02.12.1953
Sameinað þing: 20. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 466 í D-deild Alþingistíðinda. (3306)

55. mál, bifreiðakostnaður ríkisins og opinberra stofnana

Forseti (JörB):

Ég hef jafnan tekið þessa fsp., eins og aðrar, á dagskrá. Það hefur verið sá háttur á hafður í Alþingi að gera það, unz þeim hefur verið svarað, þar til vitneskja var þá fengin um það, að svör mundu ekki fást, og svo hefur verið með þessa fsp., eins og hv. 1. landsk. réttilega vék að.

Nú er það ekki á valdi forseta að gefa nein fyrirmæli um það, hvernig vinnu skuli háttað, en það eitt veit ég, að það hefur verið unnið að að svara fsp., og ég veit, að hv. fyrirspyrjandi hefur ekki á móti því, að það sé gert sem ýtarlegast. Ríkið hefur allmargar bifreiðar í sinni þjónustu, og það mun stafa af því, að ekki hefur heppnazt hingað til að ná upplýsingum víðs vegar að um kostnað þeirra bifreiða, sem ríkið hefur í sinni þjónustu, sem er á mörgum stöðum og margar og við margvísleg störf.