23.11.1953
Neðri deild: 27. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 193 í B-deild Alþingistíðinda. (280)
103. mál, innflutningsmál- gjaldeyrismál, fjárfestingamál o. fl.
Lúðvík Jósefsson:
Herra forseti. Ég tel nokkra ástæðu til þess að víkja hér að þeim umræðum, sem fram hafa farið, áður en ég sný mér sérstaklega að frv.
Fyrst er í tilefni af því, sem hér kom fram í ræðu hæstv. forsrh., þar sem hann vildi láta í það skina, að lögin um fjárhagsráð væru í rauninni til komin í sambandi við þær tillögur, sem við sósíalistar lögðum fram á sínum tíma, eða um það leyti, sem nýsköpunarstjórnin var að láta af völdum, og um það leyti, sem þriggja flokka stjórnin var þá mynduð rétt á eftir. Ég hygg, að það sé rétt, eins og fram kom í ræðu 2. þm. Reykv., sem hér talaði næstur á undan mér, að það viti í rauninni fáir betur en einmitt hæstv. forsrh., að þetta er fullkomlega rangt, og ég ætla í því efni að rifja upp nokkur atriði frá þessum tímum og vitna hér í nokkur gögn, sem ég hef í höndum um það.
Ég hygg, að það muni flestir hv. alþm., að um það leyti sem nýsköpunarstjórnin var að láta af völdum, var orðið mjög rætt nm það hér í landi, að það hefði ekki á tímum nýsköpunarstjórnarinnar verið hafður eðlilegur hemill á húsbyggingarstarfsemi landsmanna. Sérstaklega bar á því, að Framsfl. hafði uppi mjög háværar raddir í þessa átt og þóttist benda á það, að einkum hér í Reykjavík hefði verið byggt svo, að fjárhagur íslenzku þjóðarinnar hefði þar ekki haft bolmagn til að rísa undir. Það bar líka stórkostlega á því, að þm. Sjálfstfl. tækju undir þessa kenningu og teldu lífsnauðsyn að setja einhverjar hömlur á, að slík byggingarstarfsemi gæti haldið áfram. Um þetta leyti kom út hagfræðingaálitið svonefnda, en það lagði einmitt allmikla áherzlu á, að óhjákvæmilegt væri að koma fyrir einhverju hömlukerfi til þess að draga úr því, að menn gætu fengið að byggja að vild sinni.
Ég fyrir mitt leyti álít, að allt of mikið hafi verið gert bæði frá fræðimanna hálfu og stjórnmálaleiðtoga hálfu á sínum tíma úr þeim byggingarframkvæmdum, sem þarna áttu sér stað. Hinu er svo ekki að neita, að án efa var hér þá efnt til byggingarframkvæmda, sem vel má flokka undir það, að þar hafi verið um óþarfaíburð að ræða, sem vel hefði mátt bíða með framkvæmdir á, og að betra hefði verið, að það fjármagn, sem í það fór, hefði gengið í einhverjar aðrar framkvæmdir. En það voru líka tilboð, sem ég hef í mínum höndum frá Framsfl. í sambandi við stjórnarmyndanir um þetta leyti, sem stefndu í þá átt að gera kröfu um það, að komið yrði á sérstöku fjárfestingarkerfi, sem sérstaklega miðaði að því að torvelda mönnum að fá hömlulítið að efna til byggingarframkvæmda. Það voru þær kröfur, sem fyrir lágu frá Framsfl. og Sjálfstfl. tók undir á sínum tíma, sem réðu úrslitum um það, að hér komu fram snemma á stjórnartímabili þriggja flokka stjórnarinnar — ekki nýsköpunarstjórnarinnar — frv. um fjárhagsráð, sem að öllu leyti miðaði að því að koma upp kerfi í þá átt að stöðva framkvæmdir, að menn gætu ekki ráðizt í byggingarframkvæmdir nema eftir mati þessa ráðs. En að þessu leyti til voru lögin um fjárhagsráð og þær reglur, sem þarna voru teknar upp, alveg gersamlega á öðrum grundvelli en þær tillögur, sem við sósíalistar höfðum lagt fram og hæstv. forsrh. var hér að vitna i, því að okkar till. voru um það, m.a. í byggingarmálunum, að það yrði á skipulegan hátt efnt til stórframkvæmda í byggingarmálum landsins. Í þeim tillögum, sem ég hef hér líka fyrir framan mig engu siður en hann, tillögum, sem við lögðum fram í sambandi við hugsanlega þátttöku okkar í nýrri ríkisstjórn, er gert ráð fyrir því, að sett verði á stofn sérstök stofnun ríkisins, sem taki að sér almennar byggingar í landinu fyrir byggingarfélög þau, sem þá var búið að lögfesta, og fyrir bæjar- og sveitarfélög, með það sérstaka verkefni fyrir augum að geta leyst þau húsnæðismál, sem enn lágu óleyst. Og ég veit, að ef hæstv. forsrh. vill lesa upp kaflann um verkefni þessarar sérstöku stofnunar, byggingarstofnunar ríkisins, þá sér hann það, og þá getur hver maður séð það að aðalverkefni stofnunarinnar átti að vera að sjá um nægilegt fjármagn handa þeim byggingarfélögum, sem lögum samkvæmt voru til í landinu, byggingarfélögum verkamanna og byggingarsamvinnufélögum, og byggingum bæjar- og sveitarfélaga, sjá um það að aðstoða þessi félög í því að fá fjármagn og í því að koma upp þeim aðkallandi húsbyggingum, sem enginn ágreiningur var um að þyrfti að vinna að. Og þessi byggingarstofnun ríkisins átti að fá svo mikið vald, að hún átti að ráða yfir öllu því byggingarefni, sem samkvæmt sérstakri áætlun átti að verja til byggingar á íbúðarhúsum. Og þessi byggingarstofnun var þess eðlis, þveröfugt við fjárhagsráð, að hún átti að efna til framkvæmda, hún átti að leysa úr málunum. Hún var á svipaðan hátt og nýbyggingarráð var áður; það var stofnun til þess að vinna að stórkostlegum framkvæmdum, en ekki stofnun til þess að torvelda framkvæmdir, eins og fjárhagsráðið var. En ég hygg líka, að munurinn sjáist, þegar þessi mál eru athuguð á þennan hátt, þegar þetta kemur fram og menn lesa þessar tillögur og bera þær svo aftur saman við reynsluna af fjárhagsráði, sem hefur orðið á þá lund, sem hæstv. forsrh. lýsti hér, ömurleg reynsla og öll í þá átt, eins og fjárhagsráð mun réttilega hafa skilið sitt verkefni, þegar lögin voru sett, að því hæri fyrst og fremst að setja hömlur á, að menn gætu byggt, og draga úr framkvæmdunum, eða í höfuðatriðunum að verða við meginkröfum Framsfl. frá tilraununum við stjórnarmyndun þetta ár og öllu því, sem fram kom í skrifum þeirra framsóknarmanna frá þessum tíma, að það væri eitt höfuðverkefni ríkisstjórnar á Íslandi að stöðva hinar „óhófslegu“ byggingar, sem þá höfðu átt sér stað á nýsköpunartímabilinu. Og þeir sjálfstæðismenn, sem gengu til samstjórnar við Framsfl., létu undan þessari pressu og lögleiddu fjárhagsráð. Og af því var það líka, eins og þingtíðindin bera glöggt vitni um, að m.a. formaður Sósfl., hv. 2. þm. Reykv., sem hafði þó verið mjög mikill hvatamaður að nýbyggingarráði og er það í sambandi við áætlunarbúskap, stóð hér upp á Alþ., eins og allir alþm. muna, og mælti gegn lögunum um fjárhagsráð, þegar þau lágu hér fyrir hv. Alþ., og hann flutti fjöldamargar till. til breytinga á því frv., sem þá lá fyrir, og hann varaði við, að afleiðingin af samþykkt þess frv. mundi einmitt verða sú, að með þessu ætti að torvelda eðlilegar framkvæmdir í landinu, með þessu ætti að stöðva þá þróun, sem hefði verið. En það var m.a. hæstv. forsrh. og flokksmenn hans, sem höfðu látið undan pressunni í þessu efni og töldu nauðsynlegt að stofnsetja fjárhagsráð og stóðu að fjárhagsráði allan tímann, þó að reynslan hafi verið þessi, eins og hann lýsti í ræðu sinni hér áðan.
Það er vitanlega fullkomið öfugmæli að halda því fram, að frv. um fjárhagsráð hafi raunverulega verið lögfesting á tillögum okkar sósíalista í þessum efnum. Það er fullkomið öfugmæli að halda því fram. og það hlýtur í rauninni að vera gert gegn betri vitund.
Þá var hér annað atriði, sem fram kom í ræðu hæstv. forsrh., en það var í sambandi við tillögur okkar um útflutningsverzlun, og hann vildi gera hér mikið úr því, að okkar tillögur í sambandi við þessar stjórnarmyndunartilraunir, sem fram fóru, hefðu verið á þá leið, að það skyldi komið á fót einni stofnun, sem hefði með höndum allan útflutning á útflutningsvörum landsmanna, og vildi svo draga af þessu þá ályktun, að þetta sýndi bezt, að við værum ekki með frelsi í útflutningi á okkar framleiðslu.
Þessu er í rauninni ranglega stillt upp af hæstv. forsrh. Við sósíalistar höfum aldrei dregið neina dul á það og gerum ekki enn, að v:ð teljum, að þjóðnýting, t.d. á verzlun landsmanna, bæði innflutningsverzluninni sjálfri til landsins og eins útflutningsverzluninni, sé æskileg og það sé hægt að ná langbeztum árangri einmitt með því skipulagi. Við höfum aldrei dregið neina dul á það, að þetta er okkar skoðun. En hins vegar höfum við bent á, að þeir menn, sem halda hinu gagnstæða fram, þeir, sem halda því fram, að þjóðnýtingin á utanríkisverzluninni, bæði aðflutningsverzluninni og eins útflutningsverzluninni, sé óæskileg og að það eigi að ríkja fullt frelsi í þessum efnum og að það muni gefa beztan árangur, — en það eru sjálfstæðismenn, sem þessu halda fram, — við höfum bent á, að þeir vilja ekki viðurkenna þetta nema að sáralitlu leyti í framkvæmd. Mennirnir, sem boða frelsi í þessum efnum í tíma og ótíma, vilja sáralítið af þessu gefa frjálst í framkvæmd, og m.a. kemur það fram í sambandi við útflutningsverzlunina, að þá þarf að hafa eins og nú er fullkomið ríkiskontrol á öllum hlutum í þeim efnum, þó undir mjög losaralegu skipulagi í ýmsum greinum, skipulagi, sem verkar mjög misjafnlega og þeir menn a.m.k., sem hafa með framkvæmdina á því að gera, kvarta sáran undan opinberlega í blöðum landsins hvað eftir annað, þar sem þær stofnanir, sem langsamlega að mestu leyti hafa með þetta að gera, verða að vinna gegnum ráðuneytið, sem oft og einatt hefur verið afar þunglamalegt fyrir þessar stofnanir. En Sjálfstfl. telur þó nauðsynlegt að viðhalda hálfgerðu ríkisskipulagi á útflutningsverzluninni, en þetta ríkisskipulag má þó ekki koma að neinu leyti við innflutningsverzlunina. Þar verða aðeins einstakir menn úr fremstu röð Sjálfstfl. og reyndar annarra flokka að hafa þetta takmarkaða frjálsræði, sem þeim nú er veitt.
Ég vil t.d. spyrja hæstv. forsrh. að því í tilefni af hans orðum um þessa till. okkar sósialista: Hvað er það, sem hann sjálfur vill leggja til núna í sambandi við útflutningsverzlun landsmanna? Hann skyldi þó ekki vera einmitt á þeirri skoðun, að hún þurfi að vera í höndum eins aðila, ríkisins sjálfs? Hann skyldi þó ekki vera á þeirri skoðun og halda henni stíft fram nú í dag, að útflutningsverzlunin þurfi óhjákvæmilega að vera í höndum eins aðila og í höndum ríkisins sjálfs? (Forsrh.: Nei, nei, það er megnasti misskilningur.) Ja, að minnsta kosti birtist skoðun hans þá í framkvæmd á annan veg, því að hann er andvígur því í framkvæmd, að útflutningsverzlunin verði gefin frjáls og hinir ýmsu framleiðendur hafi einir með þau mál að gera. Það er a.m.k. staðreynd. Einstakar tilraunir, sem einstaka framleiðendur, t.d. að sjávarafurðum, bæði þeir, sem eiga hraðfrystan fisk og aðrar tegundir, hafa gert til þess að fá leyfi til að starfa þar einir að útflutningsverzluninni án þess að fara í gegnum hin stóru samtök útvegsmanna, sem starfandi eru, hafa ekki náð fram að ganga. Og ríkisvaldið hefur haldið mjög fast um það vald sitt, að það hefði það fyrsta og síðasta vald yfir, hvernig yrði háttað útflutningsverzluninni. Auk þess vil ég benda hæstv. forsrh. á, að þær deilur, sem fram hafa komið frá okkur sósíalistum á útflutningsverzlunina, miðast ekki fyrst og fremst við það, að ríkisvaldið hafi með framkvæmd málanna að gera, heldur er fyrst og fremst deilt á það, hvernig tekizt hefur með framkvæmdirnar. Því verður t.d. ekki neitað, að það er erfitt að ætla að samræma það, að ríkisvaldið hafi með útflutningssöluna alla að gera og leyfi þar ekki öðrum að koma höndum að, en verði hvað eftir annað að lýsa því yfir í framkvæmdinni, að það geti ekki selt framleiðsluvörur landsmanna, og verði að hverfa að því ráði að takmarka sjálfa framleiðsluna. Ég vil benda á bara nokkur dæmi um þetta, af því að ég er ekki alveg viss um, að þau liggi fyllilega glöggt fyrir hjá hv. alþm., að það er ekki lengra aftur í tímann að fara en á fyrri hluta þessa árs, að þá lágu fyrir bein fyrirmæli til allra hraðfrystihúsa í landinu um það, að þau hefðu ekki leyfi til að framleiða meira af frystum þorski en sem næmi 2/3 hlutum af þeirri framleiðslu, sem þau höfðu árið á undan. Það varð að takmarka framleiðsluna við þetta. Það var ekki hægt að selja meira. Og það var ekki fyrr en úr raknaði með nýjum og stórfelldum viðskiptasamningum við Sovétríkin, að þessar hömlur voru upphafnar og mönnum var leyft að framleiða af þessari vörutegund það, sem þeir gátu. Það er ekki heldur lengra aftur í tímann að fara en til seinni hluta septembermánaðar, að þá tilkynnti ein sú stofnun, sem hefur með útflutning á þeirri framleiðslu að gera, sem sagt saltaðri síld, að bannað væri að halda áfram að veiða þá síld, sem þá var veidd í reknet í austurdjúpum. Okkur var bannað að halda áfram að framleiða þessa vöru, því að sagt var, að hún væri ekki seld og það væri ekki hægt að selja hana. Bankarnir brugðu líka fljótt við og tilkynntu, að þeir mundu ekki lána eyrisvirði út á þessa framleiðslu, og þar með var henni hætt.
Ég hef haldið því fram, að um leið og ríkisvaldið áskilur sér þann rétt, sem ég hef ekkert við að athuga, að það hafi með alla útflutningsverzlunina að gera, að það telji sig hæfast um að samræma þar heildarhagsmuni landsmanna og selja sem mest af framleiðslunni á hverjum tíma að hægt er og fá sem bezt verð að hægt er fyrir framleiðsluna fyrir landsmenn sem heild, - ég álit, að það hljóti að fylgja þessari kröfu ríkisvaldsins, þegar það tekur þetta að sér, að sjá þá líka um, að sala fari fram á því, sem okkur er lífsnauðsynlegt, eins og að selja okkar sjávarafurðir, en gefast þar ekki upp að verulegu leyti, eins og stundum hefur átt sér stað.
Hvað sem um þau mál verður sagt, þá verður því ekki neitað, úr því sem nú er komið, að þeir tímar hafa gengið yfir hjá okkur, að þannig stirðleiki hefur verið í afurðasölu landsmanna stundum, að það hefur sannazt skömmu seinna, að þar hefur verið um einhverja óeðlilega þvermóðsku að ræða, en ekki það, að fullprófað hafi verið, að ekki væri hægt að selja. Ég minni t.d. á í þessu tilefni það, þegar formaður okkar flokks lýsti því hér yfir, eftir að hann hafði komið frá Austur-Þýzkalandi, að það væru verulega miklir möguleikar á því og lægju í rauninni fyrir hein tilboð um að selja allmikið af sjávarafurðum til Austur-Þýzkalands í vöruskiptum, að þá dundu hér yfir landsmenn yfirlýsingar um það frá ríkisstj., að það væri ekki hægt, þetta væri allt saman rangt. Því var haldið fram miskunnarlaust, að til Austur-Þýzkalands væri með öllu útilokað að selja íslenzkar sjávarafurðir, ríkisstj. hefði margreynt og sent menn að athuga þetta, og hún gat ekki neitt. En svo leið svolítill tími, og reynslan sannaði þá, að allt í einu var Austur-Þýzkaland einn af okkar stærstu kaupendum að frystum fiski og borgaði hagstætt verð, og allir voru ánægðir með viðskiptin, þegar þau gengu í gegn. — Svipaða sögu var að segja um viðskiptin til Sovétríkjanna. Það var búið að gefa hér yfirlýsingar í nafni ríkisstj. í útvarpi og í blöðum og við flestar umr. hér á Alþ., og það engu siður við útvarpsumræður, að það væri með öllu rangt, sem við sósíalistar ýmsir bentum á, að það væru möguleikar á því að eiga viðskipti við Sovétríkin í þessum efnum, ef réttilega og eðlilega væri á málunum haldið, og bentum meira að segja á tilfelli, þar sem svo sérstaklega hafði staðið á, eins og t.d. í einu tilfellinu með mig sjálfan, að við höfðum haft beina aðstöðu til að ganga úr skugga um sjálfir, að það væri rannverulega hægt að selja afurðir til Sovétríkjanna. En þegar réttar íslenzkar stofnanir eru látnar vita um þetta á sínum tíma, þá verður útkoman eigi að siður sú, að það er hert aðeins á fullyrðingunum um það, að þetta sé ekki hægt og þetta sé bara kommúnistalygi, eins og maður heyrir stundum. En svo þegar allt er komið í fullkomið öngþveiti hér innanlands, þegar eitt aðalstjórnarblaðið. Morgunblaðið, verður m.a. að tilkynna, að þá, rétt upp úr áramótum, liggi m.a. fyrir um 2/3 hlutar af ársframleiðslu hraðfrystihúsanna í landinu óseldir, þegar svo er komið og í rauninni er komið fullkomið öngþveiti í sambandi við afurðasölu, þá tekst allt í einu að gera stóran og ágætan samning við Sovétríkin og leysa okkar vandræði. Og nú stendur þannig af sér, að það er beinlínis vöntun á fiski til þess að afgreiða upp í þá sölusamninga, sem hafa verið gerðir og eru ágætir.
Þessi dæmi — og fleiri væri hægt til að nefna — sýna það og sanna, að það hefur á ýmsum tímum ríkt þannig tregða og starfsleysi eða einhver pólitísk þrjózka, sem ráðið hefur og beinlínis hefur verið hemill á því, að afurðasalan gengi eins vel og æskilegt hefði verið. Og það er ekki aðeins, að það komi fram hjá mér — ég vil sérstaklega undirstrika það — heldur hefur þetta opinberlega komið fram m.a. frá þeim stofnunum, sem hafa fyrst og fremst með afurðasöluna að gera. Á ég þar t.d. við Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna, þegar formaður þeirrar stofnunar hefur skrifað um þau mál m.a. í Morgunblaðið og lýst þar yfir, að það hafi beinlínis verið komið í veg fyrir góðar og hagstæðar sölur á frosnum fiski með tregðu ríkisvaldsins eða þá t.d. tregðu fjárhagsráðs, sem oft hefur verið í vitnað.
Í sambandi við söluna á sjávarafurðum, af því að ég hef rætt nokkuð sérstaklega um það, vil ég taka fram, að ég deili ekki fyrst og fremst í þessu efni á þær stóru stofnanir, sem hafa haft með söluna á þessum afurðum að gera, eins og t.d. Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna, og ekki heldur á S.Í.F. fyrir það, að það hafi haldið linlega á því að reyna að selja þessar framleiðsluvörur, heldur miklu frekar á það skipulag, sem ríkt hefur í þeim efnum frá hálfu stjórnarvaldanna sjálfra. Það virðist vera, að oft og tíðum hafi ráðuneytin ekki verið sem liprust í þessu efni og a.m.k. fjárhagsráðið, sem nú á að leggja niður, hafi alloft lagt stein í götu þessara mála.
Ég sé svo ekki ástæðu til þess fyrir mitt leyti á þessu stigi málsins að víkja frekar að því, sem hæstv. forsrh. sagði hér um þetta mál. Ég hygg, að ég hafi bent á það og það muni hann viðurkenna, að þessi tvö aðalatriði, sem hann vildi gera okkur sósíalista hér tortryggilega út af, bæði byggingarmálin og eins í sambandi við tillögur okkar um skipun afurðasölumálanna, voru hér mjög ranglega túlkuð af honum og ekki í samræmi við það, sem okkar till. glögglega bera með sér.
En það voru hér nokkur atriði í sambandi við þetta frv., sem mig langaði að víkja sérstaklega að. Ég hygg, að það verði skoðun flestra, eins og hefur reyndar komið fram í þessum umr., að þeir telji, að aðalefni þessa frv., sem hér liggur fyrir, sé í rauninni nafnabreyting á fjárhagsráði og ekkert annað. (Forseti: Ég vil leyfa mér að benda hv. ræðumanni á, að fundartími er að verða búinn, en spyrja hann jafnframt, hvort hann búist við, að hann geti lokið ræðu sinni, ef við ykjum við fimm mínútum; þá mundi ég gera það.) Já, ég hugsa, að ég mundi nú ekki ljúka henni á fimm mínótum, en kannske á fimmtán mínútum eða svo, því að ég ætlaði að koma hér dálitið að frv. (Forseti: Ég geri ráð fyrir, að ég haldi fundarmönnum tæplega í fimmtán mínútur enn.) Ja, ég er tilbúinn að fresta minni ræðu, en ég ætlaði að víkja hér dálítið að frv. (Forseti: Það væri mjög æskilegt að ljúka umr. Ég vil mælast til þess, að ræðumaður freisti þess að ljúka ræðu sinni á tíu mínútum.) — Já, ég hafði sagt það, að ég býst við því, að það verði álit flestra, að aðalefni þessa frv. sé, eins og hér hefur komið fram í umr. áður, fyrst og fremst nafnabreyting á fjárhagsráði, að í rauninni sé ekki að finna í frv. neina verulega efnisbreytingu. Þó er því ekki að neita, að eitt ákvæði í frv. táknar nokkra breyt. frá því, sem verið hefur, en það eru ákvæðin um byggingarframkvæmdir. Það skal fúslega játað, að þar er gert ráð fyrir nokkuð rýmri reglum en gilt hafa, og er það auðvitað eðlileg afleiðing af því, að uppi hafa verið svo miklar og almennar kröfur um, að þar yrði nokkuð rýmkað frá því, sem verið hefur, að ríkisstj. hefur ekki talið sér fært að breyta nafninn á fjárhagsráði án þess að láta þó þessa breytingu fylgja með. En þó verð ég að segja það, að mér finnst, að þessi ákvæði frv. séu líka mjög ófullnægjandi og ekki í samræmi við það, sem hæstv. viðskmrh. lýsti hér yfir í framsöguræðu sinni fyrir frv. að væri þó megintilgangurinn og það, sem þyrfti sérstaklega að vinna að nú á næstunni.
Ég tók eftir því, að hæstv. viðskmrh. sagði í ræðu sinni, að fyrst og fremst bæri að stefna að frjálsri verzlun og þetta frv. ætti að miða að því. En hann undirstrikaði það, að eitt grundvallarskilyrði fyrir frjálsri verzlun væri einmitt aukin framleiðsla þjóðarinnar, aukinn útflutningur og bætt gjaldeyrisástand, og þetta er eflaust rétt. Hann sagði líka, að þessu frv. væri ætlað að reyna að stuðla að þessu. En er þá ekki full ástæða til þess, m.a. í sambandi við rýmkun á leyfum til bygginga, sem nokkuð er tekið þarna fyrir í þessu frumv., að rýmka nokkuð um þessi höft öll í sambandi við framleiðsluna sjálfa? Mér sýnist, að eftir sem áður sé í rauninni gert ráð fyrir því með þessu frv., að t.d. aðalframleiðsluatvinnuvegur þjóðarinnar, sjávarútvegurinn, verði eftir sem áður að eiga undir högg að sækja með sínar leyfisbeiðnir til yfirleitt allra sinna framkvæmda. Það er að vísu tekið upp í frv., að frjálst sé án þess að fá sérstök leyfi hinnar nýju stofnunar að byggja verbúðir og veiðarfærageymslur. En þetta eru þá einu byggingarframkvæmdirnar, sem eru leyfilegar í þágu sjávarútvegsins, án þess að leita þurfi til þessarar stofnunar, sem nú á að taka við af fjárhagsráði. Veiðarfærageymslurnar verða nú ekki taldar ýkja miklar byggingar eða miklar framkvæmd:r í þeim efnum. Um verbúðabyggingar verð ég að segja það, að mér finnst, að þetta orð, verbúð, sé nokkuð óljóst. Ég er ekki alveg fullviss um, hvaða merkingu hver og einn leggur í það, en algengast þykir þó að miða merkinguna við það, að þarna sé um að ræða búðir sjómanna í verstöðvum, þar sem þeir liggja við eða búa yfir vertíðina sjálfa. Ef eingöngu er átt við slíkar byggingar, þá tel ég nú líka, að æðimargt sé eftir af aðkallandi og nauðsynlegum byggingum í þágu sjávarútvegsins, sem hann verður eftir sem áður að leita til hinnar nýju stofnunar með og sækja um leyfi til í hverju einstöku tilfelli. En hvaða ástæða er til þess að vera að binda þetta? Á ekki einmitt að greiða fyrir aukinni framleiðslu og gera m.a. sjávarútveginum fært að geta athafnað sig öllu frjálsar en hann hefur getað fram að þessu? Af hverju má t.d. ekki bæta við þessa grein að heimila að byggja — við skulum segja — fiskgeymsluhús, geymsluhús yfir útflutningsvöruna, og fiskverkunarhús og yfirleitt aðrar byggingar, sem beinlínis eru í þágu sjávarútvegsins. Mér er kunnugt um, að það hefur einmitt á þessu ári alveg stórkostlega borið á því, að hinar ýmsu greinar sjávarútvegsins hafa þurft að sækja um leyfi til þess að byggja sér fiskgeymsluhús. Mikið hefur þurft að byggja af slíkum húsum um allt land, og alltaf er þörf fyrir að byggja fiskverkunarstöðvar. Og það er einkennilegt, ef það á að stöðva sjávarútveginn í eðlilegri gjaldeyrisöflun fyrir þjóðarheildina á því, að eitthvert ráð eða nefnd hér í Reykjavík eigi að þurfa að vera að þæfa um það lengi, hvort á að leyfa þeim, sem fást við þessa hlið framleiðslunnar, að efna til þessara nauðsynlegu framkvæmda. Ég mun flytja hér brtt. um að bæta við þennan lið þessu, sem ég taldi þarna upp, að það verði fullt frelsi til þess að byggja bæði fiskgeymsluhús, fiskverkunarhús og enn fremur aðrar nauðsynlegar byggingar í þágu sjávarútvegsins, og ég mun líta svo á, að af afgreiðslu þessarar till. megi nokkuð dæma um það, hvað mikinn áhuga hæstv. ríkisstj. hefur í raun og sannleika í þeim efnum að vilja stuðla sem allra mest og bezt að því, að framleiðslan geti haft sem frjálsastar hendur í því að vinna að þessu höfuðverkefni,sem er að vinna að aukinni framleiðslu, auknum útflutningi.
Það er áreiðanlega rétt, sem hér hefur fram komið, að breytingar á gömlu fárhagsráðslögunum eru ekki gerðar í neinum verulegum efnum með þessu frv. Aðalástæðan til þess, að þetta frv. er lagt fram, er án efa það loforð ríkisstj., sem gefið var við myndun núverandi ríkisstj., loforð um að leggja fjárhagsráð niður. Eins og fram kom hér í ræðu hæstv. viðskmrh. og eins forsrh., mun það vera rétt, að fáir munu harma dauða fjárhagsráðs, allir telja, að þar hafi óþörf stofnun, sem megi fara, verið lögð niður. Ríkisstj. hafði einmitt tekið undir þessa skoðun landsmanna, lofað því að leggja fjárhagsráð niður, en efndirnar eru þannig, að það virðist vera, að það eigi ekkert annað að efna en að skipta um nafnið eitt. (Forseti: Ég vil benda hv. ræðumanni á, að það virðist vera ástæðulaust að halda fundi lengur fram, þar sem maður er kominn á mælendaskrá og þar af leiðandi verður ekki hægt að ljúka umr.) Þá bara stöðva ég mál mitt. [Frh.]