18.11.1953
Sameinað þing: 17. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 535 í D-deild Alþingistíðinda. (3388)

218. mál, verðtrygging sparifjár

Viðskmrh. (Ingólfur Jónsson):

Herra forseti. Í sambandi við þessa fsp., sem hljóðar svo:

„Hefur farið fram athugun á því, hvort og með hverju móti takast mætti að tryggja verðgildi sparifjár, svo sem gert var ráð fyrir í þingsályktun, samþykktri 5. febr. 1953? Ef svo er, hvað hefur hún þá leitt í ljós í aðalatriðum?“

Í sambandi við þetta er rétt að taka fram, að viðskmrn. sendi till. þessa til bankanefndarinnar, og ég ætla, að hv. fyrirspyrjandi eigi sæti í þeirri nefnd. Ætlaðist ríkisstj. til, að bankanefndin tæki till. til athugunar og benti á úrlausnir og ráð í því efni, sem í till. felst. Ríkisstj. hefur ekki borizt svar frá bankanefndinni enn þá, en væntir þess, að það megi koma sem fyrst, svo að sú athugun, sem bankanefndin gerir, megi takast til yfirvegunar í ríkisstj. og það komi fram, hvað bankanefndin hefur fram að leggja í þessu efni. Ríkisstj. gerir ráð fyrir því, að álit bankanefndarinnar liggi fyrir, áður en langur tími líður, og að þá verði hægt að ræða um þetta á víðari vettvangi.