01.04.1954
Neðri deild: 75. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 645 í C-deild Alþingistíðinda. (2785)

188. mál, áburðarverksmiðja

Einar Olgeirsson:

Herra forseti. Það er aðeins í sambandi við eitt atriði, sem hv. þm. A-Húnv. (JPálm) minntist á. Hann talaði um, að það væri verið að safna hlutafé í áburðarverksmiðjuna. Ég vil leyfa mér að spyrja, samkvæmt hvaða heimild sé verið að safna því hlutafé. Ég veit ekki betur en að þær 4 millj., sem lagðar voru í Áburðarverksmiðjuna h/f af hálfu einkaaðila, hafi allar saman verið lagðar fram fyrir þó nokkrum tíma. Ég veit ekki til þess, að neitt af þeim hlutabréfum, sem þá var ákveðið að færu til einkaaðila, 4 millj. kr., sé til sölu. Og ég vildi leyfa mér að spyrja að því, hvort t. d. S. Í. S. væri máske að selja eitthvað af þeim hlutabréfum, sem það á í Áburðarverksmiðjunni h/f, rekstrarfélaginu. Ég hef ekki heyrt um það getið, að S. Í. S. hafi tekið neina ákvörðun um að selja neitt af sinum hlutabréfum í Áburðarverksmiðjunni h/f, þessu rekstrarfélagi verksmiðjunnar. Ég veit ekki betur en af þeim 10 millj. kr. í hlutafé, sem Áburðarverksmiðjan h/f, rekstrarfélagið, hefur, þá séu öll þau hlutabréf uppborguð, og það er engin heimild til þess, hvorki í stofnskrá áburðarverksmiðjunnar, þar sem hún er birt í Lögbirtingablaðinu, né í lögum frá Alþ., að safna neinu meira hlutafé. Ég vildi a. m. k. gjarnan, ef mér hefur alveg yfirsézt það, vita, hvar sú heimild er, hvar ákveðið hefur verið að bjóða meira hlutafé út.

Nú sem stendur er ástandið þetta, að í rekstrarfélaginu Áburðarverksmiðjan h/f á ríkið 6 millj. kr., einkaaðilar eiga 4 millj. kr., þar af á Sambandið um helminginn og eitt fyrirtæki í Reykjavík, sem margir aðilar eru að, þ. e. Borgarvirki h/f, helminginn. Ef nú á að fara að bæta þarna við hlutafé, þá vil ég bara leyfa mér að spyrja: Á að bæta við upphæðina, þessar 10 millj.? Á að gefa einstökum mönnum hér á Íslandi, t. d. bændum eða öðrum, möguleika til þess að eignast þarna — við skulum segja t. d. 2½ millj. kr., þannig að einkaaðilar ættu þá 6½ millj. og ríkið 6 millj.? Er máske verið að undirbúa eitthvað slíkt, þannig að í þessu verksmiðjuhlutafélagi, þessu rekstrarhlutafélagi, ættu einkaaðilar hreinan meiri hluta? Ég vil leyfa mér að spyrja, og ég spyr vegna þess, að á síðasta Alþ., í sambandi víð Framkvæmdabankann, kom fram frá ríkisstj. stjfrv., sem var samþ. í Ed., þó að því væri breytt hér í Nd., um að selja þau hlutabréf, sem ríkið á í Áburðarverksmiðjunni h/f, að upphæð 6 millj. kr., til einkaaðila. Þetta var fellt út úr frv. Nú heyrir maður allt í einu talað um hlutafjársöfnun og það sé verið að bjóða út hlutabréf til einkaaðila hér á Íslandi. Ég vil leyfa mér að spyrja: Samkvæmt hvaða heimild er þetta gert? Ég veit ekki til þess, að það sé nokkur maður hér í landinu, sem hefur neinn rétt til þess að bjóða út hlutabréf þarna í viðbót.

Ég vek eftirtekt á þessu vegna þess, að það væri rétt í samræmi við aðrar aðfarir framsóknarráðh. í þessu áburðarverksmiðjumáli, ef það væri farið núna að leita til bænda um allt land. Ég heyri jafnvel getið um, að þriðjungur þeirra bænda, sem hafi svarað, hafi lofað kannske upp undir ¾ úr millj., það mundi samsvara því, ef allir bændur samþ. þetta, að það væri milli 2–3 millj., sem þarna fengist lagt fram. Ég vil leyfa mér að spyrja: Er þarna verið að undirbúa að stilla Alþ. allt í einu frammi fyrir fullgerðum staðreyndum? Er verið að lofa bændum núna, að þeir skuli fá að kaupa hlutabréf, án þess að þeir menn, sem lofa því, hafi nokkra heimild til þess? Á svo að koma hér til okkar í Alþ. á eftir og segja: Það er búið að lofa bændum, að þeir skuli fá að kaupa hlutabréf, þeir hafa sagt, að þeir vilji kaupa hlutabréf fyrir 2–3 millj. kr.; á að fara að svíkja þá um það? Á svo máske undir slíkum forsendum að þvinga hér í gegnum Alþ. lög, sem gefa bændum heimild — og við vitum, hvað það þýðir, það þýðir kaupfélögunum, það þýðir Sambandinu, og það þýðir ýmsum, sem kaupa á eftir upp þessi hlutabréf af bændum, — og skapa þannig möguleikann á því að ná rekstrarhlutafélaginu alveg undan áhrifum ríkisins. Ég vil vekja eftirtekt á þessu, vegna þess að ég er fyrir fram og hef fulla ástæðu til þess að vera tortrygginn út í þær aðferðir, sem hafa verið hafðar í frammi viðvíkjandi áburðarverksmiðjunni. Ég vil um leið bara minna hv. þm. á það, að ég tala ekki út í bláinn í þessum efnum, því að það liggur fyrir sama tilræði viðvíkjandi sementsverksmiðjunni. Ameríkanarnir eru þegar búnir að setja það upp sem skilyrði, ef það eigi að veita lán til hennar, að taka hana úr eign ríkisins og afhenda hana einstökum hlutafélögum, og við sjáum, að það er verið að reyna þetta sama enn þá viðvíkjandi áburðarverksmiðjunni.

Ég tek fyllilega undir með hv. þm. A-Húnv. um það, að ég álít, að bændur á Íslandi hafi annað að gera við sitt fjármagn en að leggja það í Áburðarverksmiðjuna h/f, það rekstrarfélag. Og ég verð að segja það, að svo framarlega sem það er allt í einu orðið svo gerbreytt nú, að bændur geti farið að leggja fram 2–3 millj. af sínu fé í svona, þá held ég, að það sé bezt fyrir þá, sem hafa skoðað sig sérstaka fulltrúa bændastéttarinnar hér í hv. d., að hætta að koma fram með þær kröfur, sem hafa verið fluttar hér þing eftir þing og mér fyrir mitt leyti þótti sjálfsagt að styðja, að bændum væri útvegað lánsfé úr stofnunum hér, að Búnaðarbankinn og aðrar slíkar stofnanir væru birgðar af lánsfé til þess að geta hjálpað bændum. Við höfum stutt þetta vegna þess, að við höfum trúað því, að það væri rétt, að bændur vantaði fé, og við höfum álitið þetta sjálfsagt, og við höfum sjálfir barizt fyrir svona málum. En mér finnst skjóta skökku við, ef það á núna að fara og ef það er virkilega hægt að fá fleiri millj. kr. hjá bændum til þess að leggja í fyrirtæki, sem miðar að því einu að stela af ríkinu mesta stóriðjufyrirtækinu, sem hér er til, fleka bændur bókstaflega inn í það. Ég vil þess vegna eindregið taka undir einmitt þá athugasemd, sem hv. þm. A-Húnv. kom með. Hann sagðist aldrei hafa verið hrifinn af 13. gr. í áburðarverksmiðjulögunum, og hann sagði það rétt, að landbn. þessarar hv. d. afgreiddi málið frá sér þannig, að áburðarverksmiðjan væri ríkiseign, og það var fyrst við síðustu umr. í Ed., sem þessu var öllu saman kollvarpað.

Ég vil þess vegna eindregið leyfa mér að vona, að þetta frv., sem hér liggur fyrir, fái sína þinglegu meðferð á þessu þingi, komi aftur úr landbn., og þá er um leið tækifæri til þess að reyna að ganga þannig frá þessum áburðarverksmiðjumálum, að þau verði Alþ. ekki til skammar.