13.04.1954
Sameinað þing: 49. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 91 í D-deild Alþingistíðinda. (2961)
206. mál, togaraútgerðin
Gísli Jónsson:
Herra forseti. Með því að hv. flm. hefur alveg láðst að sýna fram á, hvernig á að ná saman endunum, ef uppfyllt er ákvæði till., þar sem ætlazt er til, að kostnaðurinn aukist eins mikið og sparað er á öðrum sviðum, þá sé ég ekki ástæðu til að samþ. till. og segi því nei.