10.03.1954
Sameinað þing: 39. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 26 í D-deild Alþingistíðinda. (2882)

50. mál, handrit, skjöl og forngripir

Gils Guðmundsson:

Ég vil flytja hv. fjvn. þakkir fyrir afgreiðslu hennar á þessu máli. Ég tel það mjög mikilsvert, að það komist nú nokkur skriður á það, að öryggisgeymsla fyrir þá dýrmætu gripi, sem um er rætt í till., komist upp svo fljótt sem verða má.

Fjvn. leggur til, að gerð verði lítils háttar breyting á tillgr., og sú breyting er fólgin í því, að það verði athugað sérstaklega, áður en til framkvæmda komi, hvort ekki mætti haga svo til, að slíkri geymslu sem þar um ræðir væri komið fyrir neðanjarðar í sem nánustum tengslum við safnahúsið í Reykjavík.

Ég get alveg fallizt á þessa afgreiðslu. Það er að sjálfsögðu ekki nema allt gott um það að segja, að þessi möguleiki sé rannsakaður. Að vísu virðist mér út frá mínu leikmannssjónarmiði í þessum efnum sem það geti orðið erfiðleikum bundið að koma þarna upp öryggisgeymslu, sem teljast mætti algerlega örugg, eftir því sem mannlegur máttur getur tryggt slíka hluti, hvað sem á kynni að dynja. Það mætti ætla, að þetta yrði auðveldara á einhverjum stað utan Reykjavíkur, sem ekki mundi vera eins hættulegur talinn, ef til stórkostlegra tíðinda skyldi draga. En hitt er svo á að líta, að þessi leið, ef fær yrði, mundi vera miklu heppilegri fyrir alla notkun þeirra bóka og gripa, sem geymd yrðu á slíkum öryggisstað. En á það vildi ég leggja alveg sérstaka áherzlu, að undirbúningi þessa máls yrði nú hraðað, það yrði ekki látið dragast árum saman að vinna að þessu, heldur yrði það gert svo fljótt sem verða má og síðan hafnar framkvæmdir. Þetta verður að gerast, og því fyrr sem framkvæmdir hefjast, því betra.