11.11.1953
Sameinað þing: 15. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 524 í D-deild Alþingistíðinda. (3374)

67. mál, fiskskemmdir

Fyrirspyrjandi (Gils Guðmundsson):

Ég vil þakka hæstv. atvmrh. fyrir skýr og greinargóð svör við fyrirspurnum mínum. Þar kom ýmislegt í ljós, sem ég er alls ekki viss um að allir hafi vitað áður. Í því sambandi vil ég aðeins láta það í ljós, að mér fannst ástæðulaust hjá hæstv. ráðh. að vera með nein svigurmæli til mín um það, að ég sé áhugaminni eða viti minna um þessi mál en aðrir menn, þó að ég hafi borið fram þessar fyrirspurnir, því að ég veit ekki til, að þær upplýsingar, sem hann nú gaf og voru mikilsverðar á marga lund, hafi verið gefnar áður, hvorki í blöðum né hér á Alþingi né nokkurs staðar opinberlega. Þess vegna hygg ég, að það hafi verið full ástæða til að spyrja um þessi efni og ágætt í sjálfu sér að fá þau skýru svör, sem hér voru gefin og virðast benda til þess, að þessi mál hafi verið tekin allföstum tökum. Sérstaklega vil ég ekki á neinn hátt deila á þá meðferð, sem þetta mál fékk, eftir að það var fengið í hendur ágætum vísindamönnum til athugunar, eins og var háttað um síðari rannsóknina, sem hæstv. ráðh. talaði um.

Þetta mál er, eins og ráðh. undirstrikaði í sinni ræðu, mjög mikilsvert, enda brýn nauðsyn, að vandað sé til framleiðslu landsmanna og þá alveg sérstaklega þeirrar framleiðslu, sem er langmestur hluti útflutningsins, fiskframleiðslunnar, að þar má ekki sýna hina minnstu linkind á neinn hátt. Það er ágætt, ef fast og vel hefur verið tekið á þessu máli, og mér þykir vænt um að heyra það, að hæstv. ráðh. lýsir því yfir, að hann muni vera á verði um þessi efni í framtíðinni. Ég hygg, að það sé ekki vanþörf á því,því að sannleikurinn er sá, að okkur Íslendingum hefur nú á síðari árum, því miður, hrakað mjög í þessu efni í sambandi við fiskframleiðslu. Það var sú tíð, að íslenzkur fiskur — og þá alveg sérstaklega saltfiskur — var á öllum mörkuðum álitinn alveg sérstök gæðavara. En á stríðsárunum síðustu hygg ég að þessu hafi hrakað mjög með fiskafurðir okkar, framleiðslu þeirra og eftirlit með þeim ekki síður. Ég veit það, að fiskmat ríkisins hefur á síðustu árum ekki farið varhluta af gagnrýni, sem því miður mun stundum hafa verið á rökum reist, og kom það raunar fram í svari hæstv. ráðh., að nauðsynlegt hafði verið að víkja fiskmatsmönnum frá, vegna þess að þeir höfðu ekki staðið nægilega í stöðu sinni. Og þessi gagnrýni hefur því miður einnig beinzt að æðstu mönnum fiskmatsins, m. a. fiskmatsstjóra. Ég hef ekki aðstöðu til þess hér að ræða um það, að hve miklu leyti sú gagnrýni er réttmæt, en ég veit, að hún hefur komið fram, og þetta er svo mikilvægt starf, að þar þarf vissulega fullkomins eftirlits með af hálfu þeirra, sem hafa þessi mál með höndum; og því var gott að heyra það, að hæstv. ráðh. lofaði því eindregið og hafði um það sterk orð, að hann mundi standa þarna vel á verði.