10.04.1954
Sameinað þing: 47. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 32 í D-deild Alþingistíðinda. (2896)
198. mál, fiskveiðasjóður
Jóhann Jósefsson:
Herra forseti. Ég vil láta í ljós ánægju mína yfir fram kominni till. á þskj. 642, að svo miklu leyti sem hún miðar að því — og hún miðar að því — að efla fiskveiðasjóð vegna bátasmíða og raunar vegna fleira, skildist mér eftir ræðu hv. frsm. Og þá er ekki síður gleðilegt að heyra það, að hæstv. ríkisstj. hafi í huga að koma í framkvæmd eftir megni bæði því, sem þessi till. á þskj. 642 fer fram á, og eins hin till., sem er á þskj. 712 og hefur enn þá ekki komið til umr., fer fram á. En ég vil leyfa mér við þetta tækifæri, vegna þess, sem fram kemur í grg. till. á þskj. 642 og eins í ræðu hv. formanns fjvn., sem hafði framsögu í þessu máli, að láta hér strax koma í ljós þær athugasemdir, sem litlar eru, en ég þó hef byggðar á nokkurri reynslu varðandi það hlutverk, sem á að fullnægja hér með eflingu fiskveiðasjóðs, sem sé því að efla bátasmíðina innanlands.
Hv. frsm. virtist álíta, að ef hægt væri að efla fiskveiðasjóðinn, svo að hann hefði nægilegt fé til að lána út á stærri smíðar, þá væri sá vandi leystur. Ég get því miður ekki verið að öllu leyti á sama máli í þessu efni og vil nota þetta tækifæri til að koma mínum athugasemdum að til athugunar fyrir hæstv. ríkisstj., þegar hún fer að leysa það mál, bátasmíðina innanlands.
Mér var falið það af hálfu Sjálfstfl. hér í vetur, og um leið var einum hv. þm. Framsfl. falið hið sama hlutverk frá þeim flokki, sem sé að athuga leiðir að því, að skipasmíðastöðvar innanlands væru studdar til að leysa af hendi smíðar á fiskibátum við hæfi Íslendinga í samkeppni við útlendar stöðvar, er sækja fast á að fá að smíða þessa báta. Ég skilaði till. af minni hendi til míns flokks fyrir mörgum mánuðum, má segja nú orðið, og ég geri ráð fyrir því, að sá hv. þm. Framsfl., sem með mér starfaði, hafi gert eitthvað svipað. Ég vil á hinn bóginn ekki fullyrða neitt um það, að hvað miklu leyti við höfum í einstöku útfærsluatriðum verið sammála um þetta mál, en mér virtist, að ekki skildu leiðir neitt, er um það var að ræða, að nauðsyn væri á að efla bátasmíðina innanlands. Nú er það þannig, að þessi skoðun um, að það nægði að efla fiskveiðasjóðinn og efla lánveitingar til bátasmíða innanlands, það mundi lækna þau mein eða það ástand, sem skipasmíðastöðvarnar eiga við að stríða og þar af leiðandi líka þeir, sem njóta bátasmíðanna, hún var þá þegar uppi, og í sambandi við það vil ég láta þess getið, að þó að væri veitt lán, eins og þar var um talað, í mörg ár afborgunarlaust og með lágum vöxtum, þá þarf meira til, til þess að bátasmíðin innanlands geti staðizt þá samkeppni, sem að henni steðjar af útlendra hálfu, ef ekki á ýmist að neita um innflutning á bátum eða dæma þá menn, sem sjávarútveginn stunda, til þess að kaupa innlenda báta við verði, sem er langt frá því að vera samkeppnisfært við skip, sem smíðuð eru utanlands. Ég þarf ekkert að eyða mörgum orðum í það, hvað ég tel bátasmíðarnar innanlands vera nauðsynlegar, en ég vildi bara benda á þetta.
Ég get ekki álitið, að það muni leiða að fullu og öllu til farsællegrar lausnar á bátasmíðum innanlands, þó að með slíkum lánaveitingum og lánskjörum megi fá þá, sem kaupa vilja báta, til þess að hleypa sér í þær skuldir, sem það kostar nú og mun kosta sennilega í framtíðinni að fá fiskibáta smíðaða. Og ég vil, að hv. alþm. geri sér það ljóst, að hér er um að ræða stuðning við innlendan iðnað, þegar verið er að tala um að létta undir með bátasmíðunum, — stuðning við innlendan iðnað ekki síður en við bátaútveg landsmanna. Verðmismunurinn á vélbátum smíðuðum innanlands og svipuðum vélbátum, sem hægt er að fá smíðaða utanlands, nemur nokkrum þúsundum króna á smálest. Ég skal ekkert fullyrða um það, hvað það er núna. Ég komst að þeirri niðurstöðu og fleiri hér í vetur, að bilið næmi um 3500–4000 á smálest þá, og ég ætla, að það bil hafi ekki mjókkað síðan. Hér er um dýrtíðarráðstöfun að ræða fyrir skipaiðnaðinn, og sá kostnaður, er af því leiðir að gera framleiðslu fiskiskipanna samkeppnisfæra, á að berast uppi af sama aðila sem greiðir niður afurðir landsmanna, t. d. greiðir niður innlendar framleiðsluvörur. En hann á ekki að leggja beint á sjómenn og útvegsmenn, hvorki sem skuldabagga vegna stofnlána skips né á annan hátt.
Við höfum nýlega verið vottar að skýrslu hæstv. fjmrh., sem meðal annarra margvíslegra mikilvægra upplýsinga gaf þá skýrslu, að ríkissjóður hefði orðið að borga á áttundu millj. króna, tók ég eftir, eða a. m. k. um 7 millj. kr. til stofnlánadeildarinnar vegna vanskila af lánum á togurum. — Það er ekki vert að reiða sig eingöngu á lánaleiðina í þessu efni, þegar svo er komið, að bátasmálestin, smíðuð innanlands, kostar það, sem við vitum að hún kostar nú í dag. Hins vegar mætti vel búast við því, og ég veit það af áhuga þeim, sem ríkir hjá sjómönnum og bátaútvegsmönnum um að fá sér þessi nauðsynlegu tæki, að þá gæti það vel farið svo, að menn hleyptu sér í svo að segja óbotnandi skuldir heldur en eiga þess engan kost að endurnýja skip sitt eða fá sér nýtt skip. Þess vegna vildi ég, að hæstv. ríkisstj. hefði fullt tillit til þess, þegar þetta mál verður athugað nú til næsta Alþ., að það er nauðsynlegt hvort tveggja, að efla fiskveiðasjóðinn svo, að hann geti veitt góð og löng lán þeim, sem fiskibáta vilja eignast, og ekki síður að gefa því gætur, að það verður, eins og nú er ástatt, að greiða niður eitthvað byggingarkostnaðinn innanlands, þannig að menn verði ekki svo að segja skyldaðir að reisa sér hurðarás um öxl í þessu efni. Skipasmíðastöðvarnar og starfsemi þeirra eru alþjóðarnauðsyn, og þar sem dýrtíð og verðbólga í landinu gerir þeim ókleift að keppa við útlenda smíði, er auðsætt, að hið opinbera verður að styðja iðnað þeirra beinlínis, ef hann á ekki að stöðvast, enda er það viðurkennt að nokkru leyti af löggjafanum nú þegar, þar sem er heimild í fjárlögum og hefur verið um hríð til endurgreiðslu á aðflutningsgjöldum á efni, er fer til skipasmíða. Þó að það komi ekki að fullum notum, þá er það í þessa átt.
Ég skal svo ekki orðlengja um þetta. Ég vildi koma þessari ábendingu að, af því að ég vil gjarnan leggja þar lið að, bæði að skipasmíðastöðvarnar starfi og ekki síður hinu, að sjómenn og útvegsmenn geti keypt sína báta þar, sem þeir óska þess.
Í sambandi við þetta minnist ég þess, að hér var fyrir nokkru til umræðu fsp. frá einum hv. landsk. þm. til hæstv. ríkisstj., sem meðal annars, um leið og hún miðaði að bátasmíði innanlands, gekk í þá átt, hvort ríkisstj. mundi hamla innflutningi á aðfluttum bátum, ég held hún hafi verið orðuð eitthvað á þá leið, eða hvort hún mundi ekki leyfa það, meðan svo stæði sem nú er. Mér heyrðist á svari hæstv. ráðh., er svaraði, en því miður er ekki hér viðstaddur nú, að það væri látinn í ljós nokkur vafi á því, að innflutningur á bátum yrði leyfður. En ég vil benda hæstv. ríkisstj. á það, að ég álít, að meðan það er enginn skriður kominn á bátasmíðarnar innanlands, þá nær það ekki nokkurri átt, að ríkisstj. standi mjög í vegi fyrir því, að menn fái að kaupa báta utanlands frá eftir því, sem þeir óska og þurfa. Hæstv. ríkisstj. hefur líka viðurkennt þetta sjónarmið á einu skeiði, — ég held það hafi verið s. l. haust, — en það liggur núna fyrir fjöldi af beiðnum frá ýmist gömlum útvegsmönnum eða ungum áhugamönnum, sem vilja eignast báta, en geta ekki fengið þá smíðaða innanlands eins og stendur sökum of mikillar dýrtíðar, það liggur fyrir bunki af umsóknum um aðflutningsleyfi á bátum, sem mér þykir mjög leitt að ekki skuli vera sinnt. Ég vil mælast til þess og vonast til þess, að þeir, sem yfir innflutningnum ráða, standi ekki að því, að áhugamenn á þessu framleiðslusviði, sem eru okkur engu síður nauðsynlegir en áhugamenn á öðrum framleiðslusviðum, ef ekki fremur, að áhugamenn þeir, sem vilja eignast báta og koma upp skipaflotanum áframhaldandi, þurfi að vera vonbiðlar missirum saman eftir því að fá að kaupa sér hæfileg fargögn í þessu skyni. Líka vil ég leggja áherzlu á það, að það sé ekki gengið út frá því sem sjálfsögðu, að þessir menn fái ekki að kaupa bátana þar, sem þeim er hentast að fá þá og ódýrast. Það verður að aka seglum eftir vindi í þessu efni, og meðan bátasmíðin innanlands er í því erfiðleikaástandi, sem margbúið er að lýsa hér og ég skal ekki fjölyrða meira um, þá má ekki daufheyrast við óskum áhugamanna í þessu efni, jafnvel þó að þær verði ekki uppfylltar á annan hátt en þann að leyfa þeim að kaupa bát frá útlöndum til síns atvinnurekstrar.