04.11.1953
Sameinað þing: 13. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 144 í D-deild Alþingistíðinda. (3030)
71. mál, strandferðir og flóabátar
Skúli Guðmundsson:
Herra forseti. Mál það, sem hér liggur fyrir á þskj. 94, er till. til þál. um rekstur strandferða og flóabáta. en á síðasta þingi kom fram undanfari þessa máls. Það var frv. á þskj. 515, flutt af hv. þm. Barð. (GíslJ). Efni þess frv. var nú svipað því, sem hér liggur fyrir í þáltill. Þar var sagt, að leita skyldi samninga við Eimskipafélag Íslands um, að það taki að sér allar strandferðir, þar með taldar flóabátaferðir, sem styrks njóta úr ríkissjóði, og samningarnir áttu að vera um það, að Eimskipafélagið héldi uppi þessum ferðum með þeim styrk úr ríkissjóði. er samið kynni að verða um, enda tæki Eimskipafélagið þá við öllum strandferðaskipum, sem ríkissjóður er eigandi að. Í frv. sagði enn fremur, að ef samningar tækjust, þá skyldi ríkisstj. heimilt að afsala til Eimskipafélagsins öllum skipum og öllum öðrum eignum ríkisins, sem Skipaútgerðin hefur yfir að ráða, þ. á m. hlutaeign ríkisins í flóabátafélögum, ef um slíka eign væri að ræða. Allt átti þetta að afhendast án annars endurgjalds en þess, að Eimskipafélag Íslands skuldbyndi sig til að halda uppi strandferðum á sinn kostnað í 25 ár, og sagt var, að styrkurinn, sem samið yrði um að greiða Eimskipafélaginu árlega þennan tíma, skyldi ákveðinn með tilliti til þessarar eignarafhendingar. Í grg., sem fylgdi frv. á síðasta þingi, var m. a. talað um, að nauðsynlegt væri, að strandsiglingarnar væru á einni hendi, og flm. kvaðst telja það langheppilegast, að allar strandsiglingar yrðu afhentar Eimskipafélaginu, eins og hann orðaði það. Hann lét þess þar getið, að það væri ávallt að koma betur og betur í ljós, að nauðsynlegt væri að koma þessum málum undir eina stjórn og einn aðila.
Í þeirri þáltill., sem hér liggur fyrir, er einnig lagt til, að leitað verði samninga við Eimskipafélagið og annan aðila, Samband ísl. samvinnufélaga, um, að þessi félög taki að sér frá næstu áramótum, eða svo fljótt sem verða má, allar strandferðir og flóabátaferðir umhverfis landið, og er gert ráð fyrir því í till., að þessi félög taki þá við öllum þeim skipastól, er Skipaútgerð ríkisins hefur nú yfir að ráða og ríkissjóður er eigandi að. Það er ekki sérstaklega tekið fram í till., hvort flm. gera ráð fyrir, að það þurfi að greiða þessum félögum einhvern styrk, rekstrarstyrk að auki, en maður getur búizt við því samkvæmt því, sem fram kom í frv. hv. þm. Barð., sem er fyrri flm. að till., að hann geri ráð fyrir nú, eins og í fyrra, að til þess þurfi e. t. v. að koma, að það verði einnig greiddur ríkisstyrkur.
Nú kemur mér í hug, að það gæti verið erfitt að gera samninga um svona mál fyrir næsta aldarfjórðung nú á þessari stundu, því að margt er nú að taka breytingum í okkar þjóðfélagi, alveg eins á sviði samgöngumála sem öðrum, og gæti út af fyrir sig orðið erfitt og nokkrum vandkvæðum bundið að koma á samningum, sem landsmenn yfirleitt væru ánægðir með eftir svona 20 eða 25 ár.
Það er nýtt í málinu nú, að hér er lagt til, að samið verði við tvo aðila, en aðeins einn áður. Þar með virðist það vera úr sögunni, sem haldið var fram í fyrra, að svo mjög nauðsynlegt væri að koma málum þessum undir eina stjórn og einn aðila. Það lítur út fyrir, að flm. telji sér ekki fært lengur að flytja málið á þeim grundvelli. Þeir hafa komið auga á þá staðreynd, að við hliðina á Eimskipafélagi Íslands er nú komin skipaútgerð Sambands ísl. samvinnufélaga. sem er vaxandi fyrirtæki, hefur þegar, eins og flm. tók fram, nokkuð af góðum skipum og tekur í vaxandi mæli að sér flutninga fyrir landsmenn víðs vegar um land, sérstaklega flutning á vörum frá útlöndum á hinar ýmsu hafnir. Sambandið hefur stór vöruflutningaskip, 2000–3000 tonna skip, en hefur einnig eignazt nokkuð af minni skipum, um það bil þúsund smálesta skipum, sem henta mjög vel fyrir margar hinar smærri hafnir landsins. þar sem hafnarskilyrði eru þannig, að skip af þeirri stærð geta fengið afgreiðslu við bryggjur, en hins vegar ekki miklu stærri skip.
Samband ísl. samvinnufélaga hefur þannig eignazt nokkuð af skipum og rekur þau. Þó má benda á það, að aðstaðan er mjög ójöfn í þessari samkeppni milli Sambandsins og Eimskipafélagsins. Annar aðilinn, Samband ísl. samvinnufélaga, hefur nú að undanförnu greitt hærri skatta til hins opinbera en nokkur annar aðili hér á landi, en hitt fyrirtækið er skattfrjálst sem kunnugt er samkvæmt sérstökum lögum og sterkefnað. Þrátt fyrir það hafa samvinnumenn ekki hikað við að taka flutningana þegar að verulegu leyti í eigin hendur og hugsa sér sjálfsagt að halda þeirri starfsemi áfram og auka hana, eftir því sem þörfin kallar að.
Það er talað um það hér í grg. með þessari till., hver halli hafi orðið á útgerð ríkisskipanna. Hv. þm. Barð. nefnir, að 1952 hafi hallinn orðið rúmlega 10 millj. kr. Maður gæti nú misskilið hans orð þannig, að það væri rekstrarhallinn hjá Skipaútgerðinni, en það er nú ekki svo há upphæð, heldur eru þarna, meðtaldir flóabátastyrkirnir, sem Alþingi úthlutar árlega, eins og kunnugt er. Hallinn á fyrirtækinu Skipaútgerð ríkisins er hins vegar eftir reikningnum, sem við fengum nýlega, eitthvað 8½ millj. kr. eða þar í kring.
En hvað er að segja um það fé, sem Eimskipafélagið hefur safnað á undanförnum árum, sem er geysimikið, hvaðan er það tekið? Það hefur vitanlega verið tekið af þeim sömu mönnum sem borga gegnum ríkissjóðinn hallann á Skipaútgerð ríkisins, og það má gjarnan minna á það í þessu sambandi, að það virðist stundum hafa verið lakar búið að þessu ríkisfyrirtæki en að hlutafélaginu Eimskipafélagi Íslands af valdhafanna hálfu. Ég vil minna á það, að á stríðsárunum fengu Íslendingar mörg skip á leigu frá öðrum þjóðum og þeim var af ríkisstj. á þeim tíma ráðstafað til Eimskipafélags Íslands og það hafði af útgerð þeirra á þeim árum mjög mikinn gróða. Ég hygg, að ég fari rétt með það, að á þeim tímum hafi forstjóri Skipaútgerðar ríkisins bent á það, að hagkvæmt gæti verið, að Skipaútgerð ríkisins tæki að sér rekstur þessara leiguskipa að einhverju leyti a. m. k., en á það var ekki fallizt af þeim, sem höfðu yfirstjórn þeirra mála. Hefði það verið gert, þá hefði útkoman að sjálfsögðu orðið allt önnur hjá Skipaútgerðinni, og hún hefði þá eignazt nokkuð af þeim gróða, sem féll í hlut Eimskipafélags Íslands.
Ég hef nú ekki reikninga Eimskipafélagsins hér við höndina, en hv. þm. mörgum eru þeir nú nokkuð kunnir. Þeir vita það vel, að það er ákaflega mikið fé á okkar mælikvarða, sem það fyrirtæki hefur grætt á undanförnum árum, og eins og ég sagði áðan, þá hefur það haft þennan gróða af viðskiptunum við landsmenn, það hefur tekið hærri farmgjöld og kannske fargjöld en nauðsynlegt var til að standa undir rekstrinum. Það má því vel segja, að þetta séu álögur á landsmenn alveg eins og það, sem greitt hefur verið í hallarekstur Skipaútgerðarinnar.
Það eru nú um það bil 40 ár síðan farið var að undirbúa stofnun Eimskipafélags Íslands og hrinda því fyrirtæki á flot. Ég minnist þess, að þá var hafin fjársöfnun um land allt til að koma þessu félagi á fót, og þeirri málaleitan var vel tekið líklega undantekningarlaust í öllum héruðum landsins. Menn lögðu fram mjög margir smáa hluti, hver eftir sinni getu. og það tókst að koma upp þessu félagi, innlendu félagi, til þess að annast um flutninga, vöruflutninga og fólksflutninga með skipum. Þetta var á þeirri tíð mikið sjálfstæðismál, og menn bundu miklar vonir við þetta fyrirtæki. Það var áreiðanlega svo þá, að allur almenningur hér á landi vonaðist eftir því, að þarna væru þeir að vinna að því að koma á fót fyrirtæki, sem mundi á þessu sviði reyna að veita öllum landsmönnum sem bezta þjónustu, ekki eingöngu þeim, sem búsettir eru á ákveðnum stöðum á landinu, kannske þar sem þéttbýlið er mest, heldur öllum landsmönnum, hvar sem þeir voru búsettir. En mér virðist, að því miður skorti töluvert á, að þessar vonir manna hafi rætzt. Það virðist svo sem stjórnendur Eimskipafélagsins hafi á undanförnum árum nokkuð mörgum meira hugsað um það, hvað væri ábatavænlegast fjárhagslega fyrir fyrirtækið, heldur en um það, með hverju móti þeir gætu veitt öllum landsins börnum sem bezta og jafnasta þjónustu.
Hv. þm. Barð. sagði áðan í ræðu sinni, að það hefði einungis verið fyrir féleysi, að Eimskipafélag Íslands gat ekki frá upphafi sinnt strandferðunum, og þetta má vera rétt; það er vafalaust rétt. En það eru breyttar ástæður hjá þessu fyrirtæki fyrir löngu. Nú verður ekki féleysi um kennt, ef það dregur sig í hlé frá því að veita þá þjónustu öllum landsmönnum, sem menn gerðu sér vonir um, þegar það var stofnað fyrir tæpum 40 árum. Og spurningin er þessi: Skyldi Eimskipafélag Íslands eða þeir, sem stjórna málum þess, nokkurn tíma fara að vinna í þeim anda, sem landsmenn gerðu sér vonir um, þegar það var stofnað? Það hefur næga möguleika til þess nú. Það er fjárhagslega sterkt fyrirtæki og hefur og á þegar mikið af skipum. Ég skal ekki segja um það, hvort það er óhætt að gera sér vonir um, að sú stefnubreyting verði hjá fyrirtækinu, að það taki að vinna í þessum anda, en það er ljóst, að flm. þessarar till. gera sér ekki vonir um það eins og nú er, því að það kemur berlega fram, að þeir telja, að Eimskipafélagið muni ekki veita þessa alþjóðarþjónustu nema með því móti, að því verði afhent mikil verðmæti, nokkur góð skip, sem mundu vera seljanleg nú fyrir háar fjárhæðir, og jafnvel, eða a. m. k. eins og fram kom í frv. hv. þm. Barð. á síðasta þingi, þá gerði hann ráð fyrir því þá, gerir kannske ráð fyrir því enn, að þetta sé ekki nóg, heldur yrði einnig að greiða því svo og svo mikinn árlegan styrk af ríkisfé, ef það ætti að fara að vinna á þann hátt, sem upphaflega var til ætlazt af öllum þorra landsmanna.
Ég veit ekki um það, ég skal ekkert um það fullyrða, hvort þetta mál er borið fram fyrst og fremst af áhuga fyrir að minnka kostnað ríkissjóðs eða landsmanna við flutningastarfsemina. Fyrir skömmu komu forvígismenn Sjálfstfl. — en það eru einmitt menn úr þeim flokki, tveir hv. þm., sem flytja þessa till. — því fram, að sett var upp sérstök útgerðarstjórn fyrir nokkur af skipum ríkisins, varðskipin. Ekki var þó með neinum rökum fundið að stjórn Pálma heitins Loftssonar á útgerð skipanna. Það mun vera dómur allra sanngjarnra manna, sem fylgzt hafa með þeim málum á undanförnum árum, að hann hafi stýrt því fyrirtæki, sem hann veitti forstöðu, mjög vel og giftusamlega. Það var eitthvað annað, sem þarna var á bak við, en það liggur í augum uppi, að þessi ráðstöfun sjálfstæðismanna veldur auknum kostnaði. Það er vitanlega dýrara að hafa sérstaka útgerðarstjórn fyrir nokkurn hluta af ríkisskipunum en að hafa þetta í einu lagi, eins og áður var. Þessi ráðstöfun virðist mér ekki benda til þess, að það sé svo mjög brennandi áhugi hjá mönnum í þeim flokki fyrir því að gera þennan rekstur hagkvæmari fjárhagslega en hann er eða hefur verið að undanförnu.
Ég geri nú að sjálfsögðu ráð fyrir því, að málið fari til nefndar eins og flm. leggja til, en ég tel, að það sé ástæða til fyrir þá hv. n. að athuga þetta frá ýmsum hliðum.
Ég mun sleppa að ræða um sumt af því, sem fram kom í ræðu hv. þm. Barð., sem má telja að hafi verið aðfinnslur viðkomandi stjórn á Skipaútgerðinni á liðnum árum. Hann talaði um, að það hefði verið keypt óhæft skip, o. s. frv. Ég hef nú grun um, hvaða skip hann á við. Ég held, að það hafi reynzt hér í eigu Íslendinga happafleyta og sennilega engu dýrara í rekstri en sum önnur, sem þeir höfðu, þ. á m. sum af elztu skipum Eimskipafélagsins. Þetta var skip, sem var kynt með kolum eins og sum skip Eimskipafélagsins. Betra strandferðaskipið hefði verið selt, en því lakara haldið, sagði hv. þm., en viðurkenndi þó, að það hefði verið keypt gott skip í staðinn. Það mun hafa komið fram stundum áður, að hv. þm. Barð. hefur frekar haft horn í síðu Skipaútgerðar ríkisins. Hann hefur nú mjög fengizt víð skipakaup fyrir ýmsa aðila á undanförnum árum og mun vera talinn af ýmsum og er vafalaust fagmaður á því sviði. En hann hefur víst ekki verið til kvaddur, þegar skip voru keypt fyrir Skipaútgerð ríkisins.