13.04.1954
Sameinað þing: 51. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 431 í D-deild Alþingistíðinda. (3265)
210. mál, framlög til bæjar- og sveitarfélaga
Hermann Jónsson:
Herra forseti. Það er nú fyrst og fremst vegna orða, sem féllu hér frá hv. 4. þm. Reykv. (HG) um þessa till., sem hér liggur fyrir, að ég ætla að segja nokkur orð. Ég lít nú satt að segja frekast á þessa till. um þær greiðslur úr ríkissjóði, sem þar er farið fram á, sem eins konar óskalista frá hv. flm. Það er vitanlega þannig fyrir mælt í þeim lögum, sem framlögin ákveða, að fé greiðist eftir því, sem veitt er fé til þess á fjárlögum. Þar gildir ekki sama regla eins og um ýmis önnur framlög, sem hv. 1. flm. þessarar till. nefndi.
Það gilda um þetta þær reglur, sem gilda um ýmis framlög til landbúnaðarins, eins og t. d. til mjólkurbúa og þess háttar, þar sem svo er ákveðið, að framlögin greiðist eftir því, sem fé er veitt á fjárlögum