27.10.1953
Efri deild: 10. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 652 í C-deild Alþingistíðinda. (2801)
69. mál, brúargerðir
Flm. (Jón Kjartansson):
Herra forseti. Ég hef leyft mér að flytja hérna frv. á þskj. 92. Er þar farið fram á, að brú á Múlakvísl á hinni svo nefndu syðri leið verði tekin inn í brúalög.
Eins og hv. þm. er kunnugt, hefur Vestur-Skaftafellssýsla mikla sérstöðu í samgöngumálum. Þar er engin höfn, brim og eyðisandar með allri strandlengjunni. Allir flutningar verða því að fara fram landleiðina með bifreiðum, en landleiðin um Vestur-Skaftafellssýslu er löng og erfið og verða því flutningar dýrir. Á leiðinni eru ýmsar torfærur, og versta torfæran er Höfðabrekkuheiði, sem er austast í Mýrdal. Yfir þessa heiði liggur þjóðleiðin nú. En Höfðabrekkuheiði er hin mesta snjókista, og verða vegir þar þar af leiðandi oft ófærir í fyrstu snjógusu; kemur það þráfaldlega fyrir, að þeir lokast bifreiðum vikum og jafnvel mánuðum saman vetrarmánuðina. Til þess að ráða bót á þessu er ætlazt til að flytja þjóðleiðina suður fyrir heiðina. Það mundi stytta leiðina verulega og einnig gera samgöngur í austurhluta sýslunnar öruggar. Það eru tvær ár á þessari leið, Kerlingardalsá og Múlakvísl. Það er verið sennilega nú þessa dagana að ljúka smíði brúar á Kerlingardalsá, en Múlakvísl verður erfiðari viðureignar, vegna þess að þar þarf langa varnargarða. En með hinum stórvirku tækjum, sem nú er yfir að ráða, má gera sér vonir um og treysta því, að kleift verði að halda kvíslinni í skefjum.
Það ræður að líkum, að góðar samgöngur í Vestur-Skaftafellssýslu hljóti að verða dýrar vegna hinna mörgu og stóru jökulvatna, sem þar eru. Ríkið leggur nú um 10 millj. kr. á ári með strandferðum. Vestur-Skaftafellssýsla nýtur ekki að neinu leyti góðs af strandferðum, sem eðlilegt er. En þrátt fyrir það að ríkið leggi svona mikið fé með strandferðunum, þá keppa allar sýslur að því að ná sem mestum og beztum bílvegum á landinu, og þetta er ofur skiljanlegt. Ég vænti, að hv. alþm. skilji sérstöðu Vestur-Skaftafellssýslu, skilji þá nauðsyn, sem á því er, að góðar samgöngur á landi séu um sýsluna.
Ég skal ekki hafa þessi orð fleiri, en legg til, að þessu frv. verði vísað til hv. samgmn. að lokinni þessari umr.