19.11.1953
Sameinað þing: 18. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 327 í D-deild Alþingistíðinda. (3101)

21. mál, uppsögn varnarsamnings

Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson):

Herra forseti. Góðir hlustendur. Hér hefur nokkuð verið höfð í frammi gagnrýni á framkvæmd varnarsamningsins og m. a. vikið að því, að Framsfl., samstarfsflokkur sjálfstæðismanna í ríkisstj., hafi tekið undir þá gagnrýni. Af því tilefni þykir mér rétt að lesa hér upp ummæli, sem ég viðhafði á fundi í Varðarfélaginu 11. sept. s. l., sama dag og núverandi ríkisstj. tók við völdum. Þá sagði ég m. a.:

„Tíminn hóf strax eftir kosningarnar skrif og réðst á mig og varnarmálanefndina mjög harkalega. Mér varð strax ljóst, í hvaða tilgangi þetta mundi vera gert. Ef svo færi, að Framsfl. fengi utanríkismálin í stjórnarsamningum, — og það var við því að búast og alltaf ráðgert, að þeir mundu fá þau, ef við mynduðum ríkisstj., — þá var um að gera að hafa rakkað þetta niður allt sem allra mest, gert allt sem ljótast, til þess svo að þegar framsóknarmennirnir kæmu og tækju við, þá gætu þeir á skammri stundu þótzt breyta öllu og látið nú líta út eins og bætt væri nú úr allri þeirri vanrækslu, sem ég og mínir aðstoðarmenn og meðstarfsmenn bæru ábyrgð á. Þetta var hyggilegur undirbúningur og kemur sjálfsagt að gagni nú, þegar þeir hafa fengið málin.“

Mér virðist, að þessi ummæli mín hafi rætzt, en vil að öðru leyti óska eftirmanni mínum, núverandi hæstv. utanrrh., allra heilla í hans vandasama starfi og heita honum fullum og afdráttarlausum stuðningi.

Annars verður að hafa í huga, þegar rætt er um samningsgerðina og framkvæmd varnarsamningsins, að þar koma einkum tvö sjónarmið til greina: annars vegar, að varnirnar verði eins öruggar og atvik leyfa, hins vegar, að þær trufli ekki þjóðlíf okkar meira en brýnasta þörf er á.

Um samningsgerðina er það að segja, að af hálfu ríkisstj. Íslands sá ég sem utanrrh. um hana og ber að því leyti ábyrgð á henni öðrum fremur. Samstarfsmenn mínir við samningsgerðina voru þó ýmsir, þ. á m. sérstaklega tilnefndir fulltrúar frá hinum lýðræðisflokkunum tveimur, Framsfl. og Alþfl. Öll atriði samninganna, smá og stór, voru jafnóðum borin undir ríkisstj. og áður en samningum var lokið undir þingflokka lýðræðisflokkanna þriggja, þ. á m. ekki aðeins sjálfur aðalsamningurinn og samningarnir um réttarstöðu og annað slíkt, heldur einnig samkomulag um þau einstök framkvæmdaratriði, sem menn komu sér saman um strax í upphafi, svo að ekki yrði ágreiningur síðar um framkvæmdina.

Meðal þeirra framkvæmdaratriða, sem þannig voru lögð undir flokkana og engar athugasemdir komu fram um, var það ákvæði um ferðir varnarliðsmanna utan svæða þeirra, sem Guðmundur Í. Guðmundsson gat áðan og las upp. Þetta ákvæði sýnir svo glöggt, að ekki verður um villzt, að rétt er það, sem ég hef haldið fram áður hér á Alþingi, að frá upphafi var um það samið, að varnarliðsmenn skyldu frjálsir ferða sinna á Íslandi með ýmsum takmörkunum, á sama veg og aðrir erlendir menn, sem löglega eru inn í landið komnir. Menn geta talið, að þetta sé heppilegt eða óheppilegt, en svona var um þetta samið, og því verður ekki breytt einhliða af íslenzkum stjórnarvöldum nema með hæfilegri uppsögn, heldur þarf um það nýja samninga, og lýsir það sannast sagt lítilli karlmennsku, að einmitt sumir þeirra manna, eins og hv. þm. Gylfi Þ. Gíslason, sem frá upphafi voru þessu ákvæði fullkunnugir, skuli eftir á ráðast á mig og samstarfsmenn mína fyrir að framfylgja því, einkum þegar að því er gáð, að um þetta hafa síðar fengizt settar miklu strangari reglur en samkv. samkomulaginu voru ráðgerðar. Verður ekki komizt hjá að benda á, að hv. þm. Gylfi Þ. Gíslason hefur sagt rangt frá um þessar staðreyndir hér á Alþingi, þó að hann endurtæki það ekki í kvöld, og ranglega hermt upp á tilgreindan trúnaðarmann ríkisstjórnarinnar, að hann hafi gefið aðrar upplýsingar, þar sem þvert á móti er sannanlegt, að Gylfi Þ. Gíslason fékk fullkomna vitneskju fyrir samningsgerðina um öll þessi atriði.

Við hér á Alþingi, sem sitjum mánuðum saman yfir því að breyta og bæta lög, sem við höfum oft nýlega sett um efni, er við gerþekkjum, ættum hins vegar ekki að láta sem það væri nokkur nýjung eða undur, þótt reynslan sýni, að einhverju þurfi að breyta um samningsákvæði um svo nýstárleg efni fyrir okkur sem varnir landsins. Ákvæði samningsins um endurskoðun hans og uppsögn sýna, að fyrir þessu var ætið gert ráð, enda er eftirtektarvert, að vestan hafs hefur samningurinn einmitt sætt harðri gagnrýni, af því að hann sé okkur of hagstæður að þessu leyti. Samningur sá, sem Bandaríkin hafa nýlega gert við Grikkland um stöðvar þar í landi, er að þessu leyti mjög ólíkur, því að hann á að standa allan gildistíma Atlantshafssamningsins, eða til 1969, en eins og Hermann Jónasson gat um áðan, eru uppsagnarákvæðin mjög rúm fyrir okkur Íslendinga og sýna, svo að ekki verður um villzt, að því fer fjarri, að hægt sé að neyða okkur til þess að hafa þessar varnir lengur en við sjálfir viljum og teljum okkur hagkvæmt.

Um framkvæmd samningsins vil ég geta þess, að henni var svo háttað, að ég sem utanrrh. hafði yfirstjórn hennar, en ég tilnefndi síðan einn trúnaðarmann og lýðræðisflokkarnir tveir, Framsókn og Alþfl., sinn hvorn, og skyldu þessir þrír menn fara með daglega framkvæmd og yfirleitt hafa milligöngu við hina erlendu aðila, jafnvel þó að mörg og jafnvel flest þau atriði, er upp kæmu, heyrðu undir önnur ráðuneyti en utanrrn. Öll þau mál, er nokkra þýðingu voru talin hafa, voru hins vegar borin undir ríkisstj. alla og eftir atvikum fulltrúa frá lýðræðisflokkunum þremur. Segja má, að þessi aðferð hafi verið þung í vöfum, en hún átti að leiða til þess, að öll sjónarmið kæmust að og framkvæmdinni væri ekki hagað neinum einum flokki eða aðila til framdráttar, heldur allri þjóðinni. Auðvitað er í þessu sem öðru hægara að vera vitur eftir á en sjá allt fyrir, en mjög efast ég um, að þrír hæfari, skeleggari og betur menntaðir menn verði fengnir til meðferðar þessara mála en þeir Hans G. Andersen, Guðmundur Í. Guðmundsson og Agnar Kofoed Hansen, jafnvel þótt mikið skrifstofubákn verði sett upp með ærnum kostnaði. Hvað sem stjórnmálaágreiningi að öðru leyti líður, hefur það ásannazt, að varnarmálafulltrúarnir unnu Íslandi gott starf í varnarmálanefndinni.

Vandamálin, sem upp koma við dvöl erlends varnarliðs í landinu, eru auðvitað mörg, og einmitt þess vegna er eftirtektarvert, að ekki hefur tekizt að nefna eitt einasta raunverulegt dæmi þess, að ég og samstarfsmenn mínir höfum haldið linlega á íslenzkum málstað eða að við höfum ekki lagt okkur alla fram til að bæta úr þeim misfellum, sem fram hafa komið.

Með þessu er ekki sagt, að ekki standi margt til bóta í þessum efnum. Hér eins og ella verður að læra af reynslunni og haga svo til sem á hverjum tíma er hentast. Að þessu hefur stöðugt verið unnið, og væri allt of langt að rekja það allt hér. — Þess skal þó getið, að meðal þeirra veigamiklu atriða, sem nú er öðruvísi háttað en í fyrstu var ráðgert, er það, að í upphafi var íslenzkum verktökum ekki tryggður forgangsréttur fram yfir erlenda verktaka til starfa hér á vegum varnarliðsins, heldur gert ráð fyrir almennum útboðum. Um það voru hins vegar ætið skýlaus fyrirmæli, að innlendir verkamenn skyldu sitja fyrir um vinnu og íslenzk stjórnarvöld hefðu í hendi sér að hindra hingaðkomu erlendra verkamanna, ef þau teldu hér víst þeirra óþarfa. — Til að tryggja betri aðstöðu íslenzkra verktaka, beitti ég mér skjótlega í samráði við ríkisstj. fyrir því, að þeir mynduðu samtök sín á milli, er öllum skyldu vera opin. Þessi samtök, Sameinaðir verktakar, hafa orðið til þess, að Íslendingar hafa getað tekið að sér miklu meira af verkum en þeim ella hefði verið unnt.

Vorið 1952 var í samræmi við þetta gert viðbótarsamkomulag, sem varnarmálanefndin beitti sér fyrir, þar sem berum orðum er ákveðið, að íslenzkum verktökum skuli falin verk eftir því, sem fremst sé framkvæmanlegt. Síðan hafa íslenzkir verktakar ætíð tekið við fleiri og fleiri verkum. Að vísu hafa nokkur ágreiningsatriði komið upp, en á þessu varð gerbreyting til bóta strax með viðbótarsamkomulaginu 1952, enda hafa Sameinaðir verktakar leyst störf sín af hendi með sæmd.

Sum hinna nauðsynlegu mannvirkja voru hins vegar þess eðlis og kröfðust slíks vélakosts, að íslenzkir verktakar töldu sér ekki fært að annast þau, eins og þá stóð, og var þá ekki öðru til að dreifa en að erlendur verktaki færi með framkvæmdina, og er það út af fyrir sig engin nýjung, sbr. t. d. Sogsvirkjunina.

Í sambúðinni við Hamiltonfélagið hafa hins vegar risið upp svo miklir örðugleikar, að illviðunandi er, enda lét ég veita félaginu aðvörun um, að það mætti búast við, að brottfarar þess yrði krafizt, ef ekki væri úr bætt. Sannleikans vegna er þó skylt að geta þess, að dómar manna um þennan verktaka eru nokkuð misjafnir. Þannig segir Jón Kristgeirsson í Tímanum hinn 23. okt. s. l. á þessa leið:

„Talsvert hefur einnig borið á hreyfingu innan vallarins, þannig að starfsmenn hafa óskað eftir að fara frá einum atvinnurekanda til annars. Er það einkum fólgið í því að reyna að komast til Hamiltonfélagsins“ o. s. frv.

Aðalatriðið er það, að engan erlendan verktaka og engan erlendan verkamann á að þola hér deginum lengur en nauðsynlegt er, til þess að varnirnar komist nægilega fljótt í nógu öruggt horf. Þetta verða þeir, er með framkvæmdina fara af hálfu Íslendinga, að meta hverju sinni. Þar skiptir það nú meginmáli, að á s. l. sumri var tekin ákvörðun um að draga úr hraða nýrra varnarframkvæmda yfirleitt hjá Atlantshafsríkjunum. Eðlilegt er, að hraði framkvæmdanna hér verði endurskoðaður í ljósi þessa samkomulags og framkvæmdunum þá dreift á lengri tíma. Ef það er fært, leiðir af sjálfu sér, að hinir erlendu verkamenn hverfi úr landi. En menn verða að gæta þess, að mikið liggur við, bæði vegna varnanna og skaplegra sambúðarhátta, að sem fyrst myndist viðhlítandi aðstæður á Keflavíkurflugvelli.

Ég játa, að ég hef minni trú en sumir aðrir á haldgæði þess úrræðis að loka hina erlendu varnarliðsmenn inni í gaddavírsgirðingum og meina þeim allan samgang við landsfólkið. Það er a. m. k. óframkvæmanlegt, meðan svo margir Íslendingar vinna að þessum framkvæmdum sem enn er. Aðalúrræðið hefur að minni hyggju ætíð verið það að koma sem fyrst upp viðunandi vistarverum úti á Keflavíkurflugvelli, þannig að hinir erlendu menn gætu unað þar. Þetta hlaut að taka sinn tíma, en eftir því sem stundir líða verður þetta allt auðveldara. En það verða menn að skilja, að þeim mun fleiri Íslendingar sem vinna að þessum málum, því meiri verða samskiptin. Sum þessara verka eru hreinlega hernaðareðlis, og tjáir ekki því að neita. Það er t. d. ómögulegt að taka að sér gæzlu radarstöðvanna eða olíugeymanna í Hvalfirði nema hafa til þess vopnað lið. Gæzlan er einmitt í því skyni að vera viðbúinn vopnaðri árás eða skemmdarverkum hvenær sem er. Hún er þess vegna gersamlega þýðingarlaus, ef ekki er viðbúnaður til að standast slíkt. Með þessu er ég ekki að mæla í móti því, að Íslendingar taki þetta að sér. Þvert á móti. Menn verða aðeins að gera sér það ljóst, hvað í óskum þeirra sjálfra felst.

Eins er það, að þótt varúðar beri að gæta um þessi samskipti sem önnur, þá er fjarstæða, að íslenzkri menningu stafi slík hætta af þeim sem sumir öfgamenn vilja vera láta. Árlega fara þúsundir Íslendinga til útlanda og dvelja þar sumir árum saman og halda þó þjóðerni sínu og tungu. Íslendingar munu á sama hátt standa af sér þá raun, sem þetta er. Hitt er óbætanlegt, ef áróður kommúnista yrði til þess, að Íslendingar létu undan fallast að tryggja landi sínu varnir einmitt á þeim árum, þegar úrslitum getur ráðið um heimsfriðinn, hvort nokkur hlekkur slitnar í varnarkeðju frelsis og mannréttinda.

Þjóðvarnarmenn segja öðru hverju, að við, sem teljum nauðsyn á vörnum á Íslandi, höldum því fram, að Bandaríkin séu hér okkar vegna og geri það sem einhvers konar góðverk við okkur að annast varnirnar. Aldrei hef ég haldið slíku fram né heyrt neinn annan gera það. Auðvitað eru Bandaríkin hér vegna sjálfra sin, til þess að halda uppi vörnum í þessum heimshluta og tryggja heimsfriðinn. Alveg á sama hátt leyfum við Bandaríkjamönnum að vera hér vegna okkar sjálfra, en ekki vegna þeirra. Það er vegna þess, að íslenzkir hagsmunir krefjast þess, að vörnum sé haldið uppi á Íslandi, sem við höfum fallizt á, að Bandaríkjamenn séu hér. Það er nauðsyn beggja, sem hér er að verki, og er það ekkert sérstakt, heldur það sama sem ætíð kemur fram, þegar samningar eru gerðir; þeir byggjast á sameiginlegum hagsmunum. Meðan þessir samningar standa, er það báðum aðilum jafnnauðsynlegt, að sambúðin geti farið skaplega fram og sem allra árekstraminnst. Þess vegna verður að treysta því, að nauðsynlegar breytingar fáist á samningunum, jafnframt því sem við verðum auðvitað að taka sanngjarnt tillit til gagnaðila okkar.

Þegar kommúnistar og þjóðvarnarmenn tala í almannaáheyrn eins og hér í kvöld, eru þeir öðru hverju með hnjóðsyrði hvor í annan. En menn hafa heyrt, að á bak við hnjóðsyrðin er ekki maðkurinn í mysunni þeirra í milli um málefnin. Þar standa þeir allir sem einn, einkanlega í þeim málum, sem íslenzka þjóðin kann að eiga ekki aðeins sjálfstæði sitt, heldur bókstaflega tilveru sína undir, sem sé utanríkis- og varnarmálunum. Í þeim málum leggjast þessi herrar allir á eina sveif, heimta algert varnarleysi landsins. Þar blygðast þjóðvarnarmenn sín ekki fyrir að hjálpa kommúnistum þótt þeir í blaði sínu segi, að stefna kommúnista sé „glæpsamlegt glæfraspil“ manna, „sem breyti samkvæmt þeirri kenningu, að tilgangurinn helgi tækið, og eru því alvanir að snúa snældunni eins og bezt þyki henta hverju sinni“ og hafa að einkunnarorðum „drepum, drepum í austri“.

Þannig lýsa þjóðvarnarmenn kommúnistum, sem kalla svo þjóðvarnarmenn samherja sína, þegar þeir eru að reyna að afla sér atkvæða, — mönnunum, sem forsprakkar Þjóðvarnar hafa ýmist verið í flokki með, fylgt eða haft opinbert bandalag við til skamms tíma. Þjóðvarnarmenn bæta því meira að segja við um þessa andans feður sína, að þeir hafi ekkert brúk fyrir Íslending nema til þess að blekkja hann með einum hlut í dag, öðrum gagnstæðum á morgun“, enda sé „þeim málstaður Íslands einskis virði, nema ef unnt er að nota hann í þjónustu og til eflingar sínum eigin flokki“. Það er ekki furða þó þeir kalli hvor annan samherja!

Þegar athugað er, að þjóðvarnarmenn lýsa nú yfir því, að þeim hafi svo geipilega missýnzt við jafnaugljósa staðreynd sem eðli kommúnismans og forustumanna hans, þá mundi þeim óneitanlega sæma betur meira lítillæti í dómum um menn og málefni. Öll saga og atferli þjóðvarnarforsprakkanna fyrr og síðar ber óhrekjanlegt vitni um dómgreindarleysi, trúgirni og hæfileikaskort um mat á þeim staðreyndum, sem mestu varða fyrir frelsi og öryggi íslenzku þjóðarinnar, svo að ekki sé vikið að svo lítilvægu atriði, að þjóðvarnarmaðurinn skuli ruglast á bílum helztu stuðningsmanna sinna og hins nýja utanrrh. Það er skopleg glámskyggni. Hitt er hörmulegt, þegar hann telur örlög íslenzkra sjómanna í síðustu styrjöld „sönnun fyrir vernd hlutleysisins“, örlög sjómannanna, sem fleiri misstu þá lífið hlutfallslega en margar ófriðarþjóðir misstu af sínum ungu mönnum.

Í sjálfu sér getur engan undrað, þótt ýmsir séu andvígir dvöl erlends varnarliðs í landinu og telji varnirnar yfirleitt óþarfar. Þeir menn, sem svo hugsa enn, eru sömu skoðunar sem við Íslendingar yfirleitt, aðrir en kommúnistar, vorum til skamms tíma. Kommúnistar kröfðust þess þar á móti strax 1939, að varnir landsins væru tryggðar. Þeir gerðu það vegna þess, að það hentaði þá hagsmunum Rússa. Sama skoðun kom enn fram hjá Brynjólfi Bjarnasyni á Alþingi 1941, þegar hann sagði, að á Íslandi mætti skjóta án miskunnar, aðeins ef það kæmi Rússum að gagni í vörn þeirra gegn Þjóðverjum. Nú vilja kommúnistar varnarleysi Íslands, af því að það hentar Rússum eins og sakir standa. Það er þjónustan við Rússa, sem ræður gerðum kommúnista í þessu sem ella.

Sama er um þá svo kallaða þjóðvarnarmenn, sem eru beinir útsendarar kommúnista, flugumenn til að ginna heiðarlega ættjarðarvini af réttri braut. Vitanlega vakir gott eitt fyrir flestum af fylgismönnum Þjóðvarnar og raunar kommúnista einnig. Þessir menn hafa aðeins ekki áttað sig á þeim breytingum, sem gerbreyttar aðstæður hafa haft í för með sér. Mikill meiri hluti þjóðarinnar hefur skilið eðli og afleiðingar þessara breytinga, en enn hefur verið hægt að villa um fyrir þeim, sem ekki hafa gefið sér tóm til að kynna sér þessi mál. Það er að langmestu leyti uppeldis- og fræðsluatriði að fá menn til að skilja, að á slíkum hættutímum sem nú getur Ísland ekki fremur en önnur þjóðlönd verið varnarlaust. Í þeirri fræðslu hefur nú þegar mikið áunnizt, og er eðlilegt, að í þessu sem öðru eigi menn misjafnlega auðvelt með að átta sig á nýjum staðreyndum.

Auðvitað vildum við allir geta látið deilur stórveldanna afskiptalausar. Gallinn er sá, að reynslan hefur þegar sýnt, að þau láta okkur ekki afskiptalaus. Úr því skar síðasta heimsstyrjöld svo skýrt, að ekki verður um villzt. Því fer þess vegna fjarri, að ágreiningurinn milli austurs og vesturs komi okkur ekki við. Það væri óðs manns æði að búast við, að land okkar drægist ekki inn í hernaðarátök, ef úr þeim verður milli þessara aðila. Ef landið væri óvarið, eru allar líkur til, að kapphlaup yrði um, hver gæti fyrstur hreppt það. Við það kapphlaup mundi hættan á blóðugum bardögum um landið og tortímingu landsfólksins stóraukast.

Þótt fley okkar sé smátt, er okkur Íslendingum eigi síður annt um það en hinum, er stærri farkost eiga. Við erum að vísu meðal hinna smæstu af smáþjóðunum, en við viljum og verðum, ekki síður en stórþjóðirnar, að sjá okkur sjálfum og landi okkar borgið. Aðferðirnar eru misjafnar, en verkefnið er hið sama að eðli. Sá, sem ekki vill vera sjálfstæður og leggja nokkuð af mörkum til þess, — ýmist einn eða í samvinnu við aðra, — hann getur ekki til lengdar haldið sjálfstæði sínu.

Kommúnistar vilja stýra íslenzku þjóðarskútunni til austurs, og þjóðvarnarmenn segjast vilja láta hana reka sem stjórnlaust rekald. Þeir gefast upp við að reyna að sjá okkur farborða og kasta fyrir borð hugsjón sjálfstæðis og manndóms. Við hinir viljum halda í horfinu og búa okkur undir óveðrið, sem í aðsigi er. Ef það gengur hjá, sem við vissulega vonum, hefur varúðin að vísu valdið óþægindum um sinn, en óþægindum, sem eru smáræði hjá þeirri hættu, sem verið er að forðast með skynsamlegum aðgerðum.

Hvort sem okkur þykir betur eða verr, eru örlög okkar nátengd þjóðunum, sem umhverfis okkur búa. Þegar af þeirri ástæðu getum við ekki skorizt úr samfélagi vestrænna þjóða. En við eigum fleira sameiginlegt með þessum þjóðum en nálægðina. Baráttan, sem nú er háð í heiminum, er annars eðlis en venjuleg stórveldaátök. Sameiginleg trú á frelsi og mannréttindi tengir okkur við okkar voldugu nágranna. Ef ofbeldið eyðir þessum hugsjónum, er það ekki síður hættulegt fyrir okkur en hinar stærri þjóðir. Það væri þess vegna alger fásinna að láta svo sem barátta milli frelsis og kúgunar, lýðræðis og áþjánar kæmi okkur ekki við.

Enn er hugsanlegt, að þeirri baráttu linni, án þess að til nýrrar stórstyrjaldar komi. Meðan hugarfarsbreyting verður ekki hjá kommúnistum, er helzta vonin til þess sú, að lýðræðisríkin verði svo öflug, að ofbeldisríkin sjái, að árás sé vonlaus. Ef höggvið er skarð í varnarmúrinn, aukast hins vegar líkurnar fyrir því, að skyndiárás takist.

Enginn veit, hvað úrslitum ræður að lokum milli friðar og ófriðar. Hitt er augljóst, að afstaða Íslands getur haft þar áhrif og ef til vill ekki smávægileg. Við, sem viljum, að Ísland sé varið, meðan svo horfir sem nú, viljum það af því, að við erum sannfærðir um, að með því veitum við verulegan stuðning til þess, að friður megi haldast í heiminum. — Góða nótt.