22.10.1953
Sameinað þing: 10. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 516 í D-deild Alþingistíðinda. (3360)

216. mál, bátagjaldeyrir

Fyrirspyrjandi (Gylfi Þ. Gíslason):

Herra forseti. 1951 var tekið upp bátagjaldeyrisfyrirkomulagið svonefnda. Í því felst það, að sérstakur skattur er lagður á fjölmargar innfluttar vörur, sem ekki má flytja inn nema samkv. sérstökum reglum, sem ríkisstj. gefur út, og andvirði skattsins er síðan notað til styrktar bátaútveginum í landinu. Samkv. ákvæði í stjórnarskrá ríkisins er óheimilt að leggja á nokkurn skatt, nema það sé gert samkv. lögum. Þessi skattur, þessi tollur, sem lagður var á landsmenn til styrktar bátaútveginum, er ekki innheimtur samkv. sérstökum lögum, engin sérstök lög hafa verið sett til þess að veita ríkisstj. heimild til þessarar skattheimtu eða tollheimtu. Hins vegar er skatturinn innheimtur samkv. reglum, sem ríkisstj. hefur gefið út, og vísað í því sambandi í gildandi lög um fjárhagsráð. Um rétt ríkisstj. til þess hefur verið mjög deilt; það hefur verið mjög um það deilt, hvort eðlilegt hafi verið að grundvalla þessa miklu skattheimtu eða tollheimtu á þeim lögum, sem í var vitnað. Skal ég láta það liggja á milli hluta hér. En hitt er alveg einsdæmi um þennan mikla toll, að hann er eini tollurinn, sem nú er lagður á landsmenn, er þeir vita ekki sjálfir, hversu miklu nemur. Það er auðvitað grundvallaratriði varðandi alla tollheimtu, varðandi öll gjöld, sem lögð eru á þegnana, að þeir fái sjálfir að vita, hversu mikið þeir eru látnir borga, jafnvel þó að það fari ekki beint í ríkissjóðinn, heldur fari eftir öðrum leiðum í hendur þeirra aðila, sem njóta eiga gjaldanna, sem á eru lögð.

Eitt af því, sem er að athuga við þessa miklu toll- eða gjaldaálagningu, er það, að hún er gersamlega utan við allt eftirlit, í fyrsta lagi löggjafarsamkomunnar og um leið alls almennings í landinu. Þetta er eina skattgjaldið, sem á hefur verið lagt, sem yfir hvílir þvílík leynd, að enginn veit, hversu miklu það nemur, svo að þörf er á því að bera fram hér á hinu háa Alþ. fsp. til þess að fá upplýst, hversu mikið almenningur er látinn borga og hversu mikið ein tiltekin atvinnugrein í landinu fær í styrk af þessu gjaldi. Þetta er auðvitað ástand, sem er algerlega óviðunandi. Ætli ríkisstj. sér að halda áfram þessari furðulegu skattheimtu, þá ber henni að setja um það skýr og ákveðin lög, þannig að það liggi alveg ljóst fyrir, hversu gjaldið á hverri vörutegund nemur miklu og hvernig ,því er varið í þágu bátaútgerðarinnar.

Það hafa nokkrum sinnum verið gerðar um það áætlanir, — m. a. hef ég gert það meðan síðasta þing sat, — hversu miklu þetta gjald hafi numið. Sumt af niðurstöðum mínum þá var vefengt, talið, að ég teldi gjaldið ívið of hátt, ekki miklu þó. En hér verður auðvitað að fá hreint borð, menn verða að fá að vita, hvað gjaldið er mikið og hvað við þessa peninga er gert.

Við þetta hefur svo bætzt, að mér hefur borizt til eyrna, að kostnaður sá, sem hlýzt af innheimtu þessa bátgjaldeyrisálags og úthlutun fjárins sé mjög mikill, þannig að óeðlilega hár hluti gjaldsins fari í hreinan skrifstofukostnað eða innheimtu- og úthlutunarkostnað. Þess vegna hef ég einnig leyft mér að spyrja um það, hversu miklu þessi kostnaður nemi, til þess að unnt væri á eftir að mynda sér hugmynd um það, hvort ekki væri hægt að draga úr honum eða inna þessa þjónustu af hendi ódýrar en þarna á sér stað. En aðalatriðið er þó að fá upplýst, hversu þessi sérkennilegi skattur nemur hárri fjárhæð.