19.11.1953
Sameinað þing: 18. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 263 í D-deild Alþingistíðinda. (3089)

21. mál, uppsögn varnarsamnings

Forseti (JörB):

Samkvæmt 54. gr. þingskapa fær hver þingflokkur til umráða 45 mín., er skiptast í tvær umferðir. Samkomulag hefur ekki náðst milli þingflokka um lengd hvorrar umferðar. Fjórir flokkanna hafa orðið ásáttir um, að umferðirnar verði hafðar sem jafnastar að tímalengd, þó svo, að látið verði átölulaust, að ræðumaður flokks í fyrri umferð fari 2–3 mín. fram úr hálfum ræðutíma flokksins samkvæmt þingsköpum, en í síðari umferð megi enginn flokkur nota meira en hálfan ræðutíma sinn. Verður þessi háttur hafður á þessari útvarpsumræðu.

Röð flokkanna við báðar umferðir verður þessi :

Fyrst er Þjóðvfl. Íslands, annar Sameiningarflokkur alþýðu, Sósfl., þriðji Alþfl., fjórði Framsfl. og fimmti og síðasti Sjálfstfl.

Hv. flm., 8. þm. Reykv., Gils Guðmundsson, tekur til máls og talar af hálfu Þjóðvfl. Íslands.