10.02.1954
Sameinað þing: 32. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 471 í D-deild Alþingistíðinda. (3313)

55. mál, bifreiðakostnaður ríkisins og opinberra stofnana

Forsrh. (Ólafur Thors):

Herra forseti. Ég vildi aðeins leiðrétta þann misskilning hjá hv. fyrirspyrjanda, er hann taldi, að 260 stofnanir hefðu bifreiðar, en hann hefur þar ruglað saman því, að það eru 260 bifreiðar, sem stofnanirnar alls hafa. Stofnanirnar eru ekki 260, heldur bifreiðarnar, sem þær til samans hafa.

Hv. fyrirspyrjandi taldi nokkurn ljóð á mínu ráði, að ég hefði ekki greint á milli fólksbifreiða annars vegar og vörubifreiða hins vegar. En ég hygg ekki, að fyrirspurn hans hafi gefið ástæðu til þess. Eða er það ekki rétt, að það sé aðeins spurt um tölu bifreiða? Fyrirspurnin er þannig: „Hversu margar eru þær bifreiðar, sem opinberar stofnanir eða opinber fyrirtæki greiða kostnað við að nokkru eða öllu leyti, og hversu miklu nam sá kostnaður.“ Ég tel ekki, að fsp. hafi gefið tilefni til að greina milli fólks- og vörubifreiða.

Að öðru leyti vek ég athygli á því, sem bæði hv. fyrirspyrjandi og auðvitað aðrir, sem þessa skýrslu heyrðu, hafa líka veitt athygli, að hér er um fáar stofnanir að ræða, sem mestu valda um bifreiðafjöldann. Þar á meðal er t. d., svo að ég nefni einhver dæmi, síminn, sem allt í allt hefur 44 af þessum bifreiðum, vegamálin með 52, raforkumálin með 33, flugmálin með 30. Þarna eru með öðrum orðum fjórar stofnanir, sem hafa til samans 158, reiknast mér til, þ. e. a. s., af 260 bifreiðum alls eru fjórar stofnanir með um 160, og þær eru sem sagt síminn og vitamálin, vegamálin og flugmálin, svo að þá heggst nú þarna nokkuð verulegt skarð í, þar sem 3/5 og vel það af allri bifreiðatölunni er hjá þessum fjórum stofnunum, sem sjálfsagt allar eða a. m. k. þær stærstu hafa aftur tekjur af bifreiðunum. Við skulum taka t. d. aðeins vegamálin, sem eru hæst á útgjaldaskránni. Þau virðast hafa um 9/10 af rekstrarkostnaðinum í tekjum. Kostnaðurinn er þar talinn 2 millj. 554 þús., en tekjurnar eru taldar 2 millj. 294 þús. Þannig er einnig um vitamálin. Þar kemur verulegur hluti aftur inn til tekna, og svo mun það víða vera.

Það er sjálfsagt rétt hjá hv. fyrirspyrjanda, að um þessa styrki hafa ekki gilt nægjanlega skýrar reglur, og má því áreiðanlega finna fyrir því fullkomin rök, að mönnum hafi verið nokkuð misjafnað.

Nú gilda um styrk til bifreiða þessar reglur: „Þegar hagkvæmt þykir að semja við opinberan starfsmann um notkun einkabíls hans í sambandi við starf hans, skal gera þar um skriflegan samning við rn. það, sem viðkomandi stofnun heyrir undir, enda samþykki fjmrn. samningsgerðina. Samningurinn sé gerður til eins árs og gengur þá úr gildi, ef hann ekki er endurnýjaður. Í samningnum skal ákveða heildarupphæð þóknunar fyrir afnot bílsins og jafnframt tiltaka áætlaða aksturslengd, ef unnt er. Ef ástæða er til að ákveða ekki heildarupphæð þóknunar fyrir fram, má í samningnum gera ráð fyrir reikningsskilum eftir á samkv. raunverulegri aksturslengd. Tillögu að samningi skal forstöðumaður leggja fyrir viðkomandi rn. eigi síðar en 1. febr. ár hvert, enda sé samningsgerð lokið, ef úr því verður, eigi síðar en 1. marz. Þó getur fjmrn. veitt undanþágu frá þessum ákvæðum, ef sérstaklega stendur á.“

Með öðrum orðum: Sú skipan er nú ríkjandi, að ef maður óskar eftir að fá slíkan styrk, þá skal forstöðumaður hlutaðeigandi stofnunar semja um það við þann ráðh., sem stofnunin heyrir undir. Fallist ráðh. á, að þessi styrkur sé sanngjarn, eða geri á því þær breytingar, sem hann telur eðlilegar, þá fer málið að lokum fyrir fjmrn., sem úrskurðar, hver styrkurinn skuli vera, að sinu leyti eins og sá háttur var tekinn upp um áramótin 1949–50, að ekki má ráða neinn mann hjá neinu ráðuneytanna, nema fjmrn. samþykki það og þá einnig launakjör hans. Þetta var þá gert varðandi ráðningu starfsmanna, til þess að ráðuneytin og stofnanir hefðu aðhald, og öll ábyrgðin var lögð á einn mann að lokum, fjmrh., svo að ekki gæti hver vikið sér undan og afsakað sig þá með öllu, sem hægt er að finna til afsökunar, þegar enginn ber ábyrgðina. Nú er það fjmrh., sem að lokum er ábyrgur fyrir starfsmönnum og kjörum þeirra, og ég held, að hann noti það vald með miklum strangleika. Mér hefur a. m. k. fundizt það, þegar ég hef þurft að sækja undir hann lítilfjörlegar hækkanir hjá einhverjum starfsmönnum, sem mér hafa fundizt mjög sanngjarnar, og hefur sem sagt verið fulltorsótt stundum, — svo að hann er ágætur ráðsmaður á búinu hvað þetta áhrærir, svo að ég fari nú ekki að halda yfir honum meiri lofræðu. En sem sagt, ég vænti, að af því, sem ég nú hef sagt, sé ljóst, að fullur hugur er á því, að réttlæti og sanngirni ríki í þessum efnum, eftir því sem því verður frekast við komið. Það getur náttúrlega oft verið matsatriði, hvort það er sambærilegt, sem sambærilegt er talið, en mál þessi falla undir einn dómara, sem er fjmrh.