18.11.1953
Sameinað þing: 17. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 562 í D-deild Alþingistíðinda. (3417)
220. mál, vinnudeilur
Fyrirspyrjandi. (Bergur Sigurbjörnsson):
Herra forseti. Mér þykir leitt að geta ekki þakkað hæstv. viðskmrh. fyrir svör þau, sem hann gaf mér. Ég verð að játa á mig þá sök, að ég er svo vanur orðinn loðnum tilsvörum og jafnvel vísvitandi meira og minna röngum svörum frá hæstv. ríkisstj., að ég er hættur að leggja fyrir hana spurningar án þess að vita fyrst sjálfur svörin við því, sem ég spyr um.
Hæstv. viðskmrh. tók það fram áðan hér, að hann teldi ræðu mína óeðlilega í sambandi við þessa fyrirspurn og jafnvel ástæðulausa. Ég vil aðeins svara því á þann veg, að ég ákveð það sem betur fer enn þá, hvað ég segi og hvenær. Ef ég hefði haft 10 mínútur til umráða, þegar ég lagði mína fsp. hér fyrir áðan, þá hefði ég getað notað seinni fimm mínúturnar til þess að flytja ræðu hæstv. viðskmrh., því að ég vissi, hverju hann mundi svara. Ég vissi um bréfið frá ríkisstj. 5. jan. 1953. Ég vissi vel um það bréf, vegna þess að ég hef á eigin spýtur aflað mér upplýsinga um þessi mál og að í því bréfi var ekkert það atriði, sem gat gert verðgæzlustjóra kleift að hafa eftirlit með þessum málum, vegna þess að það vantaði sem sagt í bréfið það sem við átti að éta, nefnilega grundvöllinn, hvernig átti að reikna verðlag þessara vara út. Það er alls ekki nóg, þó að tekið sé fram, að álagning skuli lækka, sjálf álagningarprósentan, við skulum segja úr 12% niður í 10%, þegar það eru ótal smugur í verðlagningargrundvellinum til að koma við hækkunum, sem eru meiri en það sem þessari lækkun á álagningu nemur, og það er það, sem gert hefur verið í fjölda tilfella og kannske flestöllum.
Ráðh. minntist hér á það, að vextir hefðu hækkað og þess vegna hefði álagningargrundvöllur verið hækkaður, vegna þessarar vaxtahækkunar. Þetta er rétt. Meðan bankavextirnir voru 6%, var í verðlagningargrundvelli reiknað 1% vegna vaxta, en þegar bankavextir hækkuðu úr 6% í 7%, þá var í grundvellinum hvorki meira né minna en hækkað úr 1% í 2–3%. Þar að auki var bætt við símakostnaði, og í sumum tilfellum hefur í verðútreikningum þessara vara, sem hér um ræðir, verið lagt á söluskatt í tolli, enda þótt það sé lögbrot, og bátagjaldeyrisálagið sjálft. Ja, það er náttúrlega spurning, hvort álagning á söluskatt í tolli er lögbrot eða ekki lögbrot. Að vísu er það brot á bókstaf laga, en að öðru leyti er heimil frjáls álagning, svo að það veit enginn maður neitt. Það er sama, hvort maður leggur 20% á helming einhverrar ákveðinnar upphæðar eða 10% á alla upphæðina. Þannig veit enginn lengur, hvað er lög og hvað er ekki lög í þessu landi.
En það er alveg öruggt mál, að það, sem hæstv. viðskmrh. hafði hér eftir verðgæzlustjóra áðan, getur ekki staðizt. Mér er kunnugt um, að síðan verðgæzlustjóra var falið að hafa eftirlit með þessum hlutum, hefur hann ekki getað staðfest einn einasta verðútreikning, ekki einn einasta, sama hvað lítið partí sem var, og ekki gert það. Það eina, sem hann hefur gert, er að kvitta fyrir því, að hann hafi tekið við verðútreikningi frá ákveðnu fyrirtæki fyrir ákveðna vöru. Annað hefur hann ekki gert, og annað hefur hann ekki getað gert, vegna þess að hann hafði engin fyrirmæli frá hæstv. ríkisstj. um það, hvað hann skyldi gera.
Ég vil taka það alveg skýrt fram, að í þessu felst engin ásökun á hæstv. núverandi viðskmrh., vegna þess að þetta er miklu eldra mál en að það nái til hans. Málið heyrði undir hv. 3. þm. Reykv., hæstv. fyrrv. viðskmrh., og það er hann, sem hefur ekki sett þær reglur, sem honum bar að setja í sambandi við þetta. Málið stendur meira að segja þannig, að þó að skrifstofu verðgæzlustjóra séu sendir verðlagsútreikningar um þessar vörur, sem hér um ræðir og átti að lækka álagningu á, þar sem samningarnir eru beinlínis brotnir í öllum atriðum, hverju einu og einasta, þá getur verðgæzlustjóri ekkert gert annað en að kvitta fyrir móttöku þeirra. Hann hefur ekki heimild til að gera neitt, engin lög að fara eftir, enga reglugerð að fara eftir og ekkert í höndunum frá hæstv. ríkisstj.