08.04.1954
Neðri deild: 81. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 614 í C-deild Alþingistíðinda. (2741)
135. mál, brúagjald af bensíni
Gísli Guðmundsson:
Herra forseti. Þann 5. febr. s. l. var útbýtt hér í hv. d. frv. til l. um brúagjald af benzíni.
Þetta frv. var til 2. umr. 9. febr. og var þá vísað til hv. samgmn.
Hinn 10. marz s. l. var til umr. frv. um brúargerðir, flutt af hv. samgmn. Í sambandi við þá umr. spurðist ég fyrir um það, hvað liði afgreiðslu fyrrnefnds frv. um brúagjald af benzíni hjá hv. samgmn. Mér skildist þá á hv. formanni þeirrar n., að n. hefði haft málið til meðferðar, og hafði ég ástæðu til að ætla af ummælum hans þá, að málið mundi verða afgr. úr n., áður en langt liði. Síðan er nú langur tími liðinn, og hv. samgmn. hefur enn ekki skilað áliti um málið.
Þar sem nú er orðið mjög áliðið þings, vil ég mælast til þess, að hæstv. forseti hlutist til um það, að n. skili áliti um málið.