28.10.1953
Sameinað þing: 12. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 507 í D-deild Alþingistíðinda. (3348)
215. mál, Iðnaðarbanki Íslands h/f
Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):
Til svars þessari fsp. frá hv. þm. vil ég fyrst leyfa mér að minna á yfirlýsingu, sem kom hér fram í fyrravetur, þegar þessi lánsheimild var samþykkt. Ég kvaddi mér þá hljóðs í hv. Ed. til þess að gefa þessa yfirlýsingu fyrir stjórnarinnar hönd, þegar sýnilegt var, að þingfylgi var fyrir því að gera lánsheimildarfrv. að lögum, og með leyfi hæstv. forseta ætla ég að lesa hér hluta úr þeirri ræðu:
„Ríkisstj. á eftir að útvega 70–80 millj. kr., til þess að hægt sé að ljúka virkjun Sogsins, virkjun Laxár og áburðarverksmiðjunni, og getur vel svo farið, að taka verði þetta fé að láni að einhverju eða öllu leyti. Þá hefur verið samþ. á þessu þingi heimild til þess að taka að láni 16 millj. kr. vegna smáíbúða og 22 millj. vegna Búnaðarbankans. Enn fremur er gert ráð fyrir, að sementsverksmiðjan muni kosta um 85 millj. kr., og mun verða að taka það fé að láni mestallt, sennilega um 45 millj. erlendis og allt að 40 millj. innanlands. Eru þá taldar þær lántökur, sem núverandi ríkisstj. hefur ákveðið að sitji fyrir öðrum lánsútvegunum í framkvæmd. Enn fremur eru í lögum heimildir til þess að ábyrgjast fyrir Framkvæmdabankann allt að 80 millj. í lántökum, og í lögum eru einnig á ýmsum stöðum heimildir til þess að taka lán til raforkuframkvæmda, a. m. k. 80 millj. kr. samtals, en framkvæmdaröð þessara lántaka hefur ekki verið ákveðin af núverandi ríkisstj.“
Þetta, sem ég nú hef lesið, var það, sem yfirlýst var fyrir hönd fyrrverandi ríkisstj., þegar lánsheimildin fyrir Iðnaðarbankann var samþ. Og þessi yfirlýsing var gefin þá til þess að ekki fengist röng mynd af þessu máli í upphafi. Af þeim forgangslánum, sem þá voru ákveðin af fyrrverandi ríkisstj., er enn þá eftir að koma sementsverksmiðjuláninu í höfn. Núverandi stjórnarflokkar hafa í málefnasamningi sínum ákveðið, að fyrir öllu öðru skuli sitja, nema sementsverksmiðjuláninu, að tryggja 100 millj. kr. lánsfé til raforkuframkvæmda víðs vegar um landið. Að svo stöddu er því ekki mögulegt að segja til um það, hvenær hægt verður að útvega Iðnaðarbankalánið, eins og allir munu skilja af því, sem ég hef sagt. En ríkisstj. mun gera það, sem í hennar valdi stendur, til þess að leysa þetta mál ásamt öðrum svo fljótt sem auðið er.
Þannig er háttað um útvegun lánsfjár, að ekki er hægt að hafa of mörg járn í eldinum í einu. Sé það gert, getur farið verr en skyldi. Í þessu sambandi þykir mér rétt að minna á, að í málefnasamningi stjórnarflokkanna eru ákvæði um, að endurskoðaðar verði reglur um lán til iðnaðarins með það fyrir augum að koma fastari skipan á þau mál. — Þetta svar er gefið í samráði við alla ríkisstj. og fyrir hennar hönd.