07.12.1953
Neðri deild: 35. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 276 í B-deild Alþingistíðinda. (315)
103. mál, innflutningsmál- gjaldeyrismál, fjárfestingamál o. fl.
Viðskmrh. (Ingólfur Jónsson):
Herra forseti. Ég þarf ekki að viðhafa mörg orð í sambandi við þessa ræðu hv. 2. þm. Reykv. og kem nú ekki hér upp aðallega til þess að andmæla því, sem hann hefur sagt, — það hef ég svo oft gert áður, — heldur til þess að leiðrétta það, sem hv. 1. landsk. þm. sagði hér á föstudaginn. En úr því að ég er kominn hér upp í ræðustólinn, þá vil ég eigi að siður segja það við hv. 2. þm. Reykv., að hann hefur enga ástæðu til þess að ætla, að ríkisstj. ætli að misnota þau lög, sem við erum hér að samþykkja, og það er vitanlega alveg órökstutt, þegar hann er að tala um, að hér sé verið að innleiða einokun og setja fjötra á landsfólkið. Mörgum mun finnast það dálítið skrýtið, þegar þessi hv. þm. er að tala um, að með þessu frv. sé afnumið það verzlunarfrelsi, sem var innleitt hér á landi með fjárhagsráðslögunum, og ég trúi ekki öðru en að fólk yfirleitt brosi, þegar það heyrir þessi orð af vörum hv. þm., sérstaklega ef það minnist þess, hvaða orð þessi sami hv. þm. hefur áður haft um fjárhagsráð, á meðan það var og hét og völd þess voru sem mest hér í landinu. Ég hef áður bent þessum hv. þm. á það, að reglugerðin, sem hæstv. ríkisstj. mun gefa út, mun skera úr um það, hvað þetta frv. hefur að geyma. Með reglugerðinni er hægt að ákveða, að verzlunin skuli verða frjáls, og reglugerðin verður samin þannig, að hún verði sniðin á hverjum tíma við gjaldeyrisgetu þjóðarinnar, og þar sem ríkisstj. hefur þá stefnu að gera verzlunina frjálsa, þá getur þessi hv. þm. reitt sig á, að reglugerðin verður eins rúm og frekast er unnt.
Hv. 8. landsk. þm. var að furða sig á því hér áðan, að frv. skyldi vera útbýtt hér svo fljótt, eftir að brtt. hefðu verið samþ. En ég held, að þetta hafi nú oft komið fyrir áður, að svona frv. hafi verið prentuð með tilliti til þess, sem líklegt væri að yrði samþ., en ef það stæðist ekki, það yrði ekki allt samþ. eða eitthvað meira, þá var nú ekki meira, sem skeði, heldur en það, að upplagið varð ónýtt, og það var vitanlega ekki í mikið ráðizt, þótt svo hefði farið.
En það, sem ég vil leyfa mér að leiðrétta 1. landsk. þm., er það, að hann sagði hér á föstudaginn, að frílistinn væri tíu fyrstu mánuði þessa árs 41% og bundinn listi 12%, þ.e. bátalistinn, og það, sem væri frjálst, væri þá ekki nema 30%. En það, sem ég hef við þetta að athuga, er það, að fyrstu tíu mánuðina er frílistinn 48.1% (Gripið fram í.) af innflutningnum. (Gripið fram í.) Er það allt annað mál? Erum við ekki að tala um innflutninginn? (GÞG: Við erum að tala um gjaldeyrissöluna.) Nú, ég held endilega, að hv. þm. hafi talað um innflutninginn hér á föstudaginn. Ég vil þá halda áfram að upplýsa það, að af innflutningnum er 48.1% á frílista, 14.6% á bundnum lista og 37.3% er samkv. leyfum. Þannig er það þá 63%, sem hefur fyrstu tíu mánuðina verið á frílista. En ef við tökum fyrstu 11 mánuðina, þá er þetta aðeins hagstæðara, eða ca. 64%. Og ég verð að segja það, að þetta er ekki slæmur árangur, þegar það er athugað, að aðeins fyrir þremur árum var enginn frílisti hér í landi. Og ég verð að segja, að ef hægt væri að fikra sig þannig áfram stig af stigi, þá væri ef til vill ekki svo langt að bíða þangað til meginhluti verzlunarinnar gæti orðið frjáls. En það er enginn vafi á því, að eins og hv. 1. landsk. setti þetta dæmi upp s.l. föstudag, þá munu flestir hafa skilið það svo, að frílistinn væri aðeins 41%. En það er ágætt, ef hv. þm. hefur aðeins átt hér við gjaldeyrissöluna, því að þá gætu tölurnar staðizt. Ég leiðrétti þetta hér með, vegna þess að það er enginn vafi á því, að það var þannig skilið, að það væri innflutningurinn, sem þessi hv. þm. átti við, og gaf því skakka mynd af ástandinu.