01.04.1954
Neðri deild: 75. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 639 í C-deild Alþingistíðinda. (2781)

188. mál, áburðarverksmiðja

Flm. (Jón Pálmason):

Herra forseti. Þetta frv., sem hér liggur fyrir á þskj. 567 og flutt er af mér og hv. þm. N-Ísf. (SB), fjallar um það að leggja niður áburðareinkasöluna og leggja þau mál undir áburðarverksmiðjuna, þannig að þetta sé sameinað í eitt, framleiðsla, innflutningur og verzlun með tilbúinn áburð. Við flm. teljum, að það sé töluvert miklu ódýrara og hagkvæmara að koma þessu fyrir á þennan hátt.

Að öðru leyti skal ég segja það, að þau frv., sem hér hafa legið fyrir um áburðarverksmiðjuna og ekki eru komin til 2. umr., eru um gerbreytingu á því félagi sem hlutafélagi, og hefur landbn., eins og hv. þm. hafa tekið eftir, lagt til, að þeim málum verði frestað. En þrátt fyrir það þótt því sé frestað, þá er vel hægt að hugsa sér að afgreiða þetta mál, sem getur verið þýðingarmikið sparnaðarmál frá því, sem nú er.

Ég sé ekki ástæðu til að fjölyrða nú um þetta frv., en óska eftir, að því verði að þessari umr. lokinni vísað til hv. landbn.