18.11.1953
Sameinað þing: 17. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 547 í D-deild Alþingistíðinda. (3400)
97. mál, álagning á innfluttar vörur o. fl.
Forseti (JS):
Mér þykir það leitt að síðasti ræðumaður misnotaði þá heimild, sem ég veitti honum til að segja aðeins örfá orð. Samkvæmt þingsköpum er ræðumönnum aðeins ætlað að tala tvisvar. Ég gerði það þó, af því að ég treysti því, að hann mundi aðeins segja örfá orð, en ég tel, að hann hafi misnotað þetta. Ég harma það.