07.12.1953
Neðri deild: 35. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 278 í B-deild Alþingistíðinda. (317)

103. mál, innflutningsmál- gjaldeyrismál, fjárfestingamál o. fl.

Einar Olgeirsson:

Herra forseti. Hæstv. viðskmrh. minntist hér á áðan, að ég þyrfti nú ekki að óttast, að hæstv. ríkisstj. mundi misnota þetta frv., þegar það væri orðið að lögum. Það er nú ekki undarlegt, þótt ég sé dálitið tortrygginn, þegar ég hef fyrir mér lög, sem þeir flokkar, sem nú standa að ríkisstj., hafa misnotað til að geta út reglugerðir eftir, þó að lögin banni útgáfu reglugerða í þeim anda, sem sú reglugerð var. Það hefði verið betra, ef hæstv. viðskmrh. hefði viljað segja okkur hér nú, hvernig hæstv. ríkisstj. hugsaði sér að hafa reglugerðina, sem hún gæfi út. Þá hefðum við ef til vill getað rætt málið á dálítið raunhæfari grundvelli. Og ég efast nú satt að segja ekki um, að hæstv. ríkisstj. hefði gefið mjög fagra yfirlýsingu um það, hve frjálslynd hún ætlaði að verða með útgáfu reglugerðanna, svo framarlega sem hún hefði hugsað sér að vera sérstaklega frjálslynd. Ég hef hvað eftir annað áður sýnt fram á, hvernig reglugerðin um bátagjaldeyri væri brot á núverandi lögum um fjárhagsráð, hvernig það væri brot á 12. gr., sem mælir fyrir um það, að ef gefin eru út innflutnings- og gjaldeyrisleyfi, þá skuli þau gefin út til innflytjenda, þannig að það er ekki hægt eftir núgildandi lögum að gefa út gjaldeyrisleyfi til útflytjenda. Með því frv., sem hér liggur fyrir, eru allar þessar takmarkanir afnumdar. Það er hægt á morgun að veita útflytjendunum allan réttinn til innflutningsins á landinu samkvæmt því frv., ef það verður að lögum. Þessu hef ég vakið eftirtekt hæstv. ríkisstj. á, og það er þá bara vegna þess, að henni finnst sporin hræða, ef hún fer ekki miklu meira í þá áttina. Ég hef hvað eftir annað spurt hér núna um, hvort byggingarefni yrði gefið frjálst með þeim reglugerðum, sem hæstv. ríkisstj. hugsaði sér að gefa út. Það hafa engin svör fengizt. Mundi nú ekki hæstv. ríkisstj. hafa notað tækifærið og lýst því yfir í sambandi við frelsið, sem hún segist vera að gefa Íslendingum í íbúðarhúsabyggingum, að hún ætlaði að gefa innflutning byggingarefnis frjálsan, svo framarlega sem hún ætlaði sér það?

Hæstv. viðskmrh. sagði, að ég þyrfti ekki að óttast, að það yrði farið að gefa einstökum mönnum einokun. Af hverju hefur hæstv. ríkisstj. ekki fengizt til að segja eitt orð um, hvernig einokuninni á olíunni er skipt niður eða hvernig einokuninni á sementinu og innflutningnum á því er skipt niður? Ætli það sé ekki vegna þess, að hæstv. ríkisstj. hugsar sér að halda viðteknum praksís í þessum efnum?

Þá talaði hæstv. viðskmrh. og virtist nú alveg sérstaklega undrandi yfir því, að ég skyldi hafa látið annað eins út úr mér og það, að það væri verið að afnema eitthvert verzlunarfrelsi, sem innleitt hefði verið með fjárhagsráði. Ég sagði, að það væri verið að afnema lagaákvæðin, sem hefðu verið um verzlunarfrelsi almennings í lögunum um fjárhagsráð, og tók greinilega fram, að hæstv. undanfarnar ríkisstj. hefðu fótumtroðið þennan lagabókstaf og þessi lagaákvæði síðustu 5–6 ár, en séu nú að afnema lagaákvæðin sjálf, svo að þau séu þeim ekki einu sinni lengur til trafala. Ég vil minna hæstv. viðskmrh. á, að í lögunum um fjárhagsráð stendur í 2. gr., 3. undirlið, þar sem segir, við hvað fjárhagsráð skuli miða sín störf, að það skuli miða störf sín við það, að „neytendur eigi kost á að kaupa neyzluvörur sínar og framleiðendur rekstrarvörur sínar á hagkvæmasta hátt og vörukaup til landsins og vörudreifing innanlands sé gerð eins ódýr og hagkvæm og frekast er unnt“. Það voru þessi ákvæði, sem gerðu m.a. sérstaklega að verkum, að allar ráðstafanir til einokunar og ráðstafanir eins og bátagjaldeyririnn voru í algeru ósamræmi og algert brot á lögunum um fjárhagsráð. Nú eru öll þessi ákvæði afnumin. Það er ekkert til í þessum lögum, sem segir, að neytendur í landinu hafi einhvern rétt, að þeir hafi rétt til þess að flytja nokkurn skapaðan hlut inn til landsins, því síður að þeir eigi rétt á að fá vöruna ódýrt, því síður, að að svo miklu leyti sem leyfi eru gefin út, þá skuli þau frekar fara til þeirra samtaka, sem selja neytendum ódýrt. Þetta hefur að vísu ekki verið gert á undanförnum árum. En það eru lagaákvæði til um, að það eigi að gera. En Framsfl. og Sjálfstfl. hafa komið sér ákaflega vel saman um að traðka á öllum slíkum lagaákvæðum. Hins vegar er ríkisstj. dálitið viðkvæm fyrir því, að alltaf er verið að nudda í því, að hún sé að brjóta lög, svo að þá er þess vegna miklu betra að afnema þau lög, sem hún er að brjóta, afnema þau ákvæði endanlega, og það er það, sem er að gerast núna með þessum lögum.

Ég get skilið, að þau ákvæði fari líka í taugarnar, þær fínu taugar á hæstv. ríkisstj., að fjárhagsráð skuli miða störf sín við eftirfarandi, eins og stendur í 2. gr., með leyfi hæstv. forseta:

„2. Að öllum vinnandi mönnum og þá sérstaklega þeim, er stunda framleiðsluvinnu til sjávar og sveita, sé tryggðar réttlátar tekjur fyrir vinnu sína, en komið í veg fyrir óeðlileg sérréttindi og spákaupmennsku.“ Það er skiljanlegt, að svona ákvæði fari í taugarnar á hæstv. ríkisstj., fari í taugarnar á Framsfl. og Sjálfstfl. — óeðlileg sérréttindi. Ég hef heyrt um það, að framsóknarmennirnir segja, að heildsalarnir hafi einhver óeðlileg sérréttindi, og sjálfstæðismennirnir segja, að Samband ísl. samvinnufélaga hafi óeðlileg sérréttindi. En svo koma þeir sér bara saman um, að þeir skuli skipta þessum sérréttindum ákaflega vel á milli sín, þannig að þeir hafi báðir, þessir flokkar, sérréttindi gagnvart almenningi til þess að arðræna hann. Og þá. er náttúrlega bezt að taka burt svona ákvæði eins og þau, að störf þess aðila, sem stjórnar innflutningnum til landsins, skuli miðuð við það að koma í veg fyrir óeðlileg sérréttindi. — Ég tala nú náttúrlega ekki um, að önnur eins ákvæði skuli vera í lögum eins og það, að vinnandi mönnum eigi að tryggja réttlátar tekjur fyrir vinnu sína. Það er náttúrlega til stórbölvunar, að þess háttar skuli enn þá standa í lögum, svo að það er ósköp eðlilegt, að hæstv. ríkisstj. vilji endilega fá þetta afnumið. Það er eins og ég tók fram við 1. umr. þessa máls: Þegar fjárhagsráðslögin voru samin, þá voru áhrif nýsköpunarstefnunnar og þeirra endurbóta, sem þá höfðu verið framkvæmdar á hag almennings á undanförnum 2 árum, svo rík í landinu, að það þótti ekki annað fært en að taka upp í lög ákvarðanir í þeim anda. Það er hins vegar reyndin á þeim sex árum, síðan lögin um fjárhagsráð voru samþ., að öll þessi ákvæði hafa verið tröðkuð undir fótum. Áhrif þess umbóta- og nýsköpunartímabils, sem var frá 1944–46, hafa verið smám saman þurrkuð út, en það, sem nú er að gerast, er, að það er verið að þurrka þessi áhrif að lokum út úr lögunum líka, eftir að þau eru búin að vera lagabókstafur, sem hefur verið brotinn í þessi 6 ár.

Ég tala nú náttúrlega ekki um það, að það sé nauðsyn að þurrka út úr lögum önnur eins ákvæði og þau, að áframhald verði á öflun nýrra og fullkominna framleiðslutækja til landsins, eins og ákveðið var í 2. gr. þá. Það hafa nú í 5 ár ekki verið gerð kaup á einum einasta nýjum togara, síðan togararnir 10 voru keyptir 1948. Það er að sækja alveg hreint í gamla horfið, sem var á árunum 1930–40. Það er þess vegna ósköp skiljanlegt, að hæstv. ríkisstj. vilji sleppa sem allra mestu af öllum slíkum ákvæðum.

Ég tala nú ekki um 8. ákvæðið í 2. gr., að húsnæðisskorti og heilsuspillandi íbúðum, hvar sem er á landinu, verði útrýmt með byggingu hagkvæmra íbúðarhúsa. Eftir að búið er að afnema raunverulega úr lögum allan lagakaflann um útrýmingu heilsuspillandi íbúða, þá er náttúrlega bezt að fá þetta líka burt úr fjárhagsráðslögunum. — M.ö.o.: Hæstv. viðskmrh. getur þess vegna ekki verið neitt undrandi. þó að við þm., eftir þær till., sem felldar voru við 2. umr. þessa máls, séum orðnir miklu tortryggnari út í þetta frv. heldur en við vorum áður.

Hvað fjárhagsráð snertir, þá lagði ég áherzlu á það við 1. umr. þessa máls, að fjárhagsráð hefði allan þann tíma, sem það hefði verið til, verið verkfæri slæmra ríkisstjórna og tekið á sig andúð almennings af því að framkvæma slæma pólitík. Nú á að hafa fataskipti, nú á að skapa nýtt fjárhagsráð og að því er virðist, eftir afstöðu ríkisstj. við 2. umr. þessa máls og hennar stuðningsmanna, til þess að halda áfram jafnslæmri pólitík og áður, en pólitík, sem búin er að þurrka af sér þá lagafjötra, sem áður þurfti að brjóta. Það getur lengi vont versnað. Fjárhagsráð þótti ekki gott, þegar það tók við, enda tók það við af vinsælum stofnunum, sem áður höfðu verið, ætlað til þess að drepa niður alla viðleitni almennings til að skapa sér betri kjör í landinu, sem borið hafði mikið á á árunum áður. Mér sýnist um þá innflutningsskrifstofu, sem nú eigi að koma, þetta nýja rentukammer undir yfirstjórn ameríska bankans, Framkvæmdabankans, að það muni verða reyndin, að lengi geti vont versnað, svo slæmt sem fjárhagsráð hafi verið, þá sé nú meiningin, að sú stofnun, sem hér tekur við, geti haldið áfram á sömu brautinni, án þess að þar séu til trafala lengur nokkur þau ákvæði, sem hefðu átt að vera til hömlunar slæmri pólitík fjárhagsráðs, ef lög og réttur hefði gilt í landinu.

Ég býst við, að hæstv. ríkisstj. verði mjög fegin að fá þetta frv. nú út úr þessari deild, henni muni þá þykja nokkurn veginn borgið að fá þetta fram nú á þinginu, og það er vel, að það sýni sig, hvernig afstaðan er hjá hv. þm. stjórnarflokkanna til þess. Það sýndi sig, að þeir einu menn, sem töluðu auk hæstv. viðskmrh., sem hefur sýnt virðingarverða viðleitni í því að verja vondan málstað, — þeir einu þm. stjórnarflokkanna, sem töluðu, voru báðir raunverulega á móti frv., hv. þm. þeirra Húnvetninganna, sinn frá hvoru sjónarmiði að vísu, en báðir hjálpuðu þeir samt til þess að nudda því áfram í gegnum deildina. Allir aðrir þm. stjórnarflokkanna virðast að vísu rétta höndina upp, þegar á liggur, til þess að koma því áfram, en ekki einn einasti þeirra hefur lokið lofsorði á þetta frv. eða tekið upp á því að reyna að fara að verja það. Og ég ætlaði rétt að lykta með því að segja, að það hefur ekki tekizt að fá ráðh. Framsfl. heldur til þess að tala í málinu. Það er auðséð, að sá flokkur ætlar að láta frv. fara í gegn án þess, að frá hans hálfu heyrist ein einasta rödd með því. Það eru bara hendurnar, sem þar eiga að tala. En fyrst samvizkan er nú svona slæm hjá þeim, sem þessu frv. fylgja, og stjórnarflokkunum við þessa meðferð í þinginu, hvernig halda menn þá að verkin verði, þegar á að fara að framkvæma það á eftir?