25.11.1953
Sameinað þing: 19. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 577 í D-deild Alþingistíðinda. (3429)

220. mál, vinnudeilur

Gylfi Þ. Gíslason:

Herra forseti. Hv. 8. landsk. þm. gat þess í framsöguræðu fyrir þeirri fyrirspurn, sem hér er enn til umr., að farið hefði verið í kringum samkomulag það, sem gert var milli stéttarfélaganna og ríkisstj. varðandi álagningu á nauðsynjavörur, á þann hátt, að álagningargrundvelli hefði verið breytt þannig, að sama álagningahundraðstala gæfi milliliðum hærri krónutölu í álagningu en átti sér stað áður. Það, sem hv. þm. sagði um þetta efni, var allt saman rétt. En þessu hefur hæstv. viðskmrh. reynt að andmæla aðeins að mjög litlu leyti. Umræðurnar hafa hins vegar fyrst og fremst snúizt um mjólkurverðið í Vestmannaeyjum, sem þó er, eins og hv. 8. landsk. þm. tók fram áðan, að vísu ekki fallegt mál, en þó aðeins smámál við hliðina á því, sem hér hefur átt sér stað.

Hv. 8. landsk. þm. nefndi að vísu aðeins fá töludæmi máli sínu til sönnunar. Ég skal nú lofa hv. þm. að heyra töludæmi, óvefengjanleg töludæmi, sem sanna það svart á hvítu, að í kringum þetta samkomulag hefur verið farið á hinn vitaverðasta hátt og að því er virðist án þess að nokkuð hafi verið gert til þess að leiðrétta þetta misferli. Ég hef hér fyrir framan mig útreikning á vörusendingu, sem samkomulagið gilti um, að innkaupsverði 100 þús. kr. Fyrst er útsöluverðið reiknað eftir verðlagsákvæðunum, meðan þau voru í gildi. Þá verður svokallað kostnaðarverð þessarar vöru 195 þús. kr., heildsöluverð að meðtöldum söluskatti, tolli og bátagjaldeyri 283 þús. kr. og smásöluverðið 341 þús. kr. Nú er hér einnig reiknað til samanburðar, hvernig sama vörusending kemur út samkvæmt samkomulaginu, sem gert var við stéttarfélögin. Ég rek það ekki nánar, en get þess, að útsöluverðið er þá 361 þús. kr., þ. e. a. s. hækkun um 20 þús. kr. frá því. sem verið hefði, meðan verðlagsákvæðin voru í gildi, en það var nokkur lækkun frá því, sem verið hafði, áður en samkomulagið var gert, vegna þess að álagningin í hundraðstölum var lækkuð nokkuð. En nú kemur mergurinn málsins. Svo hef ég hér í þriðja lagi gert útreikning á því, hvert útsöluverð þessarar vöru verður, eftir að kaupmenn hafa breytt álagningargrundvelli sínum á þann hátt, sem þeir hafa gert, þó að þeir hafi haldið sömu álagningu að hundraðstölu, en það hafa þeir gert. Þeir virðast hafa haldið að leggja aðeins 10% á í heildsölu og 28% í smásölu, en þeir hafa breytt þeim grundvelli, sem lagt er á, þeir hafa hækkað hann og þannig auðvitað fengið hækkaða álagningu í krónum reiknað, sem er auðvitað hið eina, sem máli skiptir.

Ég nefni hér eftir aðeins heildsöluverðið til þess að gera þetta sem gleggst. Það heildsöluverð, sem var 290 þús. kr. samkvæmt samkomulaginu, reynist 301 þús. kr. samkvæmt þeirri venju, sem kaupmenn hafa tekið upp núna og hefur verið látin óátalin. Og smásöluverðið, sem reyndist 361 þús. kr., reynist 393 þús. kr. á sömu vörusendingunni, þótt hundraðstalan í álagningunni sé óbreytt, aðeins vegna þess að lagt er á fleiri grundvallarliði en áður. M. ö. o., ef miðað er við gömlu verðlagsákvæðin, þá var það verð, sem átti að vera á þessari sendingu, 5.9% hærra samkvæmt samkomulaginu, en samkvæmt hinum breyttu reglum milliliðanna er verðið 15.4% hærra. Sú hækkun, sem hefur orðið á útsöluverðinu vegna hinna breyttu reikningsaðferða kaupmannanna að óbreyttri hundraðstöluálagningu, nemur 8.9%. Það er m. ö. o. ómótmælanleg staðreynd, að útsöluverð á samkomulagsvörunum hefur hækkað um 8.9% vegna þess, að milliliðirnir hafa breytt útreikningsaðferðum sínum á álagningargrundvellinum, þótt þeir hafi haldið hlutfallstöluálagningunni óbreyttri.