10.04.1954
Sameinað þing: 47. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 29 í D-deild Alþingistíðinda. (2894)
198. mál, fiskveiðasjóður
Frsm. (Pétur Ottesen):
Þáltill. þessari fylgir allýtarleg greinargerð. Get ég þess vegna að mestu leyti vísað til hennar um rökstuðning fyrir þessari till. Eins og þar er vikið að og alkunnugt er, er fiskveiðasjóður eina lánastofnunin, sem ætlað er það hlutverk sérstaklega að lána stofnlán til sjávarútvegsins,, og svona hefur þetta verið síðan lögð var niður útlánastarfsemi í stofnlánadeild Landsbankans. Þótt allmikið af fé því, sem stofnlánadeild Landsbankans hafði til útlána á sinum tíma, færi til togarakaupa — en fiskveiðasjóði hefur ekki verið ætlað sérstaklega að veita stofnlán í því augnamiði — þá var og nokkru af fé deildarinnar varið til lána til bátabygginga og til þess að reisa fiskiðjuver. Starfsemi stofnlánadeildar létti því að þessu leyti á fiskveiðasjóði, á meðan útlánastarfsemi deildarinnar hélzt. Nú er henni, eins og kunnugt er, fyrir nokkru lokið og engrar lausnar eða liðsinnis í þessu efni þaðan að vænta að óbreyttri tilhögun á rekstri deildarinnar.
Það er einkum tvennt, sem veldur því, hve stofnlánaþörf sjávarútvegsins til bátabygginga og fleira er nú mikil og aðkallandi. Á undanförnum árum, einkum á árunum 1950–1953, var mjög mikil rýrnun í fiskibátaflotanum, engin tök á þeim árum sökum aflabrests að fylla í þau skörð. Og þótt nokkuð hafi nú úr rætzt í þessu efni á árinu 1953, þá skortir enn þá mikið á, að úr sé bætt. Annað er það, að við útfærslu fiskveiðatakmarkanna hafa skilyrðin til fiskveiða á bátaflotanum stórum batnað og halda vafalaust áfram að gera það með hverju árinu, sem liður. Sýnilegur árangur friðunarinnar á bátamiðum hefur komið fyrr og greinilegar í ljós en nokkurn gat órað fyrir, svo hörmulega sem komið var hér hjá oss í þessum efnum. Nýtt líf hefur því færzt í vélbátaútgerðina. Í stað vonleysis og svartsýni, sem þar ríkti áður, hefur nú komið bjartsýni og trú á, að stórum bætt sé aðstaðan á þessu sviði, og þessi trú brýzt nú fram í athafnasemi, sem beinist mjög að því að vinna að aukningu bátaflotans og að bæta fiskverkunaraðstöðuna í landi. Nú er jafnframt því, sem kostað er kapps um að byggja stóra og haffæra báta til fiskveiðanna, einnig lagt mikið kapp á byggingu smærri báta með eða án þilfars, en bátar af þeirri stærð voru fyrir friðunina gersamlega dæmdir úr leik sökum langræðis. Nú standa miklar vonir til, að bátar af þessari stærð verði arðgæf atvinnutæki. sem auk þess fylla á mörgum stöðum í atvinnueyður þær, sem á vissum tímum voru fylgifiskar útgerðar stærri báta einna saman. Það er þess vegna skýr og ótvíræð þjóðfélagsnauðsyn, að hið opinbera skilji sinn vitjunartíma í því, að stutt sé að því með ráð og dáð, eftir því sem í valdi þess opinbera stendur, að menn eigi þess kost að geta snúið sér að því af alefli að hagnýta þessa breyttu aðstöðu á sviði fiskveiðanna.
Hér er það, sem einkum skortir á nú í þessu efni, að fiskveiðasjóður getur ekki mætt þeirri stofnlánaþörf, sem af fyrrgreindum ástæðum er nú fyrir hendi til aukningar og eflingar fiskibátaflotans. Úr þessu verður að bæta, og það verður að vinda mjög bráðan bug að því. Það má ekki dragast, úr því sem komið er, stundinni lengur.
Í grg., sem till. þessari fylgir, er bent á lítið dæmi þess, hversu nú er ástatt fyrir fiskveiðasjóði í þessum efnum. Allur almenningur, ríkisstj. og Alþ. hefur opin augu fyrir því, hver nauðsyn er á því, að þeim, sem beita sér fyrir atvinnurekstrinum í landinu, á hvaða sviði sem það er, sé veittur stuðningur, hvöt og uppörvun í starfi sínu, sem og öllum þeim öðrum, sem þar að vinna. Alþ. og ríkisstj. hefur nú og að undanförnu sýnt með mikilsverðum árangri mikla og merkilega viðleitni í því, að bætt sé úr stofnlánaþörf landbúnaðarins. Honum hefur nú og í framtíðinni verið veittur til afnota hálfur mótvirðissjóðurinn í þessu skyni. Þar er og, í landbúnaðinum, til mikils að vinna í okkar enn þá lítt numda landi. Þar er margra kosta völ. Frjósöm gróðurmold, sjálfsáður kjarngróður upp í jökulrætur, hverahiti, fossar o. fl. Þá hafa og verið bætt lánaskilyrði til húsabygginga í kaupstöðum og kauptúnum, sem mikil þörf var á. Lagður hefur verið grundvöllur að lánastarfsemi fyrir iðnaðinn, sem á fyrir hendi vafalaust góð vaxtar- og þróunarskilyrði með þjóð vorri. Þá hefur og á þessu þingi verið stigið merkilegt og þýðingarmikið spor í því að beina fjármagni þjóðarinnar að stórstigum framkvæmdum í virkjun fossa og dreifingu rafmagns um allar byggðir þessa lands.
Með sérstöku tilliti til þeirra breytinga og vaxtarskilyrða, sem nú eru fyrir hendi í bátaútgerðinni af þeim sökum, sem lýst hefur verið, má segja, að sjávarútvegurinn búi við skarðan hlut að því er stofnlán snertir til aukningar bátaflotans og fleira. Úr þessu verður að bæta, og er þess að vænta, að ríkisstj. finni til þess leiðir, svo sem tekizt hefur um lausn hliðstæðra mála í öðrum atvinnugreinum.
Á öndverðu þessu þingi var vísað til fjvn. þáltill. um, að ríkið léti á sinn kostnað byggja ákveðna tölu stærri og smærri báta, er það svo seldi þeim, er kaupa vildu, með hagkvæmum kjörum. Átti ríkið að taka lán til þess að standa undir þessum framkvæmdum. Till. þessi er hvað það snertir, að æskilegt sé, að stuðlað verði að aukningu bátaflotans, rétt mynd af áhuga þeim, sem nú er vakinn hjá fiskimönnum vorum í þessu efni. Fjvn. athugaði mál þetta rækilega. Átti hún um það viðræður við kunnáttumenn í bátabyggingum svo og áhugamenn ýmsa á sviði sjávarútvegsins, og er það álit nefndarinnar og stutt af þeim upplýsingum, sem hún aflaði sér, að erfiðleikar þeir, sem fyrir hendi eru á því að fá báta byggða, stafi ekki af því, að það skorti framtak, vilja og löngun sjómanna til þess að koma þessu máli áleiðis. Það, sem á strandar í þessu efni, að þeir komi í framkvæmd vilja sinum og áformum, er það, að eigi er fyrir hendi í fiskveiðasjóði nauðsynlegt fé til stofnlána í þessu skyni. Það voru allir sammála um það, að ef takast mætti að bæta aðstöðu fiskveiðasjóðsins til stofnlána, þá væri úr þessu máli greitt. Svo ber einnig á það að líta í þessu sambandi, að þeir, sem láta byggja báta, leggja mikið upp úr því að geta sjálfir haft hönd í bagga um ýmislegt, sem að byggingunni lýtur. Fjvn. væntir þess, að þeim tilgangi, sem í fyrrnefndri þáltill. felst, verði hagkvæmast náð og leiði til raunhæfari niðurstöðu með því, sem að er stefnt með till. þessari, en það verður að treysta því, að ríkisstj. vorri takist að leiða þetta mál fljótt til farsællegra lykta. Það er á það bent í grg., að breyta þurfi lögum fiskveiðasjóðs að því er snertir ákvæði þeirra laga um lántöku. En vinnist nú ekki tími til þess, áður en þingi lýkur, þá hefur ríkisstj. það mál að sjálfsögðu í sinni hendi, og er henni þá innan handar að fá úr þessu bætt.
Þessi till. er borin fram af n. og þarf þess vegna ekki, að ég ætla, frekari aðgerða en að koma til umr. og undir endanlega atkvgr.