10.02.1954
Sameinað þing: 32. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 582 í D-deild Alþingistíðinda. (3438)
131. mál, álagningar á nauðsynjavörur
Gylfi Þ. Gíslason:
Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svör hans. Ég get þó ekki á það fallizt, að hér sé um að ræða annað mál og óskylt því, sem hér er til umræðu. Spurzt er fyrir um það á þskj. 331, hvað stjórnin hafi gert til þess að tryggja, að áfram haldist álagningarlækkun sú á ýmsum nauðsynjavörum, sem lofað var í samkomulagi verkalýðsfélaganna og vinnuveitenda 19. des. 1952. Þessu er auðvitað ekki hægt að svara, nema því aðeins að menn komi sér saman um, hvað skuli telja þá álagningarlækkun. sem um var samið.
Það er mín skoðun, að ekki sé nóg að standa við það að hafa álagningarhundraðstöluna óbreytta. Við hitt þarf líka að standa að hafa álagningargrundvöllinn óbreyttan, því að annars mundi verðlagið á þeim vörum, sem um er að ræða, verða hærra en ella, jafnvel þó að álagningarhundraðstölunni væri haldið óbreyttri.
Mér skildist á hæstv. ráðh., að hann mundi telja það að halda samkomulagið ekki, ef verulegar breytingar væru gerðar á álagsgrundvellinum, og ég vona, að ég hafi skilið hann þar rétt; þar er ég honum alveg sammála. En ef þetta er skoðun hans og ef hægt væri að leiða rök að því, að grundvellinum hefði verið breytt í verulegum atriðum, þá vænti ég einnig, að hann muni gera ráðstafanir í samræmi við það, að samkomulagið hefði þá ekki verið haldið. Hann vildi gera mjög lítið úr því, að nokkrar breytingar að ráði hefðu verið gerðar á álagningargrundvellinum, og þær staðhæfingar hans skildi ég þannig, að hann teldi það vítavert, ef svo hefði verið gert.
Mér þætti vænt um, ef um þetta atriði kæmu fram alveg skýr og ótvíræð ummæli. Telur hæstv. ráðherra það vera brot á samkomulaginu, ef verulegar breytingar hafa verið gerðar á álagsgrundvellinum, eða telur hann það ekki? — Ég mun svo síðar leitast við að gera athuganir á því, hvort þetta hefur verið gert. Telji hæstv. ráðherra það vera brot á samkomulaginu, þá vona ég, að hann verði fús til þess að gera ráðstafanir til þess, að þau brot verði leiðrétt í framtíðinni.