26.10.1953
Neðri deild: 10. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 435 í D-deild Alþingistíðinda. (3271)
53. mál, bátagjaldeyrir
Flm., (Einar Olgeirsson):
Herra forseti. Ég vil taka það fram í sambandi við þetta mál, að það, sem um ræðir fyrst og fremst í því, er að reyna að knýja fram nokkra rannsókn á þeim háttum, sem hafa verið hafðir í sambandi við álagningu bátagjaldeyrisins, hversu miklu hann hefur numið og hvaða ráðstafanir væri ef til vill hægt að gera að einhverju leyti til þess að skila aftur því, sem ranglega hefur verið haft af mönnum í sambandi við hann.
Ég vil fyrst taka það fram í sambandi við þetta mál, að ég er ekki að neinu leyti út af þessari þáltill. að leggja fram til umræðu þau ráð, sem beitt hefur verið til þess að greiða tap á smábátaútgerðinni. Og hér er alls ekki til umræðu, hvort heppilegt sé að greiða þau töp yfirleitt, eða neitt annað slíkt, heldur aðeins einn hlutur, og það er: Var heimilt að leggja bátagjaldeyrinn á? Og eins og ég held hér fram, ef það sýnir sig, að það hafi ekki verið heimilt, eins og ég tel sannað, hvaða ráð á þá að hafa til þess að gera aftur gott það, sem misgert hefur verið? Og það, að ég legg til, að skipuð sé samkv. 39. gr. stjskr. nefnd innandeildarþingmanna, er til þess að komast að niðurstöðu um, í fyrsta lagi, hver ber ábyrgð á því, að reglugerðin um bátagjaldeyri er gefin út, reglugerð, sem ég síðar mun sýna fram á að hefur enga lagaheimild, í öðru lagi, hvað er búið með þessu ólöglega móti að taka mikið fé af landsmönnum, og í þriðja lagi krafa um upplýsingu, sem slík n. ætti að fá frá hálfu ríkisstj. um sérstakar aðferðir við innheimtu bátagjaldeyris.
Ég skal þá fyrst snúa mér að því, sem snertir 1. liðinn í því, sem þessi n., sem ég legg til að verði skipuð, ætti að rannsaka. Ég skal strax taka það fram, að það, að ég legg til, að það sé skipuð sérstök n. til þess að rannsaka þetta, stafar af því, að ég veit ósköp vel, að það fæst enginn dómstóll í landinu til þess að rannsaka þetta mál óhlutdrægt. Það er ekki til nokkurs skapaðs hlutar að ætla dómstólum landsins að taka alla ríkisstj. fyrir sem lögbrjóta, yfirheyra hana þannig og yfirheyra fjárhagsráð og starfsmenn ríkisstj. og ganga út frá því, að hún hafi öllsömun gert sig seka um lögbrot. Slík atriði getur aðeins Alþingi tekið sjálft fyrir, enda er það líka fyrst og fremst skylda þess að standa vörð um þann rétt, sem það hefur samkv. lögum.
Ég hef nú áður mælt fyrir þessu máli hér í þessari hv. d. og skal reyna sem allra skemmst að endurtaka það nú. Ég vil aðeins minna á þetta: Það eru nú meira en tvö ár síðan ég vakti athygli á því, að það væri engin lagaheimild fyrir því að leggja bátagjaldeyrinn á. Ég skoraði þá eitthvað þrisvar sinnum á sama þingi á hæstv. ráðh. að vísa í þau lög, sem reglugerðin um bátagjaldeyri byggðist á. Lengi vel fengust engir ráðh. til þess, þar til loks einn hæstv. ráðh. vitnaði í 11. gr. og 13. gr. í fjárhagsráðslögunum. 11. gr. í fjárhagsráðsl., eins og ég þá þegar sýndi fram á, gefur enga heimild til þessa. Þar er alveg greinilega tekið fram, að það má engar vörur flytja inn til landsins nema að fengnu innflutnings- og gjaldeyrisleyfi, og síðan er í 12. gr. ákveðið, að það megi aðeins úthluta innflutnings- og gjaldeyrisleyfum til innflytjenda. Að úthluta innflutnings- og gjaldeyrisleyfum til útflytjenda er ekki til í l. Það er ekki nokkur heimild til þess í l. Og í 13. gr. er síðan ákveðið, hvaða gjaldeyri megi láta af hendi án leyfis innflutnings- og gjaldeyrisdeildar og að Landsbanki Íslands og Útvegsbanki Íslands h/f hafi einir kauparétt á erlendum gjaldeyri. Það geta engir ráðstafað gjaldeyrinum aðrir en þeir eftir lögunum. — Nú, þetta ætla ég ekki að ítreka, en minna hins vegar á, að þegar hæstv. ríkisstj. var komin í algeran bobba um að reyna að verja þetta, þá gaf hæstv. þáv. viðskmrh. eftirfarandi yfirlýsingu, sem ég vil leyfa mér að minna þm, á. Hún hljóðar svo:
„Fjárhagsráð hefur því óskorað vald um ráðstöfun gjaldeyris, þ. á m. að heimila útflytjendum öllum eða einhverri sérgrein útflytjenda að hafa frjáls umráð gjaldeyris síns að öllu eða einhverju leyti til innflutnings almennt eða bundið við sérstakar vörutegundir samkv. bátalista. Þeim, sem fá þennan ráðstöfunarrétt, er heimilt að notfæra sér hann á hvern þann hátt, er ekki brýtur í bága við fyrirmæli fjárhagsráðs, þ. á m. að selja gjaldeyrinn með hagnaði í einu formi eða öðru, ef slík sala er heimiluð af fjárhagsráði.“
Þetta var yfirlýsing hæstv. viðskmrh. í síðustu ríkisstj. Hvað þýðir þessi yfirlýsing? Þessi yfirlýsing þýðir það, að fjárhagsráð ætti eftir henni að hafa algert vald til að leyfa útflytjendum að ráðstafa gjaldeyri eins og þeim þóknast. M. ö. o., fjárhagsráð á að hafa í fyrsta lagi vald til þess að leyfa öllum þeim, sem flytja út framleiðsluvörur smábátaútvegsins, að ráðstafa þeim gjaldeyri eins og þeim þóknast. Fjárhagsráð á enn fremur að hafa vald til þess að leyfa öllum togaraeigendum eða þeim, sem flytja út togarafiskinn, að ráðstafa gjaldeyrinum fyrir þann fisk eins og þeim þóknast, ef fjárhagsráð leyfir þeim. Fjárhagsráð á að hafa rétt til þess að leyfa bændum landsins eða þeim, sem annast útflutninginn fyrir þeirra hönd, hvort það er S. Í. S, eða aðrir, að flytja út smjör, ull eða hvað sem er, taka gjaldeyrinn fyrir það sjálfir og ráðstafa þeim gjaldeyri eins og þeim þóknast, m. a. til þess að fá að leggja á sérstakar vörur alveg sérstakar uppbætur til þess að vinna upp t. d. halla á útfluttu smjöri. Þessi yfirlýsing hæstv. fyrrv. viðskmrh. og þar með ríkisstj. þýðir því, að fjárhagsráð á að hafa algert vald til þess að leyfa öllum útflytjendum að fara með gjaldeyrinn eins og þeim þóknast og leggja á gjaldeyrinn eins mikið fé og þeir vilja, ef fjárhagsráð aðeins leyfir þeim það.
Ég hef áður reynt að vekja athygli hv. d. á því, hvað þessi yfirlýsing þýðir, og ég hef minnt á, að þegar gengislögin voru til umræðu 1950, var í þeim klásúla í 1. eða 2. gr., þar sem átti að heimila Landsbankanum að breyta gengi íslenzku krónunnar, eftir því sem hann áliti nauðsynlegt, sérstaklega með tilliti til breytts kaupgjalds. Þetta var fellt burt í meðferðinni hérna á Alþ., vegna þess að Alþ. vildi ekki láta úr sínum höndum það vald til Landsbanka Íslands að ákveða gengið á gjaldeyrinum. Hins vegar lýsti fyrrv. ríkisstj. eða hæstv. viðskmrh. hennar því yfir, að þetta sama vald sem Alþingi neitaði Landsbankanum um hefði raunverulega fjárhagsráð og mætti nota það eins og það vildi, hvort heldur til þess almennt að láta selja allan gjaldeyrinn með hagnaði, 50%, 100% eða 200% hagnaði, eða láta selja þennan gjaldeyri með mismunandi hagnaði, þegar um mismunandi innflutningsvörutegundir væri að ræða, því að það liggur náttúrlega í augum uppi, að alveg eins og hægt er að hafa sérstakan lista um vörur, sem fluttar eru inn í landið fyrir bátagjaldeyri, sem lögð eru á 25% eða 60%, eins má náttúrlega hafa lista fyrir bátagjaldeyri, sem lagt er á 50% eða 100%. Alveg á sama hátt má, ef þetta væri löglegt, hafa fyrir togaragjaldeyri aðra lista eða jafnvel sömu listana, sem lagt væri á 50%, 100% eða 200%. Alveg á sama hátt má náttúrlega fyrir smjörgjaldeyri hafa sérstakan smjörgjaldeyrislista, þar sem lagt er á vörur, sem fluttar eru inn í landið, 100%, 200%, eftir því sem þyrfti, til þess að tryggja þannig, að það borgaði sig að flytja smjör út úr landinu. M. ö. o.: Með þessum skilningi, sem hæstv. ríkisstj. hefur lagt í fjárhagsráðsl. og ég sé ekki að hún hafi haft einn einasta bókstaf fyrir, en nú er staðreynd að er framkvæmt, þá er verið að gefa einni stofnun í hendur rétt til gengisskráningar og það í sambandi við að framkvæma hana mismunandi um vörutegundir alveg eins og henni þóknast, m. ö. o., til gengisfellingar og í sambandi við það til raunverulegrar tollaálagningar á allar innfluttar vörur, mismunandi hárra tolla á hverja. — Ég skal aðeins geta þess til fróðleiks fyrir þá, sem ekki voru hérna á þingi 1947, þegar fjárhagsráðslögin voru samþ., að auðvitað hefur aldrei nokkrum lifandi manni dottið í hug að leggja neinn líkan skilning þessu í lögin um fjárhagsráð.
Hættan, sem af þessu leiðir, er sú, að öll ráðstöfun á fjármálum landsins sé komin gersamlega undan yfirráðum Alþingis. Nú er búið að framkvæma þetta með bátagjaldeyrislistann í rúm tvö ár. Ég býst við, að það sé byrjað að framkvæma þetta líka með togaralistann, og ég vil leyfa mér að spyrja hæstv. ríkisstj., a. m. k. hæstv. ráðherrastóla, að því, hvort það hafi ekki verið byrjað á því í sumar að leyfa sérstökum togurum að seija sinn fisk með því móti. að þeir fengju uppbót á hann samkvæmt eins konar togaragjaldeyrislista. Nú skulum við segja, að það sé leyft t. d. með togara á einu landshorni, svo sé það ekki leyft t. d. með togara á öðru landshorni, og við skulum segja, að það sé leyft með togara á landshorni, þar sem stjórnarflokkarnir hafa hagsmuni, en náttúrlega ekki með togara á einhverju landshorni, þar sem alþýðan er bara að berjast við að halda úti einhverjum togurum og stjórnarvöldin kannske líta ekki sem hýrustu auga til þess, því að þau vilja nú kannske frekast setja slíka útgerð á hausinn. Með þessu móti er þá ekki nokkur eðlilegur eða heiðarlegur grundvöllur fyrir nokkurn atvinnurekstur til í landinu, ef ein ríkisstj. getur sagt: Þeir togarar, sem ég hef velþóknun á, skulu fá kratagjaldeyrislista, enn fremur skal svo og svo mikið af smábátaeigendum fá að setja sínar vörur á bátagjaldeyrislista. þó nokkuð eftir því, hverjar þær eru, — og næst færi ríkisstj. að segja: Þeir bændur, sem flytja út smjör, — ja, það er að segja kannske ef þeir eru úr þessum landsparti, — þeir skulu fá að leggja svona og svona mikið í staðinn á alla vefnaðarvöru og annað slíkt. Ég veit því ekki, hvað menn yfirleitt ætlast fyrir með svona stjórnarháttum. Þetta fer því að verða hreint brjálæði, þegar farið er að stjórna landi á svona hátt. Að minnsta kosti fara ekki að verða nein takmörk fyrir þeirri spillingu, sem hægt er að koma á með þessu.
Við skulum bara aðgæta, að það er ekki langt í land, að það komi kröfur frá þeim stofnunum, sem hafa sérstakan áhuga viðvíkjandi og sérstök tök á ríkisstj., um slíka gjaldeyrislista fyrir sig. Ég veit ekki betur en að jafnvel bændur séu farnir að hugsa til þess, að það hljóti þá að mega flytja út smjör, fá bara smjörgjaldeyrislista í staðinn til þess að leggja á og bæta undirballansinn upp. Það er náttúrlega alveg jafnheimilt að gera þetta af ríkisstj. á morgun og var að setja bátagjaldeyrislistann á daginn eftir að Alþingi var sent heim, 7. marz 1951.
Það er alveg gefið, að ef Landssamband íslenzkra útvegsmanna getur samið við ríkisstj. um, að hún skaffi því peninga með slíku ólöglegu móti, hví getur þá ekki Samband ísl. samvinnufélaga samið við ríkisstj. á morgun um, að hún skaffi því peninga, meðal annars t. d. handa ýmsum bændum, með sama ólöglega mótinu, og allt saman yrði þetta gert með því að leggja svo og svo miklar álögur á svo og svo mikið af innflutningnum til landsins? Og í sambandi við þær álögur, sem lagðar eru á, þá er þar að auki hægt að gera hringlandi vitlausan allan útreikning viðvíkjandi innflutningnum til landsins, enda hefur verið leikið sér að því að eyðileggja t. d. iðnaðinn í landinu með því að taka bara eina ákveðna vöru, setja hana á bátagjaldeyrislista, taka hana svo nokkru seinna kannske út af honum, setja hana svo máske seinna inn á hann og hafa hann þá eitthvað öðruvísi. Það er því algert gerræði, lagalaust gerræði, sem með þessu móti er staðfest.
Ég veit, að almenningur ræður ekki sérstaklega mikið um þennan bátagjaldeyri; hann segir sem svo: Það er anzi hart, að það skuli vera lagt svona mikið á. — En hann finnur fyrst og fremst til þess, að það eru þungar álögur. Almenningur er ekki sérstaklega mikið að hugsa um það, hvort álögurnar séu löglegar eða ólöglegar. Hann veit svo sem, að það er hér í þinginu meiri hluti til þess að leggja þennan bátagjaldeyri á sem tolla, en þá segi ég líka: Sá meiri hluti á að þora að gera það, og það er þá eðlileg aðferð og það er lögleg aðferð. Ég veit þess vegna, að þetta yrði tekið af fólkinu hvort sem er, en það gerir bara allan muninn, hvort það er tekið löglega eða ólöglega. Það er alltaf verið að taka peninga af fólkinu, en það er bara þegar hæstv. fjmrh. tekur sínar 300–400 millj., að þá er það eftir lögum og þess vegna er hann ekki settur í tugthúsið fyrir það. En þegar aðrir taka eitthvað, sem ekki er eftir lögum, þá eru menn dæmdir fyrir það. Þess vegna er það óþarfi af ríkisstj., sem hefur fengið sér heimild til þess að taka 300–400 millj. kr. af fólkinu, að taka 50–100 millj. kr. á ári í viðbót með ófrjálsum hætti, þ. e. stela því beinlínis. Og svo framarlega sem slíkt er látið viðgangast, þá eru engin takmörk fyrir því, hvað vitleysan og spillingin í slíku kemst langt.
Nú vil ég enn fremur taka það fram, að auðvitað er það alveg óhugsandi, svo framarlega sem hæstv. ríkisstj. og fjárhagsráð hefur rétt til þess að láta togaraeigendur og bátagjaldeyrisframleiðendur fá sérréttindi viðvíkjandi tollum á almenningi og tollum á innflutningi, að ríkið ætti ekki að hafa rétt til þess líka, og ríkið er stór útflytjandi hér á Íslandi. Hefði ríkisstj. þá rétt til þess og fjárhagsráðið rétt til þess að heimila sjálfri ríkisstj. að flytja inn svona og svona mikið af vörum með því að leggja sérstaklega á þær. Hér erum við á hverju þingi með sérstökum lögum að ákveða, hve mikil álagningin skuli vera á tóbak og brennivin og ýmislegt þess háttar. Ég sé ekki betur en að með því að setja á bátagjaldeyrislista, við skulum segja síldarmjölsútflutningslista handa sjálfri ríkisstj. eða ýmislegt slíkt, þá væri hægt að bæta við allt þetta álögum alveg eins og mönnum þóknaðist, þ. e. ríkisstj. gæti tekið fé í ríkissjóðinn með slíkum listum sér til handa án þess að þurfa að spyrja Alþingi að nokkrum sköpuðum hlut. Og til hvers eru þeir þá hér ár eftir ár að fjalla um tollskrár, um fjárlög, um heimildir og annað slíkt, ef ríkisstj. hefur heimild til að taka eins mikil gjöld og hún vill af þeim innflutningi, sem kemur til landsins, án þess að verið sé að spyrja Alþingi að því?
Ég vil bara skjóta því hér fram, að nú lýsir ríkisstj. því yfir, að hún ætli að afnema fjárhagsráð. Hún mun ekki vera alveg búin að koma sér niður á, hvaða stofnun eigi að koma í staðinn fyrir það, en það er ekki ótrúlegt, að sú stofnun ætti að fá sama vald eftir hugsun ríkisstj. og fjárhagsráð hefur haft. Við skulum taka sem dæmi, að Framkvæmdabankinn og Benjamín Eiríksson fengju þetta vald. Það þýddi með öðrum orðum, að þeir hefðu það vald að leggja eins mikla tolla og þeim þóknast á innfluttar vörur til landsins, eða m. ö. o. að skrá mismunandi gengi fyrir íslenzka krónu eftir því, um hvaða vörur er að ræða. Það var þá til lítils, að Alþingi meinaði Benjamín Eiríkssyni, sem útbjó frv. um gengislækkunina 1951, að hafa þar klásúluna um, að Landsbankinn mætti skrá gengið mismunandi hátt, en þó eins á öllum vörum, ef nú ætti t. d. Framkvæmdabankinn og Benjamín Eiríksson þar með að hafa rétt til þess að skrá gengið eins og honum þóknaðist fyrir hinar ýmsu vörur, sem fluttar væru til landsins, og taka eins mikið fé og honum þóknaðist af almenningi án allra laga, bara með þessari undarlegu heimild.
Það hefur verið frumstæðasti réttur allra þinga og var höfuðinntakið í allri baráttunni fyrir þingræði á móti konungsvaldi, að það væri réttur þingsins eins, svo skemmtilegur sem hann er, að leggja álögur á almenning. Það hefur verið grundvallaratriði í allri baráttu þinga við konungsvald og er eðlilega höfuðgrundvöllurinn. Og okkar eigið þing stóð í þeirri baráttu lengi og þóttist vinna mikinn sigur, þegar við fengum fjárveitingavaldið og valdið til þess að leggja álögurnar á almenning. Hvað er nú orðið um þetta? Nú er verið að ræna þessu valdi af Alþingi, af ríkisstj., sem varla opnar sinn munn án þess að kjafta um þingræði og lýðræði. M. ö. o., það er verið að rífa grundvöllinn undan stjórnarskránni, það er verið að eyðileggja þingræðið í landinu, það er verið að svipta Alþingi þeim grundvallarréttindum, sem það hefur átt og byggir sína tilveru á, enda er það alveg auðséð, að ef þessi réttur er tekinn út úr höndum Alþingis, þá er eins hægt að láta bara tvær stofnanir hérna úti í bæ koma sér saman um allar álögur á allt það, sem flutt er inn til Íslands, og skipta innflutningnum á milli sín líka og allri skráningunni á verðinu á því og íslenzku krónunni í sambandi við það. Það er líka alveg auðséð, að hv. þm. stjórnarflokkanna, sem una þessu ástandi vel og þora ekki að segja eitt einasta orð, þótt þeir bölvi hver í sínu horni, eru farnir að haga sér hér á Alþingi eins og þeir sætu á ráðgefandi þingi hjá Dönum. Það var hér áður fyrr, að menn voru að samþykkja hér á Alþingi bænaskrár til konungs. Nú sé ég liggja frammi fyrir hér hvað eftir annað þáltill., sem ýmsir hv. þm. eru að flytja um að skora á hæstv. ríkisstj. að taka eina vöru út af bátagjaldeyrislista eða lækka aðra eða breyta þarna eitthvað til. Ef um tollana væri að ræða, væru þessir þm. ekki í neinum vandræðum með, hvað þeir ættu að gera; þeir flyttu lagafrv. um breyt. á tollskránni. En af hverju koma þeir fram með þáltill. um að breyta með bátaútvegsgjaldeyrinum? Af því að þeir þora ekki að koma inn á það, að það eru engin lög til fyrir bátagjaldeyrinum, ekki nokkur lög, engin lög, sem heimila hann. Ef það væru einhver lög, sem heimiluðu hann, væri hægt að flytja hér frv. til l. um breyt. á þeim l. Þess vegna koma þeir hér fram rétt eins og þeir sætu á ráðgefandi þingi til þess að biðja ríkisstj., sem þeir gætu skipað fyrir verkum með lögum, um að breyta að einhverju leyti þeim álögum, sem eru á almenningi, álögum, sem þeir leggja á og eru ábyrgir fyrir. Ég vil bara beina athygli hv. þm. að því, að þeir eru þegar farnir að haga sér eins og þetta væri ráðgefandi þing, en ekki löggjafarþing með fullu fjárveitingavaldi.
Ég álít þess vegna, að það hneyksli, sem viðgengizt hefur undanfarin ár með, að það sé með ófrjálsu móti — þ. e. með því, sem mundi kallað, ef það væru einhverjir smákarlar, sem ættu í hlut, með þjófnaði — tekið af almenningi svona og svona mikið fé án nokkurrar lagaheimildar, — ég álít, að það hneyksli geti ekki viðgengizt lengur.
Ég veit, að það er hægt að færa ýmis rök viðvíkjandi bátagjaldeyrinum, sem ég hér kem ekki inn á, — hvað hann sé ópraktískur til innheimtu, hversu útvegsmennirnir fái lítið af honum, hvað heildsalarnir fái mikið, hvað ríkið fái mikið og annað slíkt. Það er allt annað, það kemur ekki þessu máli út af fyrir sig við, sem ég er að ræða. Ég er aðeins að ræða um hitt, hvort þær ríkisstj., sem tekið hafa þessa peninga af almenningi, hafi haft nokkra lagalega heimild til þess. Og af því að ég veit það, að enginn dómstóll í landinu fæst til þess að dæma í svona málum, vegna þess hvað háð dómsvaldið er ríkisstjórnunum, þá er það Alþ., sem á að taka þarna í taumana, enda er það þess réttur, sem verið er að brjóta.
Svo kemur hitt: Til þess að innheimta þessa ólöglegu tolla, bátagjaldeyrinn, þá eru settir ákveðnir menn í það, ákveðnar skrifstofur. Það er þess vegna ekki ríkisstj., sem sér um að innheimta þessa tolla; það er varla, að ríkisstj. hafi hugmynd um, hvað þeir eru miklir. Hæstv. forsrh. hagaði sér ákaflega skynsamlega, þegar hann svaraði fsp. nýlega út af þessum málum. Hann svaraði með tveimur setningum. Jú, hann hélt, að eitthvað af einhverju því, sem tekið hafði verið þannig með ólöglegu móti, væri svo sem kringum 50 millj. Það var náttúrlega ekkert hægt að byggja á tölunni. Og þegar hann var spurður að því, hvað það kostaði ríkið, jú, það kostaði ríkið ekki neitt. Og hvað það kostaði almenning, það kom engu máli við, það var maður úti í bæ. sem innheimti það. Skrambi væri það skemmtilegt að fara að hafa þessa innrukkun á tollunum. Hví í ósköpunum eigum við að kosta til tollstjóraskrifstofu og svoleiðis nokkuð? Væri ekki voðalegur sparnaður fyrir ríkið að láta Samband íslenzkra samvinnufélaga eða einhver heildsölufyrirtæki sjá um þetta allt saman? Þá þyrfti aldrei að vera að gefa hérna neinar skýrslur um, að það væri nokkur kostnaður í sambandi við þetta. Nei, það, sem þarna er verið að gera, er það, að það er verið að brjóta þau atriði stjskr., sem fyrirskipa. að það megi ekki leiða hér nein sérréttindi í lög. Það er verið að gefa einstökum mönnum í þjóðfélaginu sérréttindi til þess að leggja á almenning, sérréttindi, sem aðallinn hafði í gamla daga í Frakklandi og víðar og danskir aðalsmenn höfðu hér á Íslandi líka stundum. Það er svona samsvarandi ástand eins og þegar það er verið að selja á leigu landsmenn til þess að rukka af þeim peningana og græða stórum á því. Það er alveg sama ástandið, sem núna er verið að skapa. Það sitja bara einstaklingar úti í bæ. Þeir leggja svona og svona mikið á hinar og þessar vörur með ólöglegu móti, taka þessa peninga, og þeir þurfa engum að standa reikningsskil á þessu hér á Alþ. Það er aldrei lagt neitt skilríki fyrir hérna, hvað þetta kostar, hverjir þetta beri eða annað slíkt. Það er ekkert kontrol á þessu. Nú þegar kominn verður smjörgjaldeyrir, þegar kominn verður togaragjaldeyrir, þegar allar þessar stofnanir verða farnar að innrukka þetta, þegar það verða teknar upp svona 300–400 millj. kr. í staðinn fyrir 100 millj. kr. á ári, hvernig halda menn, að það verði til dæmis? Haldið þið, að það verði ekki dálítið eftirsóknarvert að vera í þessu fjárhagsráði eða í þessum Framkvæmdabanka, sem ráðstafar þessu öllu saman og hefur vald til þess að leggja svona á eins og mönnum þóknast? Finnst mönnum það ekki orðið hálfhlægilegt að vera að velja hérna 52 þm. á þing, þegar svo einn maður getur eftir þessum skilningi ríkisstj. lagt eitt, tvö, þrjú hundruð millj. kr. tolla á almenning, á hvaða vörutegundir sem hann vill, og rúínerað hvaða iðnað sem honum þóknast hérna, drepið hvaða part af íslenzkum útflutningsatvinnuvegum sem honum þóknast, veitt einn gjaldeyri fyrir menn á Vestfjörðum, neitað öðrum á Austfjörðum, veitt fyrir togarana, en neitað kannske bátunum? Það er alveg eins hægt að gera það eins og að hafa það öfugt, veita sumum togurum, neita öðrum, veita fyrir smjör, en neita fyrir ullina. Sjá menn þá ekki, út í hvað er komið með þessum hlutum? Það er algert stjórnleysi, sem þarna er að skapast. Ég veit, að það eru ýmsir menn, sem vitna í það, að við séum að fara á bak við Alþjóðabankann og Alþjóðagjaldeyrissjóðinn og ýmislegt slíkt í sambandi við þetta og við brjótum allar þær skuldbindingar, sem eru í sambandi við gjaldeyrislögin. Það gerir minnst til. Það er alveg rétt, það er einmitt verið að svíkja allar þær skuldbindingar, sem Ísland hefur alþjóðlega séð. En það væri þó eitthvað annað, þó að það væri nú kannske verið að fara á bak við einhverja útlendinga. ef þjóðin hefði eitthvað upp úr því, heldur en ef það væri þó verið að svindla á þjóðinni og brjóta lög á henni og ræna hana í þokkabót. Nei, ef þetta á að halda áfram og ef Alþ. grípur ekki þarna í taumana. þá er þarna sú ægilegasta spillingaruppspretta, sem til er í okkar þjóðfélagi. Þess vegna legg ég þarna til, að hv. d. skipi nefnd samkv. 39. gr. stjskr. til þess að rannsaka í fyrsta lagi, hverjir bera ábyrgð á þessu, og í öðru lagi, hve mikið fé er búið að taka af landsmönnum í heimildarleysi. Ég veit náttúrlega, ef svona nefnd yrði skipuð, að hún færi, um leið og hún kæmist að þeirri niðurstöðu, að búið væri að taka þarna 1–2 hundruð milljónir af mönnum í heimildarleysi, að bollaleggja um það: Ja, fyrst þetta er þjófnaður, þá á að skila þýfinu aftur. — Ég veit ósköp vel, að þá mundi n. lenda í bobba. Það er erfitt að skila þessu aftur. Þetta er nefnilega eitt af því, sem venjulega þeir menn halda í, sem einu sinni hafa tekið það. Það er engan veginn þægilegt að ætla að skila aftur til manna öllu því, sem lagt hefur verið á í sambandi við bátagjaldeyrinn. Það, sem þarna er þess vegna fyrst og fremst um að ræða, er að sjá um, að þessu verði hætt.
Svo setti ég þarna í þriðja lagi: Hvernig stendur á því, að bátagjaldeyrir hefur verið innheimtur við sölu freðfisks til Bandaríkjanna og fleiri landa, en ekki við sölu freðfisks til Sovétríkjanna? Ég setti þetta nú vegna þess, að ég vildi gjarnan fá upplýsingar um, hvernig þessir hlutir væru. Það er sem sé vitanlegt, að í sambandi við þessa miklu freðfiskssölu, sem fór fram til Sovétríkjanna, voru ekki keyptar neinar svokallaðar bátagjaldeyrisvörur til baka frá því landi, heldur fyrst og fremst nauðsynjavörur eins og olía, korn og annað slíkt. Nú hefur það hins vegar verið sú siðferðislega forsenda, sem ríkisstj. hefur venjulega reynt að verja bátagjaldeyrinn með, að það væri tap á sölunni á freðfiskinum og þess vegna þyrfti að bæta bátaútvegsmönnum þetta upp. Nú mundi ég, hefði ríkisstj. verið mætt, hafa spurt hana, hvort það væri tap á sölunni á freðfiskinum til Sovétríkjanna. Ég veit nefnilega — ríkisstj. hefur yfirleitt ekki haft fyrir því að gefa upp mikið verð á þessum hlutum — ósköp vel, að á t. d. fiski, sem seldur hefur verið til Tékkóslóvakíu og fleiri landa þar í Austur-Evrópu, muni útvegsmenn hafa sloppið skaðlaust. Og seinast þegar þm. sáu skýrslur — það munu vera komin ein tvö ár síðan — frá Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna, þá var það þannig, að það var gróði á mörgum af þessum sölum þarna austur eftir, að vísu lítill, 5–10%, en 30% tap á sölunum til Bandaríkjanna og Bretlands, sem þá var nokkuð selt til. Nú skyldi maður ætla að til þeirra landa, sem fiskurinn er seldur á þannig, að það borgar sig eða stendur undir sér, þá þyrfti ekki að leggja neinn bátagjaldeyri á, nema þá það sé farið inn á þá aðferð að borga tapið á fisksölu, við skulum segja til Bretlands eða Bandaríkjanna, með ágóða af fiski, sem seldur sé til ýmissa annarra landa, eins og t. d. Tékkóslóvakíu eða Sovétríkjanna. Þá virðist náttúrlega vera farið að nota nokkuð einkennilegar aðferðir í þessu.
Nú hef ég hugmynd um, að í sambandi við söluna til Sovétríkjanna muni hafa orðið nokkur deila um þessi mál milli ríkisstj. og útflytjendanna. og ég hef heyrt því fleygt, að sú deila hafi verið leyst á þann veg, að útflytjendum freðfisks hafi verið heimilað að leggja á vörur frá ýmsum öðrum löndum, Bretlandi, Bandaríkjunum og fleiri löndum, svona og svona mikið og taka til sín. Þá eru satt að segja þessir hlutir farnir að verða ákaflega einkennilegir. Hingað til hefur þetta verið bundið við alveg sérstök lönd og skipt í sérstök svæði og var þannig með reglugerðinni frá 8. marz 1951, en nú virðist þetta í praksis vera komið út í það, að hægt sé að selja til eins lands, sem er kannske alveg fyrir utan EPU-svæðið, og svo er hægt að leyfa mönnum bara að leggja sérstaka tolla á vörur, sem koma t. d. frá EPU-svæðinu. M. ö. o. er allt í þessum efnum að verða háð einkasamningum, sem gerðir eru á milli einnar stofnunar úti í bæ og fjárhagsráðs, einkasamningum um ákvæði og tollaálagningar á ákveðnar vörur frá ákveðnum löndum, sem auðvitað um leið brjálar allt, sem heitir venjuleg verzlunarviðskipti við lönd. Venjulegir innflytjendur, sem gera sínar verzlunarráðstafanir út frá því, að þeir geta reiknað með t. d. ákveðnum tolli á ákveðinni vöru, kannske ákveðnum bátagjaldeyri, þeir upplifa það kannske daginn eftir, að þessi bátagjaldeyrir er nú bara tvöfaldaður, þegar varan kemur til landsins, eða ef þeir hafa keypt vöruna frá einu landi, þá verða þeir að borga þennan bátagjaldeyri, en ef þeir hafa keypt hana frá öðru landi, þá sleppa þeir. Það er sem sé orðið alveg óþolandi ástand að öllu leyti í viðskiptalífinu með þessum óeðlilegu hlutum, sem hér eru farnir að gerast.
Ég skal ekki gera það hér að umræðuefni, hve gífurlegur gróði er skapaður af þessum bátagjaldeyri til annarra en smáútvegsmanna, því að ég hef sýnt fram á, — og það hefur líka af öðrum verið sýnt greinilega fram á það hér, — að það er aðeins partur af því, sem almenningur verður að borga, sem fer til bátaútvegsins, aðeins partur, þannig að sú siðferðislega forsenda fyrir þessum ólöglegu ráðstöfunum er þar að auki ákaflega veik. Það, að ég legg hins vegar til, að Alþ. skipi þarna nefnd, stafar af þessu, að ég er alveg viss um það, að dómstólarnir treysta sér ekki til þess að dæma í svona málum. Það fer enginn, — það fer ekki einhver og einhver maður að fara í mál út af svona og ætlast til þess, að dæmt sé um svona mál fyrir undirrétti og hæstarétti seinna meir, enda veit maður ósköp vel, hvernig það mundi vera, það mundi kosta mikið fé fyrir viðkomandi og mundi þýða svona eitt til tvö eða þrjú ár, þangað til í því yrði dæmt. Og ef hafður er viðtekinn praksís í þessum málum hjá sumum dómurum, eins og t. d. hér í Reykjavík, þá mundu ráðherrarnir aldrei verða kallaðir fyrir, þótt svona mál væri höfðað á þá. Hér er ekki til neitt jafnrétti fyrir lögum. Ég held það veitti ekki af að beitt sé slíkum aðferðum að reyna að hafa áhrif á dómstólana, þegar ríkisstj. á í hlut. Hins vegar er með 39. gr. stjskr. gengið út frá því, að Alþ. eigi sjálft að grípa í taumana, þegar það áliti einhverja hættu á ferðum í svona málum, og að því sama hnígur raunverulega landsdómurinn og öll sú mikla löggjöf um hann, sem bara er það flókin. að hún hefur aldrei verið notuð. En ég efast ekki um, að ef svona rannsóknarnefnd þessarar hv. d. kæmist að þeirri niðurstöðu, í fyrsta lagi, að þetta hefði allt saman verið ólöglegt og að hæstv. ríkisstj. bæri ábyrgð á þessu, þá mundi hún næst gera ráðstafanir til þess að kalla ráðherrana fyrir landsdóm.
Ég vil minna á það, og ég hef raunar kastað fram þeirri spurningu hérna áður, að reglugerðin, sem þessar eitt til tvö hundruð milljónir, sem teknar hafa verið af almenningi, byggjast á, reglugerðin frá 8. marz 1951, hún byrjar öðruvísi en allar aðrar reglugerðir, sem út hafa verið gefnar á Íslandi. Hver einasta reglugerð, sem út hefur verið gefin af íslenzkum stjórnarvöldum, byrjar raunverulega með því, að þar stendur: Með tilvísun í lög nr. þetta og þetta þennan og þennan dag þetta og þetta ár og meira að segja kannske þessa og þessa grein, þá ákveðst hér með samkv. þeim heimildum, að þetta og þetta skuli gert. — En hvernig byrjar reglugerð fjárhagsráðs frá 8. marz 1951? Hún byrjar með þessum orðum: „Samkvæmt ósk ríkisstjórnarinnar.“ Og af hverju byrjar hún svona? Vegna þess að fjárhagsráð fann engin lög sem þetta styddist við, vegna þess að fjárhagsráð sagði við ríkisstj., að þetta væri ólöglegt, og vegna þess að ríkisstj. heimtaði af fjárhagsráði, að þetta væri gefið út, og þess vegna setti fjárhagsráð byrjunina svona. Þessu hef ég haldið hér fram áður, og það hafa aldrei komið nein mótmæli frá fjárhagsráði um það, enda veit ég að þetta er rétt. M. ö. o.: Þegar hér er vitnað í fjárhagsráð og annað slíkt, þá er það aðeins eins og leppur fyrir ríkisstj. Fjárhagsráð hefur ekki viljað gera þessa hluti, ríkisstj. hefur kúskað það til þess og ríkisstj. beið með að kúska fjárhagsráð til að gera þetta, þangað til Alþ. hafði verið sent heim 1951. Alþ. var slitið 7. marz, reglugerðin var gefin út 8. marz, og á því Alþ. hafði ríkisstj. verið vöruð við því að þetta væri ólöglegt athæfi.
Ég þykist nú vita, að þessi þáltill. mín ef hún fer til nefndar, sem hún komst nú ekki í fyrra, þá muni hún verða svæfð þar. Það er háttur ríkisstj. og Frams.- og Sjálfstfl. að fara á þann hátt að, þegar þeir mæta gagnrýni, sem þeir geta ekki treyst sér til að verja. En hitt vil ég aðeins ítreka að hv. þm. stjórnarflokkanna eru þá samsekir ríkisstj. um þetta rán, sem þarna hefur verið framið svo framarlega sem þeir hvorki treysta sér til þess að ræða þetta eða verja það eða sýna fram á, að þetta væri löglegt, eða hindra það, að þessi mál fáist rannsökuð.
Það er kannske rétt að fresta þessari umr., þegar þeir hafa tekið til máls, sem kæra sig um það nú, og vísa þá till. til allshn. Ég býst við, að meiri hl. í þinginu mundi helzt vilja hafa þann hátt á, og ég hef út af fyrir sig ekkert á móti því. Það er náttúrlega venja hjá okkur. En ég vildi alvarlega leyfa mér að skírskota til hv. þdm. um það, að svo framarlega sem þeir vilja standa á verði um frumstæðasta rétt Alþ. og um lögin í landinu, þá ber þeim að taka þetta mál alvarlega. Það er ekki til neins að halda fram gagnvart almenningi, að hann eigi að fara eftir lögum, og vera strangur og harðvítugur við hann og láta síðan æðstu valdsmönnum landsins haldast uppi hvaða lögbrot sem er, hvað stór sem þau kunna að vera.