22.10.1953
Sameinað þing: 10. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 481 í D-deild Alþingistíðinda. (3325)
212. mál, ólöglega innfluttar vörur
Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):
Þessar fsp., sem hv. þm. mælti hér fyrir, eru samdar af þeirri illkvittni, sem honum er lagin. Í öðru hverju orði eru aðdróttanir um vanrækslu, jafnvel yfirhylmingu með þeim, sem sekir kunna að hafa reynzt. Þetta eiga fsp. allt að gefa í skyn, eins og ræða hv. þm. áðan glögglega staðfestir. En það mun nú koma í ljós af svörunum, að þessi uppsetning öll einkennist líka af öðru, sem mjög einkennir þennan hv. þm., og það er það, hvað hann á erfitt með að fara rétt með. Kem ég að því fljótlega.
Fyrsta spurningin er þannig:
„Hinn 17. nóv. 1952 barst fjmrn. bréfleg ákæra frá Félagi ísl. iðnrekenda um það, að í verzlunum hér á landi væru vörur, sem þangað væru komnar eftir ólöglegum leiðum og ekki hefði verið greiddur af tollur. — Lét fjmrn. þá þegar fram fara rannsókn vegna þessarar ákæru? Ef svo var ekki, hverjar orsakir lágu þá til þess, að það var ekki gert?“
Og allt það, sem á eftir kemur, er byggt á þessu, að í nóvembermánuði 1952, fyrir svo löngu, hafi félag iðnrekenda sent ákærur um þessi málefni til fjmrn., og síðan er í hverri spurningu hér á eftir þetta tuggið upp: „Ef ekki var gerð athugun, þá af hverju ekki?“
Svarið við þessari fsp. 1 er það, að skrifstofustjóri minn og fulltrúar í rn., eftir að hafa borið sig saman við Félag ísl. iðnrekenda, kannast ekkert við það, að þangað hafi komið nokkurt bréf um þetta efni 17. nóv. 1952, en þrjú bréf um allt annað efni. Þessi spurning er því alveg út i hött, hvernig sem á því stendur. 2. spurning er þessi:
„Hinn 1. apríl 1953 ítrekaði Félag ísl. iðnrekenda þessa ákæru með bréfi til fjmrn. Var þá fyrirskipuð rannsókn vegna þessarar ákæru? Ef svo var ekki, hverjar orsakir voru því valdandi, að svo var ekki gert?“
Þessi spurning er þá þar af leiðandi, af því sem ég hef þegar sagt, einnig út í hött að því leyti til, að ekki var um ítrekun að ræða og ekki heldur ákæru þeirrar tegundar, sem fyrirspyrjandi vill gefa í skyn. En í bréfinu —þessu bréfi — sendir Félag ísl. iðnrekenda svo hljóðandi ályktun frá ársþingi iðnrekenda 1953:
„Þá vill ársþingið að marggefnu tilefni skora á hlutaðeigandi yfirvöld að skerast tafarlaust í leikinn um það, að ekki sé á boðstólum í verzlunum iðnaðarvarningur, sem ekki er leyfður innflutningur á.“
Síðar í sama bréfi er það tekið fram að Félag ísl. iðnrekenda vilji ekki á þessu stigi málsins bera fram ásakanir í garð einstakra vöruseljenda um brot í þessum efnum. En rétt áðan var þessi hv. þm. að fullyrða það, að Félag ísl. iðnrekenda hefði, að því er manni skildist, á fyrstu stigum málsins boðið slíkar upplýsingar fram.
Hinn 9. apríl 1953, eða 8 dögum eftir að rn. fékk þetta bréf, sendi það afrit af því til verðgæzlustjóra og óskaði aðstoðar hans í því að upplýsa, hvort slíkt misferli sem að er vikið í ofangreindu bréfi og ályktun hafi átt sér stað og hverjar ráðstafanir kunni að verða nauðsynlegar til þess að koma í veg fyrir slíkt framvegis. Verðgæzlustjóri gerði síðan athuganir í málinu í samráði og samvinnu við tollstjóra, og kem ég að niðurstöðu þeirra atriða í svari mínu við næstu spurningu. Kemur nú 3. spurningin, og hún er þannig:
„Hinn 7. sept. s. l. endurtekur Félag ísl. iðnrekenda i þriðja sinn þá ákæru sína til fjmrn., að hér séu á boðstólum tollsviknar vörur á frjálsum markaði. — Hvað hefur sú athugun, sem fjmrn. þá fól tollstjóra að framkvæma, leitt i ljós?“
Einnig þessi fsp. er auðvitað villandi af ástæðum, sem ég nú þegar hef sagt, og röng, en það rétta er, að í þessu bréfi frá 7. sept. s. l. sendir Félag ísl. iðnrekenda fjmrn. i fyrsta sinn kvartanir um tiltekin atriði, en til viðbótar er svo vísað í bréf, sem Félag ísl. iðnrekenda hafi áður sent til tollstjóra og viðskmrn., en þessi tilteknu atriði koma fyrst fram 7. sept. Fjmrn. sendi bréfið til tollstjóra og lagði fyrir hann að gefa rn. skýrslu um málíð og gera grein fyrir því, hvaða ráðstafanir hann teldi tiltækilegastar og áhrifaríkastar til þess að koma í veg fyrir, að slíkt misferli sem um ræðir í bréfinu og virðist hafa átt sér stað gæti átt sér stað. Tollstjóri hefur nú sent rn. skýrslu um öll þessi mál. bæði þau atriði, sem koma fram í bréfinu til fjmrn. í september og ég var að minnast á, og í hinum fyrri bréfum Félags ísl. iðnrekenda til tollstjórans og viðskmrn. Hér verður sem sagt gerð grein fyrir því i einu lagi, hver niðurstaðan varð af þessum athugunum. Nú er ekki þægilegt að svara spurningu eins og þessari, sem ég vil biðja hv. þm. að taka eftir. Ég vil rifja hana upp. Það er síðari hlutinn af þessari þriðju spurningu: ,Hvað hefur sú athugun, sem fjmrn. þá fól tollstjóra að framkvæma, leitt i ljós?“ Á ég nú að fara að greina frá því hér á hv. Alþ. um hvert einstakt atriði nákvæmlega, hvað gerðist? Í raun og veru væri ekki ástæða til þess, ef ekki væri um jafnillkvittinn rógburð að ræða og felst í fyrirspurninni. Ég mun því gera grein fyrir hverju atriði fyrir sig, þó að það sé í raun og veru meira en vafasamt að lesa það allt yfir hv. þm. Það tekur dálitla stund, en ekki mjög langa.
Það var kvartað um það, að í verzlunum væru á boðstólum ýmsar vörur, sem að líkindum væru ólöglega innfluttar. Voru þetta ýmist leyfisvörur, sem kærandi taldi að engin innflutningsleyfi væru veitt fyrir, eða vörur, sem voru af enskum eða amerískum uppruna, en kærandi gerði ráð fyrir að einungis mætti flytja inn frá löndum, sem skipt er við á jafnvirðisgrundvelli. Í fyrri flokknum var tilgreint sælgæti, en í síðari flokknum voru yfirhafnir, úlpur fyrir drengi og karla, í öðru lagi sportskyrtur fyrir drengi og karla, í þriðja lagi regnkápur úr plastefni, í fjórða lagi manchettskyrtur úr nylon, í fimmta lagi brjóstahöld og lífstykki og í sjötta lagi enskar snyrtivörur. Og það, sem ég nú greini, er i óbeinni ræðu úr skýrslu tollstjóra um athugun á öllum þessum málum. Tollstjóri lét þegar fara fram rannsókn í verzlunum, sem fyrirsvarsmenn Félags ísl. iðnrekenda bentu á, — áðan tók fyrirspyrjandi það hér fram, að það hefði verið forðazt að tala við iðnrekendur um þetta, — að hefðu þessar vörur til sölu, og leiddu þær athuganir eftirfarandi i ljós, eftir því sem segir i skýrslu tollstjóra:
1) Um sælgæti: Á sínum tíma höfðu nokkrir sjómenn fengið tollafgreitt nokkurt magn af sælgæti, einkum tyggigúmmíi, sem þeir keyptu fyrir frjálsan gjaldeyri. Enn fremur var s. l. vor tollafgreidd stór sending af tyggigúmmíi, sem innflutningsleyfi hafði verið veitt fyrir. Vara sú, sem hér er á markaðnum af þessu tagi, er því engan veginn öll ólöglega innflutt, segir tollstjóri. Hins vegar telja tollgæzlumenn, að líkur séu fyrir því, að allmikið hafi verið flutt inn af þessari vöru á ólöglegan hátt ásamt því sem löglega kom inn. Er langt síðan hætt var að tollafgreiða tyggigúmmí fyrir farmenn til að koma í veg fyrir, að reikningar frá þeim væru notaðir til að skjóta sér á bak við með smyglaða vöru. Hefur tollgæzlan unnið að því að komast fyrir þennan ólöglega innflutning, og hafa sakadómara nú verið sendar skýrslur hennar til frekari aðgerða.
Á þessu tímabili, sem hér er um að ræða, hefur sem sagt verið þannig ástatt, að ekki hefur verið hægt að segja um það, hvort tyggigúmmí, sem í verzlun væri, væri löglega eða ólöglega innflutt, því að það var löglega innflutt tyggigúmmí á markaðnum.
2) Um úlpurnar: Úlpurnar, sem að framan greinir, eru á bátagjaldeyrislista frá öllum löndum, ef þær eru ætlaðar konum eða telpum, en á bátagjaldeyrislista einungis frá „clearing“-löndum, ef það er á karla og drengi. Þessar flíkur eru hins vegar þannig gerðar, að karlar og konur nota þær jöfnum höndum með sama sniði og úr sömu efnum. Hefur ekki verið hægt að greina þar á milli við tollflokkun. Allmikið hefur verið flutt inn af þeim frá Bandaríkjunum sem kvenfatnaður, en þegar í smásölurnar kemur, eru þær keyptar jafnt af körlum sem konum, og er erfitt að hafa hemil á slíku. Og mér skilst, að það sé t. d. ómögulegt að vita um það með vissu, hvort hv. fyrirspyrjandi gengur í kvenúlpu eða ekki. Það sé sem sagt ekki hægt að greina það í sundur og því ekki hægt um vik að fást við þetta atriði.
Ég skal taka það fram, að þessi grg. tollstjóra um rannsókn á þessu máli, er ekki samin í tilefni af fyrirspurn hv. þm., heldur er hún í ráðuneytið komin áður en sú fsp. kom fram.
3) Sportskyrtur úr gerviefnum eru á bátagjaldeyrislista frá öllum löndum. Athugun tollgæzlumanna leiddi ekki í ljós, að þær væru hér á markaðnum ólöglega innfluttar. Regnkápur úr plastefnum og manchettskyrtur úr nylon eru á bátagjaldeyrislista frá öllum löndum. Mikið hefur verið og er flutt inn af þessum vörum á löglegan hátt, og hefur ekkert komið fram, sem bendir til ólöglegs innflutnings.
4) Brjóstahöld og lífstykki: Rannsókn leiddi í ljós, að það, sem var á markaðnum af þessari vöru frá Bandaríkjunum, Var löglega tollafgreitt út á innflutningsleyfi. Enskar snyrtivörur voru fluttar hér inn í allstórum stíl og tollafgreiddar gegn gömlum gotu- og faxasíldarleyfum, sem breytt hafði verið í leyfi fyrir þessum vörum. Og eins og menn sjá af því, hafa þær verið til löglega innfluttar á markaðnum og því erfitt um það að segja um hvert atriði fyrir sig, hvort það væri þá af því eða öðruvísi til komið.
Hér hafa verið taldar upp þær vörutegundir, sem kvartanir Félags ísl. iðnrekenda við tollstjóra og viðskmrn. snerust um. Rannsóknir á innflutningi þeirra voru framkvæmdar, þegar er kvartanir Félags ísl. iðnrekenda .bárust, en að sjálfsögðu hefur tollgæzlan ekki gefið stjórn Félags ísl. iðnrekenda eða öðrum óviðkomandi upplýsingar um niðurstöður þeirra, þar eð henni er að lögum óheimilt að veita slíkar upplýsingar um innflutning einstakra manna eða fyrirtækja. Og af sömu ástæðum er það að það hefur láðst að tilkynna Frjálsri þjóð, að þessi athugun hefði farið fram.
Skal nú vikið að þeim atriðum í bréfi Félags ísl. iðnrekenda frá 7. sept. s. l., sem ekki höfðu komið fram í fyrri bréfum til tollstjóra og viðskmrn., þ. e. a. s. þeim atriðum, sem voru tekin fram í bréfinu til fjmrn. umfram það, sem áður hafði verið tekið fram og athugað út af bréfunum til hinna.
Félag ísl. iðnrekenda hefur kært til sakadómara skömmu fyrir s. l. áramót, að seld væri vara, sem auglýst væri sem súkkulaðiduft, en tollafgreidd væntanlega sem kakó. Hafði fulltrúi sakadómara komizt að þeirri niðurstöðu, að sala þessarar vöru væri ólögmæt, og Félag ísl. iðnrekenda þá fallizt á að afturkalla kæruna gegn því, að salan væri stöðvuð. Um þetta segir svo í skýrslu tollstjóra til rn.:
„Samkv. upplýsingum frá Guðmundi Ingva Sigurðssyni, fulltrúa sakadómara, fjallaði kæra sú, sem greind er í 2. tölulið í bréfi 7. sept. s. l., um það, að kakóduft væri á markaðnum, auglýst og boðið fram sem súkkulaðiduft. Ekkert kom fram, sem benti á ólöglegan innflutning eða ranga tollflokkun, enda hefur kakóduft, sem fellur undir 18. kafla nr. 4 í tollskránni, verið frílistavara frá upphafi, og gildir það jafnt þótt það sé blandað ýmsum bragðbætandi efnum, sem gera það svipað súkkulaðidufti til notkunar.“
Þá er í þessu bréfi rætt um enskt fataframleiðslufyrirtæki, sem starfar á Keflavíkurflugvelli. Fjmrn. er ekki kunnugt um það, hvort þessi klæðskeri hefur rétt til að stunda iðn sína hér á landi, enda heyrir það undir önnur ráðuneyti. Tollgæzluna snertir aðeins innflutningur á efni því, sem hann vinnur úr, en það er flutt inn á sama hátt og aðrar nauðsynjar varnarliðsins gegn þeim yfirlýsingum heryfirvalda, sem krafizt er um allan slíkan tollfrjálsan innflutning.
Loks segir i niðurlagi þessa bréfs frá iðnrekendum, að í verzlunum hér í bænum muni allvíða vera eða hafa verið til sölu náttföt og ýmiss konar ,bómullarnærfatnaður frá Bandaríkjunum. „Prjónaður nærfatnaður var á óskilorðsbundnum frílista frá öllum löndum utan dollarasvæðisins,“ segir tollstjórinn um það atriði. Og um þetta segir enn fremur í skýrslu tollstjóra: „Tollgæzlan hefur leitað í verzlunum að þessum vörum, eftir að bréf rn. barst, en ekki orðið þeirra vör. Slík leit verður þó að sjálfsögðu aldrei tæmandi. Hins vegar er ólíklegt, að vörum þessum sé smyglað, til þess eru þær of fyrirferðarmiklar miðað við verðmæti og lítið ábatavænlegar miðað við ýmsar aðrar vörur.“
Þetta eru þá skýrslur tollstjóra um þessa rannsókn, sem höfðu verið sendar til rn. og fyrir lágu þar áður en þessi fsp. varð til, sem hér er verið að svara.
4. spurningin er þannig: „Hefur ríkisstj. í hyggju að fyrirskipa sakamálshöfðun gegn þeim aðilum, sem brotlegir kynnu að reynast, ef ákærur Félags ísl. iðnrekenda væru á rökum reistar?“
Þegar komizt hefur upp um tollsvik, hafa málin jafnan verið send sakadómara til meðferðar, og hefur svo verið gert m. a. fyrir skömmu og mun verða gert framvegis.
Svo vil ég segja það að lokum, að ég hef ef til vill verið helzt til óþolinmóður í orðum við hv. fyrirspyrjanda, en að mér fannst að gefnu fullu tilefni. Það stafar kannske af því, að ég er því heldur óvanur, að mér sé borið á brýn, að ég sjái i gegnum fingur með þeim, sem vilja koma sér undan því að greiða réttmæta skatta og gjöld. Hingað til hefur mér verið fundið ýmislegt annað til foráttu en það. Það er nokkurt nýmæli fyrir mig, að lögð sé alveg sérstök áherzla á að reyna að koma því inn hjá mönnum, að ég sé yfirhylmingarmaður í þessum sökum. Það er nýstárlegt.
5. spurningin er þannig: „Hvernig er það tryggt almennt, að ekki séu hér á boðstólum tollsviknar vörur á frjálsum markaði.“
Svarið er þetta: Tollgæzlan er til þess sett að koma í veg fyrir, að tollsviknar vörur komist inn í landið, eftir því sem auðið er, auk þess sem verðgæzlan og tollgæzlan fylgjast með því, hvort á boðstólum séu í verzlunum vörur, sem ástæða væri til að álita að væru tollsviknar.
6. spurning: „Hvaða ráðstafanir hafa verið og eru gerðar til þess að koma í veg fyrir það, að tollfrjálsar vörur hernámsliðsins á Keflavíkurflugvelli séu á boðstólum hér í verzlunum eða á annan hátt?
Eftirlit með tollfrjálsum innflutningi varnarliðsins er tvíþætt. Fyrst er eftirlit með því, að varan sé flutt til Keflavíkurflugvallar, og síðan eftirlit með því, að hún sé ekki flutt þaðan aftur. Um fyrra atriðið hefur tollgæzlan á flugvellinum samvinnu við tollgæzluna í Rvík, þar eð meginhluti varanna er fluttur á land hér, en eftirlit með hinu síðara atriði er í höndum tollgæzlunnar á flugvellinum, sem reynir að sjálfsögðu eftir föngum að gæta þess, að misferli eigi sér ekki stað. Nýtur tollgæzlan þar aðstoðar lögreglunnar, sem hefur stöðugan vörð við flugvallarhliðin og leitar mjög oft í bílum þeim, sem út af vellinum fara. Um s. l. áramót lét rn. athuga sérstaklega, hvernig ástatt væri um tollgæzluna á flugvellinum, og var þá ákveðið að bæta þar við tveimur tollvörðum og var gert. Af öðrum sérstökum ráðstöfunum er ástæða til að geta þess, að fyrir atbeina fjmrn. voru á s. l. vori afnumin öll leyfi varnarliðsmanna til þess að flytja með sér áfengi út af flugvallarsvæðinu. Það er algerlega bannað. Rn. hefur haft nána samvinnu við tollgæzluna þarna suður frá um ýmsar aðrar ráðstafanir, sem gætu orðið til aukins öryggis, og mun halda því áfram. Stundum hefur orðið dálítið ógreiðara um framkvæmdir vegna þess, að margir aðilar hafa þurft að fjalla um þessi mál, en nú eru þessi mál komin öll í eitt ráðuneyti, þ. e. a. s. öll þau mál, sem snerta framkvæmd varnarsamningsins og framkvæmdir á Keflavíkurflugvelli, og ætti framkvæmdin að verða á ýmsan hátt auðveldari fyrir þær sakir. Hitt er svo annað mál, að það er vafasamt mjög, að tollgæzlan sé nógu sterk, nógu öflug. Gæti máske verið ástæða til að bæta við verulegu liði og aukinni tollgæzlu, og er það nú í athugun, en það náttúrlega kostar fé, og er alltaf álitamál, hversu mikið skuli leggja i kostnað víð þess konar.
Ég hef nú svarað þessum spurningum og læt nú hv. þm. um að dæma það, hvort rn. hefur látið þær upplýsingar, sem um þetta hafa komið, sem vind um eyrun þjóta eða hið gagnstæða.