25.11.1953
Sameinað þing: 19. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 577 í D-deild Alþingistíðinda. (3428)

220. mál, vinnudeilur

Hannibal Valdimarsson:

Ég vil spyrja hæstv. ráðh. að því, hvernig hann vill skýra það, að það skuli vera tvenns konar ákvæði í þessum samningi, þar sem ríkisstj. skuldbindur sig um að lækka benzín um 4 aura á lítra og lækka brennsluolíu um 4 aura á lítra, en hins vegar lofar að ábyrgjast það, að verð á lítra af mjólk færist í kr. 2.71, og hvernig hann vill halda því fram, að ríkisstj. sé ekki sek um vanefndir, þegar hún ekki fullnægir því, að verð á lítra nýmjólkur sé kr. 2.71 um allt land, að verð á kartöflum sé kr. 1.75 um allt land og verð á kaffi kr. 40.80 um allt land, því að hún hefur lofað að færa verðið á þessum vörum niður í þetta, en lofaði ekki í — þessu tilfelli að lækka mjólk um 54 aura á lítra. Ég held fast við það, að meðan hæstv. ríkisstj. sér ekki um, að verðið sé fært niður í það, sem í samningnum frá 19. des. segir, þá hafi hún vanefnt þann samning, og kemur ekkert við málinu, hvað hún hefur verið að baksa við að semja milli Vestmanneyinga og mjólkursamsölunnar í Rvík. Hún átti að standa við þennan samning. Meðan hún ekki hefur gert það, heldur brotið hann, eins og upplýst er, að því er snertir margar vörutegundir á Siglufirði og mjólkina í Vestmannaeyjum, þá er hún sek um vanefndir og hefur stórkostlega torveldað það, að tekið sé mark á hæstv. ríkisstj. sem samningsaðila oftar en gert hefur verið.