22.10.1953
Sameinað þing: 10. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 505 í D-deild Alþingistíðinda. (3343)
214. mál, atvinnubætur o. fl.
Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):
Það er ekkert í fsp. sérstaklega um Siglufjörð og Seyðisfjörð, og ég hafði ekki tekið eftir því, að hv. þm. vék sérstaklega að þeim málum í framsögu sinni áðan. Hann spurði, hvað hefði breytzt frá því, að ábyrgðarheimildin var samþ. og þangað til brbl. voru gefin út, sem heimiluðu ríkisstj. að taka miklu meiri ábyrgðir eða veita miklu meiri hjálp til þessara staða en annarra staða, sem hér áttu hlut að máli. Það er ekki hægt að svara þessu öðru en því, að þegar farið var að athuga þessi mál nánar en gert var í samráði við hv. fjvn., á meðan þetta var til íhugunar í þinginu, þá kom í ljós, að ómögulegt var að halda skipunum á þessum tveim stöðum nema með því að gera á Siglufirði miklu víðtækari ráðstafanir en menn höfðu gert sér vonir um að þyrfti, og á Seyðisfirði nokkru víðtækari ráðstafanir en gert var ráð fyrir. Ríkisstj. stóð þá frammi fyrir því, hvort það ætti þá að láta niður falla að greiða fyrir því, að skipin gætu verið áfram á þessum stöðum, eða þá að beita sér fyrir víðtækari aðstoð. Var þá síðari kosturinn valinn.