12.04.1954
Sameinað þing: 48. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 111 í D-deild Alþingistíðinda. (2998)

192. mál, alsherjarafvopnun

Flm. (Einar Olgeirsson):

Herra forseti. Ég sé nú, að hæstv. forsrh. er búinn að flytja þá ræðu, sem hann ætlaði að flytja um þetta mál, og menn eru búnir að heyra hans innlegg í málið. Það gæti kannske verið, að nú stæðu upp einhverjir fleiri næst af þessum sex, sem voru búnir að kveðja sér hljóðs. Ég hef nú satt að segja aldrei vitað það áður hér, að ég hefði svona mikil áhrif á þessa menn, að þeir þyrftu nú bara sex saman að fara að rísa upp til þess að andmæla þeirri ræðu, sem ég flutti hérna áðan. Ég hef hingað til vitað það, að þegar ég hef flutt hérna ræður, þá hefur þessum mönnum þótt miklu betra, að þegja á eftir heldur en að tala. Það er alveg sérstakt tilefni, sem þessi hæstv. ríkisstj. nú tekur sér til þess allt í einu að fara að tala. Þetta er sama ríkisstj, sem er búin að þegja allt þingið. Hún hefur þagað yfirleitt yfir flestum málum, sem hér hafa verið flutt. Af hverju þarf hún að tala núna? Jú, af því að það er síðasta nóttin. Af því að það á að sjá um að afgreiða ekki fleira.

Ég skal láta hæstv. ríkisstj. vita eitt: Ef hún ætlar sér að hafa svona vinnubrögð í frammi, þá getur stjórnarandstaðan líka breytt um vinnubrögð. Og ég vil láta hæstv. ríkisstjórn vita það, að það yrðu ekkert þokkaleg vinnubrögð hérna á þinginu, svo framarlega sem það ætti að taka þessi vinnubrögð ríkisstj. núna í kvöld til fyrirmyndar. Þess vegna vil ég eindregið mótmæla því, sem hér er nú að gerast, og ég vil taka það fram, að í þeirri ræðu, sem ég flutti hér áðan, var ekki eitt einasta orð, sem ekki væri mælt af fullri ábyrgðartilfinningu fyrir því, sem nú væri að gerast í veröldinni. Ég hélt ekki, að hæstv. ríkisstj. þyrfti að taka allt svo nærri sér, þó að Bandaríkin gerðu einhvers staðar eitthvað, að hún þyrfti að fara að rjúka upp, þó að það væri deilt á stjórn Bandaríkjanna; það er nóg fyrir hana að hugsa um það, sem stjórn Bandaríkjanna gerir hér á Íslandi. Ég held hún ætti að láta sér nægja að verja það.

Því fór fjarri, að sú till., sem ég flutti hér, væri einhver sýndartill. Það er þvert á móti, og það veit hæstv. forsrh. sjálfur bezt, þó að hann tali hér öðruvísi. Það er gott að vera með galgopaskap stundum, eins og hann var hérna áðan. En það mál, sem nú er um að ræða hér, er alvarlegra en það eigi við. Þess vegna vil ég lýsa því yfir, að ég álit ákaflega illa farið, að hæstv. forseti skuli hafa látið ríkisstj., þó að hún stökkvi upp á nef sér, nota forsetavaldið á þennan hátt, sem nú hefur verið gert, og taka orðið af þm.

En hitt vil ég taka fram, og það má hæstv. ríkisstj. muna, að þessi aðferð, sem hún hefur beitt hér í kvöld, verður máske notuð í þinginu meira en hæstv. ríkisstj. þykir sjálfri gott. Stjórnarandstaðan hefur verið mjög „lojul“ hér á þessu þingi. Það hafa verið stjórnarfrv. hér, þegar þannig hefur verið skipað í Nd., að það var í lófa lagið að fella þau við 1. umr., ef menn hefðu kært sig um það. Svona illa sækir stjórnarliðið venjulega þingfundi hér, svo að ég tali ekki um ráðherrana. En við skoðuðum það sem okkar verkefni sem þingmenn að sjá um að koma þessum málum áfram. Þess vegna á það sannarlega ekki við, þegar hæstv. ríkisstj. fer að setja sig upp á háan hest hvað þetta snertir og fer að reyna að nota sér það, að svona er orðið framliðið þingtímans, til þess að reyna að hindra, að mál fái eðlilega afgreiðslu.

Það er ekki til neins að ætla að verja hæstv. forseta í þessu efni. Hann veit það ósköp vel sjálfur, að þá aðferð, sem hann lét viðhafa núna, væri alltaf hægt að viðhafa til þess að þagga niður í stjórnarandstöðunni. Þess vegna veit hann ósköp vel, að þetta er ekki aðferð, sem samrýmist þeim skyldum, sem forseti hefur gagnvart öllum þm.