04.11.1953
Sameinað þing: 13. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 1 í D-deild Alþingistíðinda. (2826)
19. mál, höfundaréttur
Frsm. (Bernharð Stefánsson):
Herra forseti. Með þáltill. þessari er lagt til, að Alþ. feli ríkisstj. að gerast fyrir hönd Íslands aðili að allsherjarsamningi þeim um höfundarétt, er gerður var í Geneve 6. sept. 1952. En svo er háttað um þennan samning, að aðilar að honum eru ýmis ríki, sem eru ekki í Bernarsambandinu, og liggur þýðing þessa samnings í því, að þessi ríki bætast við um það að tryggja gagnkvæman höfundarétt, þó ekki alveg eins víðtækan og er í Bernarsambandinu sjálfu. Það má því líta svo á að nokkru leyti, að þessi ríki hafi gerzt nokkurs konar aukafélagar í Bernarsambandinu með þessum samningi, sem till. fjallar um. Í nál. allshn. Sþ. á þskj. 123 eru þessi ríki talin upp, sem þannig hafa gerzt aðilar að samningnum, án þess að ganga þó í Bernarsambandið.
Ég býst við, að slíkur samningur við mörg af þessum ríkjum hafi litla þýðingu fyrir okkur, en ég vil þó benda á það, að meðal þeirra eru t. d. Austurríki og Bandaríkin. Annars eru ýmis fleiri ríki, sem eru ekki meðlimir í Bernarsambandinu þar á meðal eitt af mestu stórveldum veraldarinnar, Sovétríkin. Þau eru ekki þátttakendur í því og ekki heldur í þessum samningi, sem hér um ræðir. Ég hygg, að það muni hafa aðalþýðinguna fyrir okkur Íslendinga að tryggja vernd höfunda okkar í Bandaríkjunum með þessum samningi, einkum ef það er nú rétt, sem nú er farið að geta um opinberlega, að höfundar í Bandaríkjunum njóti þessarar verndar á Íslandi, af því að Ísland er aðili að Bernarsambandinu, en íslenzkir höfundar njóti aftur ekki verndar í Bandaríkjunum. Þá sýnist það vera hagsmunir Íslands, eins og sakir standa, að gerast aðili að þessum samningi. Hitt er svo allt annað mál, hvort rétt er að halda áfram að vera í Bernarsambandinu. Það er vitað, og saklaust að nefna það hér þess vegna, að nú á seinni árum hafa vaknað efasemdir um þetta, og þær hafa vaknað aðallega, held ég, eða a. m. k. meðfram vegna ýmissa aðgerða STEFS nú á seinustu tímum. N. hefur þó ekki gert neina till. um úrsögn úr Bernarsambandinu, og slíkt mál liggur ekki fyrir. En eftir athugun málsins og með tilliti til þess, að við erum í Bernarsambandinu og höfum verið það lengi, þá leggur allshn. til, að till. þessi verði samþykkt.
Það liggur hér lagafrv. um svipað efni fyrir hv. Nd. Í sjálfu sér hefði verið rétt, að allshn. sameinaðs þings hefði átt viðræður við allshn. hv. Nd., sem þetta lagafrv. mun vera til meðferðar í. Af þessu hefur nú ekki orðið, en ég tel alveg víst, að svipað sjónarmið muni koma fram þar og að sú lagabreyting, sem þarf að gera í sambandi við þetta mál, nái fram að ganga.