04.03.1954
Neðri deild: 57. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 633 í C-deild Alþingistíðinda. (2765)
159. mál, vátryggingarfélög fyrir fiskiskip
Lúðvík Jósefsson:
Herra forseti. Ég sé, að með þessu frv. er gert ráð fyrir því að skylda þá útgerðarmenn, sem eiga yfir 100 smálesta báta, til þess að tryggja báta sína hjá Samábyrgðinni, en hingað til hefur þessu verið þannig fyrir komið, að stærðartakmarkið hefur aðeins verið miðað við 100 smálesta fiskiskip. Mér sýnist, að það skorti hér alveg rök fyrir því, hvers vegna er í rauninni verið að fara fram á þetta. Vitanlega eru allmörg fiskiskip af þessari stærð, frá 100 smálestum upp í 150 smálestir, og það er hægt að vátryggja öll þessi skip hjá Samábyrgðinni nú, en eigendur þeirra hafa frjálsræði til að velja um það, hvort þeir tryggja skip sín þar eða hjá öðrum vátryggingarfélögum, sem tryggja skip. Ef Samábyrgðin býður þeim álíka góð eða betri kjör heldur en önnur vátryggingarfélög, þá sé ég ekki, að það sé nein ástæða til að búast við því, að þessi skip séu ekki tryggð hjá Samábyrgðinni alveg jöfnum höndum og hjá öðrum vátryggingarfélögum.
Ég hygg hins vegar, að reynslan sé sú, að Samábyrgðin hafi ekki boðið eigendum þessara skipa jafngóð kjör og önnur vátryggingarfélög, og því sé reyndin sú, að flest skip af þessari stærð séu í tryggingum hjá öðrum vátryggingarfélögum. Ég fyrir mitt leyti vil ekki, þó að ég viðurkenni á margan hátt rétt Samábyrgðarinnar, auka á álögur eða íþyngja eigendum þeirra skipa, sem hér um ræðir, á neinn hátt, sé ekki ástæðu til þess. Og ég vil aðeins minna þá mörgu menn á það, sem tala um frjálsræði manna í þessum efnum, að þeir eigi að hafa fullt frelsi til þess að gera eitt og annað og þá m. a. frjálsræði til þess að vátryggja skip sín þar, sem bezt kjör eru boðin, að það verða að liggja allgreinileg rök fyrir því, ef á að þvinga menn á þennan hátt til þess að tryggja fremur hjá einum en öðrum.
Ég vil nú óska eftir því, að hv. sjútvn. athugi þetta mál enn betur og leggi m. a. hér fyrir deildina upplýsingar um það, — því að það er tiltölulega auðvelt mál að fá þær upplýsingar, — hvað mörg af þeim skipum, sem til eru hér í landinu af þessari stærð. sem hér er um að ræða, frá 100 smálestum upp í 150 smálestir, eru nú tryggð hjá Samábyrgðinni og hvað mörg utan hennar. Kemur þá í ljós, til hvað margra aðila þetta valdbeitingarákvæði mundi ná. Einnig athugi hún, hver er raunverulega ástæðan til þess, að það þarf að beita eigendur skipanna valdi með þingssamþykkt til þess að tryggja hjá Samábyrgðinni. Getur hún ekki boðið a. m. k. hliðstæð kjör og eigendur skipanna fá nú annars staðar? — Ég vildi gjarnan, að þetta lægi hér fyrir, áður en hv. þdm. þurfa að greiða atkvæði um það, hvort á að leiða þetta ákvæði í lög.