22.10.1953
Sameinað þing: 10. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 478 í D-deild Alþingistíðinda. (3319)
211. mál, húsnæði leigt varnarliðsmönnum
Utanrrh. (Kristinn Guðmundsson):
Það var aðeins þetta síðasta atriði hv. 8. landsk. (BergS), sem ég vildi svara. Ég hef sennilega ekki tekið það nógu greinilega fram áðan, að það hefði líka verið athugað, hvort mikil brögð væru að því, að amerískir hermenn hefðu hér húsnæði með því að vera kvæntir íslenzkum konum. Það eru víst ekki mörg tilfelli. Ég veit ekki nákvæmar tölur og hef því ekki viljað fara með þær hér, en tilfellin munu ekki vera mörg. Það leiðir ekki af varnarsamningnum, að slíkir menn hafi leyfi til þess að búa í íbúðum hér, heldur er það samkv. íslenzkum lögum, að kona, sem er gift hér í landinu, er íslenzkur borgari, þótt hún sé gift amerískum manni, hvort það er hermaður eða ekki, svo lengi sem hún flytur ekki úr landinu. Hún hefur vitanlega rétt til þess að taka íbúð á leigu, og það er ekki hægt, nema þá að breyta landslögum, að hindra það, að kona fái að búa með manni sínum. En sem betur fer er það fullyrt, að það séu ekki nema örfá tilfelli, að kvæntir amerískir hermenn búi hér í bænum. Og þeir munu ekki búa hér að jafnaði, heldur munu þeir aðeins koma í heimsókn til eiginkvenna sinna, og það verður ekki hindrað, því að ég geri ekki ráð fyrir, að við viljum fá nein deilumál um það, eins og var hér á árunum í vissu landi, að kvæntir menn fengju ekki að búa með konum sínum.
Ég held, að á þessu stigi málsins geti ég ekki gefið frekari upplýsingar um þetta mál, og held, að þess þurfi ekki, en ég hygg, að það sé rétt, að slegið sé á þann orðróm, að einhver feikileg „invasion“ af amerískum hermönnum sé hér í bænum og hafi tekið íbúðir frá Íslendingum. Að mínu áliti er sú fullyrðing skökk, og ég hef enga ástæðu til þess að halda annað en þetta álit sé satt og rétt.