07.04.1954
Sameinað þing: 45. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 58 í D-deild Alþingistíðinda. (2928)

100. mál, milliþinganefnd í heilbrigðismálum

Frsm. (Halldór Ásgrímsson):

Herra forseti. Mér virðist það ætli að verða nokkur goluþytur í hv. Alþ. út af þessari meinlausu till., ef dæma má eftir ræðu hv. 5. þm. Reykv. (JóhH). Hann undraðist, að fjvn. skyldi leggja til, að tillagan yrði samþykkt, og enn fremur, að nefndin skyldi ekki hafa birt umsögn landlæknis. Til þess bar vitanlega enga nauðsyn, og ég held, að mér sé óhætt að segja það fyrir hönd n., að hún hafi litið svo á, að hin langa álitsgerð landlæknis hafi verið þess eðlis, að ekki hafi verið ástæða til að birta hana. Hún var mest sögulegt yfirlit yfir þróun heilbrigðismálanna og niðurstaðan sú sem hv. flm. gat um, að nokkur vafi væri á því, að mþn. í þessu máli væri nauðsynleg. Ef svo hefði verið sem hv. 5. þm. Reykv. virtist ætlast til, að hv. Alþ. færi í þessu efni algerlega eftir því áliti, sem kynni að koma frá landlækni, þá hefði það auðvitað skipt máli að birta álit hans. En ég ætla, að flestum hv. alþm. sé ljóst, eins og ég sagði áðan í mínum fáu framsöguorðum, að heilbrigðismálin eru það mikilvæg og kosta þjóðina árlega svo mikið fé, að full ástæða er til að skipa n. til að íhuga, hvort ekki mætti eitthvað betur fara í þeim málum og hvort við getum ekki eitthvað lært af þeim mistökum, sem þar hafa þegar átt sér stað, o. s. frv.

Hæstv. viðskmrh. vék að því, að því er mér skildist, að honum væri ekki svo mjög ljós nauðsyn á þessari nefndarskipun, en kom þó með brtt. við hana, þ. e., að nm. skuli vera þrír og n. hafi lokið störfum fyrir 1. okt. n. k. Mér finnst þessi till. frambærileg, enda færði hæstv. ráðh. rök fyrir því, að n. hefði lokið a. m. k. einhverjum störfum í haust. Ég hef haft tækifæri til að bera brtt. undir nokkra meðnm. mína, og eru þeir mér sammála um að mæla með henni. En með ræðu sinni færði hæstv. ráðh. fram nýjar ástæður og meðmæli með því, að mþn. verði skipuð í þessum málum, því að hann gat þess, að fyrir Alþ. liggur nú frv. til laga um nýja læknaskipun, og taldi ástæðu til þess og vinning, að þessi fyrirhugaða n. fjallaði þar um til haustsins. Ég vil því álíta, að hv. 5. þm. Reykv. telji málið ekki eins alvarlegt, eftir að hann hefur heyrt skoðun hæstv. ráðh., auk þess sem hann ætti ekki að telja málið svo hættulegt, þar sem hlutaðeigandi ráðh. er flokksbróðir hans og mun enn fremur einhverju ráða um nefndarskipunina.

Hv. 4. þm. Reykv. (HG) taldi, að í heilbrigðismálunum yrði ekki miklu um þokað frá því. sem þau eru nú, og að flest sjúkrahús, sem byggja ætti, væru þegar byggð, og það sama sagði hæstv. ráðh., nema hann talaði um óbyggt sjúkrahús á Suðurlandsundirlendi. Yfirleitt var tónninn í ræðu hv. 4. þm. Reykv. sá, að í heilbrigðismálunum væri allt í föstum skorðum og harla góðum og að nefnd mundi ekki hafa mikið til málanna að leggja, sem vinningur væri að. Þetta er auðvitað fullmikil bjartsýni á ástandinu eins og það er.

Hæstv. ráðh. minntist á, að aðeins væri ein sjúkrahúsbygging eftir, þ. e. fyrir Suðurland, og tel ég, að mþn. mætti gjarnan athuga það mál. En ég vil leyfa mér að minna hæstv. ráðh. á, að það hefur líka verið ráðgert fjórðungssjúkrahús fyrir Austurland. Þar eru nú þegar tvö sjúkrahús, þótt ekki sé nema annað starfandi sem stendur, þ. e. sjúkrahúsið á Seyðisfirði, en hitt, vænt sjúkrahús, er í smíðum á Norðfirði. Spurningin þar er þá sú, sem þessi mþn. mætti gjarnan íhuga: Á að byggja þriðja sjúkrahúsið eystra, t. d. að Egilsstöðum, eða eiga tvö að nægja? Sýnist þar vera nokkurt verkefni fyrir n. til að athuga og það ekki ómerkilegt. Eru svo ekki raddir uppi nyrðra um, að þar þurfi enn að bæta við sjúkrahúsin? Hið mikla og glæsilega sjúkrahús á Akureyri er nú að taka til starfa. Samt þótti nauðsynlegt að byggja stórt sjúkrahús á Blönduósi, sem ýmsir efast um að sé við hæfi, og í þriðja lagi hefur heyrzt, að uppi væru raddir um að byggja sjúkrahús á Sauðárkróki. Er ekki nokkurt verkefni fyrir væntanlega nefnd að meta þessa nauðsyn og íhuga, hvort hér sem kannske víðar sé ekki stefnt út í byggingu og rekstur sjúkrahúsa, sem reynist ofviða? Svona má halda áfram að spyrja og telja upp atriði, sem verða ekki gefin svör við nema eftir ýtarlega athugun. Og ég fullyrði, að þær ræður, sem hér hafa verið fluttar gegn nefndarskipun, hafi ekki innihaldið nein frambærileg rök gegn þessu máli.

Það er ekki nægilegt að byggja mikil og góð sjúkrahús. Eins og hv. flm. þessarar till. vék að, þarf líka að hugsa fyrir rekstri þeirra, og ekki eingöngu það, heldur líka, að til þeirra fáist læknar við hæfi, þ. e. læknar, sem færir eru um að vinna öll þau störf, sem ætlazt er til að unnin séu í nútíma sjúkrahúsum með fullkomnum tækjum. Þetta þarf m. a. að hafa í huga, og því tel ég nokkurn vafa leika á, hvort að hóflegu marki sé stefnt nyrðra í þessum málum. Eins þarf á sama hátt að meta, hvað er við hæfi okkar Austfirðinga í þessum efnum sem og Sunnlendinga.

Ég hef ekki fleira að segja um málið að svo komnu, en vil að lokum endurtaka það, að n. mælir með brtt. hæstv. viðskmrh.