skal bankinn vera ríkisstj. til ráðuneytis um fjárfestingarmál“ M.ö.o.: Benjamín Eiríksson, eftirlitsmaður Ameríkananna með því, að Íslendingar byggi ekki hús, á nú að verða aðalvaldamaður ríkisstj. til þess að sjá um það, sem kallað er þarna fjárfestingareftirlit. Kannske hann eigi að ráðleggja henni líka, hvað hún lætur mikið af innflutningsleyfum fyrir byggingarefni og hverjir fá byggingarefnið og innflutninginn á því? — [Frh.]